Heima er bezt - 01.02.1963, Síða 12

Heima er bezt - 01.02.1963, Síða 12
Genf, Mont Blanc brúin. Heitir það Belmont og virtist standa aðeins steinsnar upp frá vatninu. Ég greip því tösku mína og hélt þangað gangandi. En sakir ókunnugleika reyndist mér leiðin lengri. Brekkan er nefnilega snarbrött, svo að akvegirn- ir upp eftir liggja í álíka krókum og í Vaðlaheiði, nema lengri og þó krappari. Komst ég loks upp á hótelið eftir 20 mínútna gang, þreyttur og sveittur, því að steikjandi sólsldn var. Síðar fann ég styztu leiðina, beint niður á aðalgötuna, hún er að vísu mest tröppur, um 300 að tölu. En svona er bæjarstæðið í Montreaux og flestra annarra bæja á þessum slóðum. Nokkrar aðal- götur liggja langs eftir hlíðunum, tengdar saman með löngum sniðgötum eða þverbröttum tröppustígum. Eg flýtti mér að snyrta mig til að komast niður í borðsalinn, til þess að ná í seinustu leifarnar af hádegis- verðinum. Öll suðurhlið salarins er úr gleri, og var það- an hin dásamlegasta útsýn yfir bæinn, vatnið og yfir það inn í mynni Rhonedalsins og hinna fagursköpuðu fjalla umhverfis hann. Mér var vísað til borðs inni í salnum. Fór ég þess þegar á leit, að ég fengi að sitja við gluggann og lét þess getið, að ég mundi dveljast þarna í 10 daga. Þjónninn hristi höfuðið og gekk burt, enda talaði ég ensku, en hann skildi ekkert nema frönsku, og reyndist okkur síðar furðu laus við allt sem hétu lipurheit. En um leið og hann yfirgaf mig, ávarpar mig maður, sem sat við næsta borð, sagðist hafa heyrt, að ég ætlaði að vera þarna í 10 daga, og ég skyldi þó ekki vera að fara á líffræðikennaraþingið. Ég kvað já við því. „Þangað fer ég líka“, sagði hann. Við sögðum þá nöfn okkar. Hann var íri, Cornelius Murphy að nafni. Og áður en við höfðum lokið snæðingi vorum við orðn- ir góðkunningjar, og skildum við varla eftir það með- an fundurinn stóð. Hafði hann aldrei hitt íslending fyrr, en eitt hið fyrsta, sem hann sagði við mig, er hann vissi hvaðan ég var, var ýctta: „Þið eruð engir smá- ræðiskarlar þarna úti á Islandi, að hafa sigrað sjálft brezka heimsveldið í deilunni um landhelgina.“ Þótti honum það vel af sér vikið og hafði okkur í hávegum fyrir. Murphy er forstjóri fyrir einu stærsta fram- leiðslufyrirtæki írlands. Er meginstofn þess sykurrófna- rækt og sykurframleiðsla, en hafa síðar snúið sér að niðursuðu og hver skonar matvælaiðnaði, bæði til inn- anlandsneyzlu og útflutnings. Halda þeir skóla og nám- skeið fyrir starfsfólk sitt, og því var hann hér kominn, ef eitthvað væri að læra um kennslu í líffræði, svo unnt væri að bæta þar um. Murphy er maður föngulegur, dálítið feitlaginn, glaður í bragði og drengilegur á svip. Skrafhreyfinn og skemmtinn í bezta lagi. Kom okkur brátt saman um, að við værum af sama bergi brotnir og sennilega frændur, þar sem Helgi magri hefði verið dóttursonur Kjarvals írakonungs. En þann heiðursmann kannaðist hann við úr sögum eða einhvern nafna hans. Að lokinni máltíð þótti okkur tími til kominn að fara til La Tour de Peilz, en svo heitir bær sá, sem fundurinn var haldinn í, og láta innrita okkur. La Tour de Peilz er smábær, er liggur milli bæj- 48 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.