Heima er bezt - 01.02.1963, Page 23

Heima er bezt - 01.02.1963, Page 23
Ölkelda i Staðarsveit. Snafellsjökull lengst til vinstri. kell prestur á Reynivöllum í Kjós dvaldi við Rauða- mels-ölkeldu mánaðartíma árin 1886 eða 1888. Talið er að Hjálmar skáld frá Bólu hafi verið þar eitt sumar sér til heilsubótar, að ráði Þorleifs í Bjarnar- höfn, sem var dulrænn læknir og margfróður. Var Hjálmar skáld þar í 4—6 vikur að sumarlagi. Það leikur því enginn vafi á því, að menn trúðu fyrrum á lækn- ingamátt ölsins og töldu Rauðamels-ölkeldu og fleiri ölkeldur dýrmæta heilsubrunna. Rauðamels-ölkelda var um aldaraðir bændaeign og fylgdi Rauðamel ytri. Þannig var þetta víst til ársins 1901 að Jón Vídalín, ríkur athafnamaður, eignaðist Rauðamel og ölkelduna með, samkvæmt afsalsbréfi 16. des. 1901. í vikublaðinu Fjallkonan stendur þetta í fréttabréfi 26. janúar 1904: „Jóni Vídalín voru boðnar 100 þús- und krónur í Rauðamels-ölkeldu, en lét hana ekki.“ Jón Vídalín dó árið 1907, án þess að hafa komið í framkvæmd áætlun sinni um Rauðamels-ölkeldu, en vafalaust hefur hann hugsað sér að koma þar á fót heilsuhæli eða hressingarheimili að útlendri fyrirmynd. Jón Jakobsson landsbókavörður var kvæntur systur Jóns Vídalíns og eignuðust þau hjón Rauðamel og Rauðamels-ölkeldu að Jóni Vídalín látnum. Þau hjón selja svo Thor Jensen Rauðamelinn litlu síðar, en und- anskildu ölkelduna, og jafnframt áskildu þau sér rétt til húsbyggingar í nánd við ölkelduna í landi Rauða- mels, og til vegarlagningar að ölkeldunni. Hjónin Jón Jakobsson og kona hans eiga svo Rauða- mels-ölkeldu í 10 ár, en þá selja þau hana árið 1918 ein- hverjum H. P. Halvorsen í Drammen í Noregi. Sölu- verð var 15 þúsund krónur, og bygging heilsuhælis og annarra mannvirkja var háð leyfi landeiganda. H. P. Halvorsen selur svo 25. apríl 1928 einn þriðja ölkeld- unnar Erling Vaagaard í Reykjavík. Sá hluti var svo seldur á uppboði vegna skulda 18. nóv. 1932. Kaupand- inn var brjóstsykurgerðin Nói í Reykjavík. Kaupverð- ið var kr. 200.00. Árið 1948 voru bókfærðir eigendur Rauðamels-öl- keldu: H. P. Halvorsen í Drammen að 2/3 hlutum og brjóstsykurgerðin Nói í Reykjavík að 1/3 hluta. Veit ég ekki betur en þetta sé svo enn þann dag í dag. Mánudaginn 23. janúar 1928 birtist eftirfarandi grein í vikublaðinu ísafold undir fyrirsögninni: RAUÐAMELS-ÖLKELDA. Eins og getið hefur verið hér í blöðum, er hér stadd- ur um þessar mundir eigandi Rauðamels-ölkeldu. Hann heitir Waagaard og var um skeið óðalsbóndi í Röiken í Noregi. Waagaard hefur átt ölkelduna í mörg ár. Jón heit- inn Jakobson átti hana eitt sinn og seldi hana Halvor- sen símaverkfræðingi, er var hér þegar síminn var lagð- ur. Komst hún síðar í eigu Waagaards. Árið 1917 kom til orða í Noregi að stofna félag til þess að gera verzlunarvöru úr ölinu og átti hlutafélagið að vera 1.2 milljónir — ein milljón og tvö hundruð þús- Húshjallurinn yfir ölkeldunni. Heima er bezt 59

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.