Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.1963, Qupperneq 32

Heima er bezt - 01.02.1963, Qupperneq 32
TÓLFTI HLUTI Ekki vantaði reiðhestana. En eftir nánari yfirvegun komust menn á aðra skoðun. Það var til dæmis alls ekki víst, að bezta lausn málsins væri sú, að Kristín reiddi annan drenginn á Stjarna sínum. Var hægt að treysta Stjama? Gat hann ekki tekið eitthvert vitleysiskastið, þegar verst stóð á, kannske? Það hafði verið Gvendur á Bakkakoti, sem komið hafði með þessa athugasemd fyrstur manna. Þá höfðu viðstaddir hlegið, þar á meðal Brynjólfur. En svo fóru menn að hugsa um þetta nánar. Nú, og þá fóru að renna á suma tvær grímur, meðal annars á Brynjólf, ekki alveg víst, hvað fyrir kynni að koma. Og auðvitað kom ekki til mála að eiga neitt á hættu, slíkt var ekkert vit. Aftur á móti gerði aldrei neinn athugasemd við það, að Brynjólfur reiddi annan drenginn á Rauð sínum. Það hlaut að vera eins öruggt og nokkuð gat öruggt verið. Eins og nærri má geta, hafði heimilisfólkið á Syðri- Völlum og Efri-Völlum fylgzt með öllum áætlunum og bollaleggingum varðandi þessa skírnarathöfn. Endir- inn á því varð sá, að húsfreyjan á Syðri-Völlum, Ólöf Ólafsdóttir, kom sjálf fram að Bökkunum fimmtudag- inn í fjórtándu vikunni. Með því að þetta var fyrsta veizlan, sem dóttir hennar ætlaði að halda, þótti gömlu konunni ekki úr vegi að fylgjast með öllum undirbún- ingi, enginn skyldi geta fundið neitt að neinu. Og áður en sunnudagurinn rann upp, hafði sú ákvörðun verið tekin, að Ólöf skyldi reiða annan tvíburann fyrir fram- an sig á Skjóna sínum. Að betri niðurstöðu var ekki hægt að komast. Þvi Skjóni var álíka persóna meðal hestanna og Ólöf var meðal mannfólksins, bæði svo traust og stillt og aðgætin á allar lundir og óskeikul, að á betra varð ekki kosið. Þar með var það vandamálið leyst. Messa átti að byrja á Laugum á sunnudag klukkan B8 Heima er bezt tólf á hádegi eins og vera bar. Það var gert ráð fyrir, að veizlufólk kæmi að Bökkunum frá kirkju nokkru eftir nón. Mörgu hafði verið boðið. Auk þess mátti bú- ast við, að einhverjir slæddust með óboðnir, og auðvit- að gat enginn verið að amast við því. Það yrði því vænt- anlega fjölmennt á Bökkunum á sunnudag. Engin furða, þótt mikið væri að snúast þessa dagana. Það þurfti að þrífa allan bæinn, taka til innan húss og utan. Þótti sýnt, að allir gestir kæmust ekki fyrir inni í bænum. Ein- hverstaðar varð að sjá hinum fyrir veizlusal. Var þá skemman nærtækust. Þurfti að rýma þaðan út ýmsum munum og flytja aðra úr stað. Því næst var húsið þrifið eftir föngum. Tók Brynjólfur sig til og sló upp lang- borði eftir endilangri skemmunni og bekkjum beggja vegna. Þarna gátu margir setið til borðs. Höfðu menn í huga, hverjir það skyldu vera. Þó var ekki fullráðið með það enn þá. Margt þurfti að taka til athugunar í því sambandi. Ekki dugði að styggja neinn; til lítils að bjóða fólld í veizlu upp á það. Vinnufólk var sjálfsagt í skemmu; þar þurfti engar vangaveltur. Svo var nokk- uð af hjónafólki, sem enginn vafi gat leikið á, hvar ætti heima. Hið sama mátti segja um stofuna og baðstofuna. í stofu áttu hinir tignustu að vera, auðvitað, svo sem séra Ingimundur og maddama Ragnhildur, hjónin frá Vallabæjunum, hreppstjórinn o. fl. að ógleymdum þeim Bakkahjónum. Þá voru mörg hjón, sem alveg var sjálf- sagt að láta sitja í baðstofu, ekki hægt að fetta fingur út í það. En svo byrjuðu erfiðleikarnir. Nefnilega, hvar átti að draga markalínu milli þeirra ótignustu, sem til greina kæmi að láta sitja í stofu og hinna tignustu í baðstofu? Milli hinna minnst metnu í baðstofu og þeirra, sem helzt voru metnir í skemmu? Þarna var aðalvand- inn. Já, markalínan. Bezt að hrapa ekki að neinu. Og undirbúningur veizlunnar hélt áfram í fleygiferð

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.