Heima er bezt - 01.02.1963, Blaðsíða 16

Heima er bezt - 01.02.1963, Blaðsíða 16
Messuklettur. Útsýn yfir Keflavikina. Greina má skipbrots- mannaskýlið lengst til vinstri sem hvítan depil. handa mönnum og skepnum. Og stundum kom ísinn með góðar gjafir, sel eða hvali, smærri eða stærri.“ Ýmsir góðir bændur bjuggu áður fyrr í Keflavík. Um og eftir miðja 19. öld bjuggu þar ríkir útgerðarmenn af Grenivíkurætt, fyrst Kristján bróðir Jónasar á Látr- um, síðar Jón Loptsson skipstjóri frá Grcnivík (1862— 1868). Jón Loptsson var efalaust mesta glæsimennið á víkingaflota Höfðhverfinga á hákarlaöldinni. Hann fór til Kaupmannahafnar og nam þar sjómannafræði. Svo mikið þótti ísl. stúdentum í Höfn koma til glæsimennsku hans og örleika á fé, að þeir nefndu hann „baróninn“. Síðan keypti Jón hafskip og sigldi því sjálfur heim með farmi. Hann var löngum aflakóngur á hákarlaveiðum. Tryggvi Gunnarsson fékk hann að formanni með vör- ur Höfðhverfinga í hinni frægu Reykjavíkurför, er hann var að brjóta einokun eyfirzkra kaupmanna. Jón var ef til vill fyrsti íslendingur öldum saman, er stjórn- aði hafskipi, bæði í millilandasiglingum og umhverfis land. Hann hélt sjómannaskóla heima hjá sér á vetrurn í Keflavík. Flestir, sem bjuggu í Keflavík á síðari áratugum, efnuðust þar vel og fluttust þá þaðan í meira þéttbýli. Síðasti bóndi í Keflavík var Geirfinnur Magnússon. Um hann hefur Theodór Friðriksson rithöfundur þau orð, að hann hafi verið „garpur mikill“. Geirfinnur fluttist frá Keflavík að Botni í Þorgeirsfirði 1907, og hefur jörðin verið í eyði síðan. LITIÐ YFIR FJORÐU. Fjallið austur af Keflavíkurdal nefnist Hnjáfjall norð- ur að sjónum. Allur er fótur þess etinn að framan, og verður ekki með sjó gengið. Leiðin liggur upp bratta brekku, og heitir þar Messuklettur á brúninni. Ofan í háfjallið er grunnur, gróinn dalur, er Blæja nefnist. Fram úr dalsmynni þessu er hengiflug, mörg hundruð metrar í sæ niður. En austan við Blæjuna er tæp leið um skriður, ofan við flughá björg, er nefnast Blæju- kambur. Þetta er leiðin frá Keflavík til Fjarða. Við skulum svipast um á austurbrún fjallsins, líta yfir Fjörð- una: Næst okkur er brattalítil, gróin hlíð niður að Þor- geirsfirði. Upp af firðinum er allbreiður dalur með grónum hálsuni og ávölum beggja vegna. Ut á milli fjarðanna gengur nes, heldur skammt, með ávölum hæðum, og lágum klettum við sjó. Við sjáum yfir þær hæðir ofan í Hvalvatnsfjörð, ofan í hinn breiða dalbotn með Hvalvatni út við fjörðinn og flæðiengjum með ánni innan við vatnið. Lágur háls algróinn er á milli fjarðardalanna utanverðra. Þetta er ein sveit með 9 bæi, sem standa í þéttbýli nærri sjó, og hinn tíunda nokkru fjær*), en þó eiga flestar jarðirnar mikið land- rými og vel gróið. Yfir þessu lága, gróna landi á háls- um og dalbotnum rísa einstakir hamratindar. Þar heita fjöll Háaþóra og Lágaþóra, Lútur, Darri og Dýjahnjúk- ur, öll vestan Hvalvatnsfjarðar, en þrýstin og mikil hamrafjöll eru austan við fjörðinn, Hnausafjall og Bjarnarfjall. Nöfn tindanna minna á tröllaheiti. Okkur dettur í hug, að tvenn tröllahjón séu hér á ferð: Lútur *) Háagerði var hinn ellefti bær í Fjörðum, hjáleiga frá Þönglabakka, byggt skamma hríð á 19. öld og aftur á 20. öld fá ár. Útsýn yfir hinn grösuga Keflavikurdal. 52 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.