Heima er bezt - 01.02.1965, Síða 6

Heima er bezt - 01.02.1965, Síða 6
dóttur á Kvíslarhóli. Mér fannst [ni furðulega iðinn við það. — O-já, segir Einar og hlær, maður var þá á góðum aldri. Þú komst, þó seinna væri, á þann aldurinn líka. Samband okkar Guðnýjar hefur enzt vel. Við gift- um okkur 1909 og höfum átt samleið síðan. Hún er sjö árum yngri en ég; og það kemur sér vel fyrir mig, ekki sízt eins og nú er komið heilsufari mínu. Þú getur ekki borið á móti því, að ég átti skynsamleg erindi að Kvíslarhóli forðum. Kaupreikningur vistarárið 1903—1904. — Hvað tókstu þér fyrir hendur fyrst eftir að þú komst til Húsavíkur? — Ég réði mig t. d. sem vinnumann til Guðrúnar Halldórsdóttur í Vilpu. Hún bjó með sonum sínum Jóni og Karli, en maður hennar, Einar, var látinn. Hún rak landbúnað og gerði út árabát til fiskjar. Viltu sjá kaupreikninginn minn frá gömlu konunni? Og Einar réttir mér pappírsmiða, gulnaðan nokkuð af 60 ára geymslu, en með greinilega skrifuðum reikningi, dags. 16. sept. 1904, undirritaðan af Guðrúnu Halldórsdótt- ur. Að öðru leyti svohljóðandi: „Kaupreikningur Einars Sörenssonar. Ákveðið kaup. Kr. 50.00. Þar af borgað: 1 treyja nýleg................. kr. 8.00 2 buxur nýjar ................. — 7.00 1 nærskyrta úr vaðmáli............ — 4.75 Hestlán út í Mýrarkot .......... — 1.00 Nýjar nærbuxur úr vaðmáli....... — 4.30 Saumur á milliskyrtu ........... — 0.50 Vinnutap í 3 daga (ferð til Eyjafj.) — 6.00 Vantaði upp á árið 3 daga ..... — 6.00 Innborgað í dag ................ — 12.45 Kr. 50.00“ Auk hins ákveðna kaups, sem reikningurinn greinir frá, fékk ég 1/14 af fiskafla, er fékkst á fjögra manna far, þegar ég reri. Skipt var í 7 staði — þar af 3 „dauð- ir hlutir“. Ég fékk með öðrum orðum hlut. Ekki man ég, hvað hann gerði, en það var ekki mikið, því afli var rýr, aðeins róið að sumri og hausti — og stopult. Annars má af kaupreikningnum ráða, að þeir dagar, sem ég fékk frí, voru taldir miklu verðmeiri en hinir. Var þó ekki þarna um neina sérstaka áníðslu að ræða, heldur algengan hátt í viðskiptum húsbænda við hjú, að ég hygg. Aðalatvirma var sjósókn. — Aðalatvinna þín á Húsavík varð svo sjósókn. Er það ekki rétt? — Jú, ég stundaði fyrst og fremst sjómennsku með- an aldurinn leyfði. Ýmist var ég formaður eða vél- gæzlumaður á fiskibátum, sem gengu til veiða héðan frá Húsavík á vertíðum. — Stundaðirðu ekki selaróðra? — Jú, það gerði ég á árabátum, eins og tíðkaðist lengi hér síðari hluta vetrar. Tveir hásetar voru venjulega á báti, auk skyttunnar, sem var um leið formaður. Róið var um Skjálfandaflóa og Axarfjörð. Stundum gist — eða haldið til um skeið — í Náttfaravíkum eða á Banga- stöðum. — Hvað skaustu marga seli í þeim róðrum? — Mér telst svo til að þeir hafi samtals verið um 450. Hér get ég sýnt þér skrá yfir þá og tegundir þeirra. (Tekur blöð upp úr skrifborðsskúffu sinni.) Flest voru þetta vöðuselir. Um 20 blöðruselir og nokkrir kamp- selir. Allmargir landselir. Margt sæmilega vænir selir. Innan um einnig smáselir svo sem: hringanórar og land- kópar. Áuk selanna eru þama á skrá um 150 hnísur og þó nokkrir höfrungar. Flest fékk ég í einum róðri 8 seli. Þeir voru allir vænir og í þann róður fór ekki, nema kvöldstund. Annars var margur selaróðurinn farinn til einskis. Svalt var oft á seltu í þessum vetrarróðrum á opnu bátunum. Strit að róa um víðan sæ langa daga í leit að sel. Ekki sjaldan sem taka þurfti harðan barning í land. Flesta seli fékk ég árið 1912. Þeir voru 44 samtals það árið. Þetta var svo sem ekki mikill gróðavegur. Ef fiskgengd kom á selveiðitímanum, sat fiskveiðin jafnan í fyrirrúmi hjá mér. Hvaða skotvopn ég hafi notað, spyr þú. Selina skaut ég aðallega með haglabyssu nr. 8 og stríðsriffli, sem ég keypti 1904 á 25 krónur. Hann gafst mér vel, þótt hann væri sjónaukalaus. Á fugl — bæði sjófugl og rjúpur — notaði ég Hus- qvarnabyssu nr. 12. Hana notaði ég líka talsvert á sel áður en ég fékk byssuna nr. 8. Mér þótti vænt um þessi áhöld mín og reyndi að hirða þau vel. Byssurnar eru enn þá við lýði, en rifillinn sökk með mótorbát hér á höfninni — og týndist þar með. — Veiztu hvað var lengsta færi, sem þú skaust sel á? — Ekki gjörla. Þó veit ég, að ég skaut sel með högl- um á 28 faðma færi. Og með kúlu skaut ég seli á fær- um, sem voru áreiðanlega á annað hundrað faðmar. — Menn segja, að þú hafir verið fljótastur allra manna hér um slóðir að hefja byssu og ná sigtum. Hvernig lærðir þú þá fimi, svo hæglátur maður, sem þú annars sýnist vera? — Einar svarar: Ekki er alltaf að marka það, sem gengur í sögnum manna á milli. En skotmennska mín, — það, sem hún var — kom af sjálfu sér. Ekki var lík- legt til góðs árangurs að gaufa við að hefja byssuna, þegar selshöfuð kom úr sjó í færi, og ekki var til neins á kvikandi kænu að sigta lengi. Nei, þá var sigurinn undir því kominn að vera maður augabragðsins. Máske átti ég skotheppni mína mest því að þakka, að ég var 50 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.