Heima er bezt - 01.02.1963, Page 27

Heima er bezt - 01.02.1963, Page 27
Skáldsaga eftir Magneu f rá Kleifum HOLD OG HJARTA ÞRIÐJI HLUTI „Hann er pilturinn minn, en nú er hann úti á sjó, siglir á stóru skipi í útlöndum.“ „Hvenær kemur hann?“ spurði ég í fáfræði minni. Þá dimmdi yfir svip hennar, og hún svaraði lágt: : „Hann kemur í vor.“ Ég gat ekkert sagt. Vissi stúlkan ekki, að henni gat ekki batnað? Ég spurði Pál að því um kvöldið, hvort Sæunn vissi ekki, að hún gæti ekki lifað til vors. „Ég veit ekki, góða mín,“ sagði hann hugsi. „Það er ekki gott að segja. Sæunn er hugrökk stúlka. Eflaust veit hún það, en kærir sig ekki um að neinn viti, að henni sé það kunnugt. Plún vill ekki tala um heilsu sína, reynir að lifa, eins og hún eigi framtíðina fyrir sér.“ „En hvers vegna?“ spurði ég. „Því segir hún það, sem hún veit að er ekki satt?“ „Þannig er það oft, Sóley mín,“ sagði Páll dapur. „Við blekkjum aðra, og jafnvel okkur sjálf. Viljum við ekki trúa sannleikanum, þá Hfum við í voninni um, að það sé ekki sannleikur, þótt innst inni vitum við, að svo sé alveg örugglega.“ Eftir þetta samtal við Pál fór ég upp í herbergi mitt og skreið undir sæng. Nokkru seinna kom Björn inn til mín. Það var eins og hann fyndi á sér, þegar illa lá á mér, og væri þá til staðar að hughreysta mig. Og ég verð að játa, að eftir að hafa skælt upp við hvíta slopp- inn hans eða grófa ullarjakkann, leið mér alltaf miklu betur. Björn reyndi að fullvissa mig um, að það að deyja væri í raun og veru það gleðilegasta, sem fyrir fólk kæmi. Að lifa áfram væri svo miklu, miklu erfiðara, en þess vegna yrði þeir, sem eftir væru, eins og til dæmis ég, að axla sín skinn, bera höfuðið hátt og arka áfram ævibrautina, hvort sem hún yrði löng eða stutt, og helzt að hjálpa sem flestum þeim, sem yrðu manni samferða á lífsbrautinni, skorti þá þrótt til að rísa undir byrði sinni. Allt í einu fann ég til léttis yfir því, að mamma fékk að fara á einu andartaki. Hún hefði ekki getað þolað að verða örkumla eða liggja og bíða eftir dauðanum. Hún hafði ekki haft skap til að þola þrautir og þján- ingar, og nú sé ég hvers vegna mamma gat aldrei án pabba verið. Hann hafði borið byrðar þeirra beggja og haft ánægju af að gera henni lífið létt. Björn horfði alvarlegur á mig og sagði svo: „Sóley. Þú hefur skap og þrek til að hjálpa öðrum, ef þú bara villt. Og þá finnurðu líka tilgang í lífinu. Það er ekki bara leikur.“ Ég vissi ekki, hvað ég átti að segja: Mig grunaði að fyrstu dagana, sem ég var í þessu húsi, og Björn vakti yfir mér, hafi ég sagt ýmislegt, sem honum féll ekki vel að heyra. Ég fann að honum líkaði ekki betur við Hans en Hansi við hann. Á þessu heimili hafði Hans ekki verið nefndur á nafn, nema þegar ég spurði einhvers um hann, og því var venjulega tekið mjög fálega. Það leit helzt út fyrir, að nafn hans væri tabú á heimilinu. Björn stóð upp og gekk út. í dyrunum sneri hann sér við og brosti, þessu sérstæða hlýja og bjarta brosi sínu, sem ljómaði upp ófrítt andlit hans, svo að hann gat nærri orðið fallegur. Svo lagði hann hægt aftur hurðina og fór. III. Svo var það eitt kvöldið, að Hans kom öllum að óvör- um. Um leið og ég lauk upp hurðinni, greip hann mig f fangið. Villt og stjórnlaust kyssti hann mig um allt andlitið. „Hans,“ hvíslaði ég. „Gamli góði Hans!“ En um leið og ég fann gleðina streyma um mig við atlot hans, fann ég til andúðar, — hann var svo alltof æstur og ofsalega kátur. „Ekki þetta, Hans,“ sagði ég og reyndi að losa mig. Einu sinni hafði hann sagt, að ég væri aldrei nema hálfvolg. Þá var hann reiður, en hann hét mér því, að Heima er bezt 63

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.