Heima er bezt - 01.02.1963, Side 18

Heima er bezt - 01.02.1963, Side 18
arblað og fékk ýmsa til þess að rita í blaðið bæði í ljóð- um og í óbundnu máli. — „Eftir að sr. Arni flutti til Grenivíkur, kom þann oft „norður í Fjörðuna“ og stundum með hóp skemmtiferðafólks úr Höfðahverfi. Það var eins og hann kæmi alltaf með sólskin með sér,“ segir Theodór Friðriksson. Síðasti prestur á Þönglabakka var sr. Sigurður Jóns- son, hann kom þangað ungur og nýkvæntur 1893. Kona hans var bróðurdóttir Hallgríms biskups Sveinssonar. Þessi hjón komu frá gjörólíku umhverfi og lífsvenjum, en unnu sér miklar vinsældir. Þau sátu á Þönglabakka til 1902. Oft bjuggu á Þönglabakka bændur og útgerð- armenn með prestinum. Einna kunnastur þeirra var Guðmundur, sonur Hákarla-Jörundar úr Hrísey. En Jörundur var upprunninn úr Höfðahverfi og hóf það- an sína frægu sjómennsku, er mikil hamingja og aflasæld fylgdi. Guðmundur rak um skeið þilskipaútgerð frá Þönglabakka. Eftir daga sr. Sigurðar á Þönglabakka var jafnan búið þar af bændum til 1944, að þaðan fluttist Jóhannes Kristinsson, svo sem síðar mun sagt. Arnareyri. Skömm leið og greið er yfir nesið miUi fjarðanna frá Þönglabakka að Arnareyri, sem stendur við vesturhom Hvalvatnsfjarðar á lágum sjávarbakka. Eyri var jörðin oftast kölluð. Hvalvatn er eitt hinna mörgu „hópvatna“ íslenzkra, mishátt eftir því, hvort brim fyllir í ósinn eða vatnið rífur sig fram. Mikil veiði af silungi var í vatninu. Selveiði var á Eyri og reki feng- sæll. Landjörðin þótti heldur rýr, og þó hlunnindi væru nokkur, jafnaðist Eyri á engan hátt við sævarjarðirnar í Þorgeirsfirði, Botn og Bakka, enda var hér mildu verra til útgerðar. Eyri var eina jörðin í Fjörðum, sem var í bændaeign, og bjuggu þar margir góðir bændur á 19. öld. Sagt var um Björn, er þar bjó þá langan aldur, að hann hefði aldrei skort hey, mat eða eldivið í sínum búskap, og þótti sjaldgæft á þeim dögum. Síðasti bóndinn á Eyri var Jónatan Stefánsson, og mun hans síðar getið. Jóna- tan fluttist frá Eyri árið 1934 og var þá eitt ár í Vík á Flateyjardal, síðastur bóndi þar, og hvarf síðar til Húsa- víkur. Brekka var lítil jörð, suður og upp í hálsinum ofan við Eyri. Þótti það rýrðarkot sökum mikilla snjóþyngsla. Frá Brekku er fáar sagnir að herma. Jörðin fór í eyði árið 1924. Síðasti bóndi þar var Sigurjón Gíslason. Tindriðastaðir. Áin, sem rennur eftir dal Hvalvatns- fjarðar, nefnist Austurá. Hún hefur mikið og marg- greint kvísla-hm um háfjalladali og smá-jökulskálar allt suður undir brúnir Dalsmynnis. Hún er vatnsmikil með fullt fang framburðar á vorum. Hún hefur fyllt upp sunnan við Hvalvatn og gert þar mjög frjóar flæði- engjar, er hún byltist um í vorflaumum, en liðast síðan á sumrum lygn og djúp milli gróinna bakka. Tindriðastaðir standa á hálshjalla yfir þessum engj- um, utarlega vestan ár; þar er breitt, gróið land að bæj- arbald, inn á milli tindafjallanna. Þetta var hin fríðasta jörð, engið undan velli með nautgæfri gulstör, áin og vatnið fullt af veiði. Skömm og greið leið var þaðan til sjávarjarðanna, Eyrar, Botns og Bakka og vel fært að stunda róðra, þótt gist væri heima á nóttum. Tindriðastaðir voru taldir meðal beztu Fjarðarjarða og fríðasta jörðin. Undu bændur þar vel og lengi. Fyrir aldamótin bjó lengi á Tindriðastöðum Ásmundur Sig- urðsson. Hann var kunnur hagyrðingur og gamansam- ur. Hann orti bragi um ýmsa viðburði í Fjörðum, græskulausa og fyndna, svo til gleði varð í sveitinni. Einn bragur hans náði til allra ungra manna í Grýtu- bakkahreppi. Ásmundur orti einnig rímur, meðal ann- ars Finnbogarímur hins ramma. Aldamótaárið 1900 koma að Tindriðastöðum hjónin Guðlaugur Jónsson og Hólmfríður Tómasdóttir frá Knarrareyri á Flateyjardal. Þau bjuggu þar í 44 ár, og verður þeirra seinna getið. (Framhald.) Ráðning á jólakrossgátu „Heima er bezt“ Hér sjáið þið rétta ráðningu á jólakrossgátu „Heima er bezt“ og þeir, sem hlutu verðlaunin eru þessir: 1. verðlaun. Bækur að verðmæti kr. 500.00 hlaut Guð- mundur Hafsteinsson, Kambsvegi 33, Reykjavík. 2. verðlaun. Bækur að verðmæti kr. 300.00 hlaut Unnur Þórðardóttir, Miðhópi, Víðidal, V.-Hún. 3. verðlaun. Bækur að verðmæti kr. 200.00 hlaut Sigtrygg- ur Jónsson, Samkomugerði, Eyjafirði. Um leið og við óskum sigurvegurunum til hamingju með verðlaunin, viljum við biðja þá vinsamlegast að velja sér bækur fyrir tilteknar upphæðir úr bókaskrá „HEB“, sem fylgdi með nóvemberhefti tímaritsins. Skal þá miðað við HEB-verð bókanna, sem þið veljið ykkur. Vinsamlegast sendið blaðinu línu með nöfnum þeirra bóka, sem þið kjós- ið ykkur. Við vonum að áskrifendur hafi haft gaman af að glíma við þessa krossgátu, og að hún hafi veitt mörgum nokkra dægra- dvöl. Allmargir þeirra, sem sendu ráðningar til blaðsins flösk- uðu á sama orðinu, þ. e. FJÖLDI, sem átti að vera ÓTILI. 54 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.