Heima er bezt - 01.02.1965, Síða 10

Heima er bezt - 01.02.1965, Síða 10
Yið Sigurður höfðum stundað með honum róðra í útsel seinni hluta næstliðins vetrar. Nú var Sigurður kominn heiman frá sér til þess að skreppa með okkur í eyjarnar í eggjaleit, og til að hyggja um leið að land- sel, sem oft hélt sig við eyjarnar um þetta leyti árs, og fengur gat verið í. Að morgni var veður ekki æskilegt, en batnaði þeg- ar kom fram yfir hádegi. Okkur gekk ferðin út vel og landtakan einnig. Við fórum fyrst upp í Lágey, en þar reyndist engin egg vera að fá. Þá ákváðum við að fara yfir í Háey, enda öruggari eggjatekjan þar. Klöngrumst við nú til baka niður af Lágey. Höfðu þeir sína byssuna hvor, faðir minn og Sigurður, því vel gat verið, þegar minnst varði, að selur skyti upp kolli í færi. Við gengum einn á fætur öðrum yfir fjöruklungrið. Sigurður fyrstur, faðir minn næstur og eg síðastur. Skammt var á milli okkar, en allir þurftum við að gæta fóta okkar á stórgrýtinu og horfðum því niður við hvert spor, sem við stigum. Allt í einu kveður við skot og faðir minn hnígur niður. Var þetta svo skyndilegt, að ekki var auðvelt að átta sig á því, hverjar orsakirnar höfðu verið. Sig- urður, sem gekk á undan, sneri baki að okkur feðgum. Eg var að vísu á eftir föður mínum, en hafði horft niður fyrir fætur mér. Helzt virtist okkur atburðurinn hafa gerzt þannig: Faðir minn hélt á byssunni í hægri hendi niður með hlið sér, eins og menn gera oft. Um leið og hann stígur fram af stórum steini, sem myndaði allháa tröppu, virtist sennilegast, að byssubógurinn hefði krækzt fyrir brot í buxnaskálminni, faðir minn lotið áfram, byssu- bógurinn lyftst nógu hátt frá til þess að sprengja hvell- hettuna, þegar hann slapp af buxnabrotinu, og skotið hlaup:'ð inn í vangann og upp í gegnum höfuðið. Ég hef aldrei lifað þungbærari stund en þessa og þær, sem í hönd fóru. Að vísu tókst mér að bera harma mína nokkurn veginn í hljóði. Fann ég og skildi að aðrir voru harðar leiknir en ég. Ekkja föður míns, Sigur- björg Friðbjarnardóttir, með ung börn þeirra fimm að tölu og háöldruð móðir hans, Guðleif Magnúsdóttir, áttu um enn þá sárara að binda. Annars tóku þessar konur báðar atburðinum af mikilli stillingu. Var eins og þær væru undir þetta búnar. Hefðu haft hugboð um, að maðurinn mundi ekki verða langlífur. Báðar voru þær berdreymnar, og hygg ég að af draumum hafi þær verið undirbúnar. Faðir minn var dulur maður, en einhvern tíma hafði hann sagt mér, að hann mundi varla verða gamall. Atti hann helzt, að mér skildist, von á því að farast á sjó. Sigurður á Fjöllum sagði mér frá því eftir að slysið hafði orðið, að sér hefði dottið í hug um morguninn, þegar óálitlegt var veðrið til ferðar út í eyjarnar, að skreppa þá heldur til Húsavíkur þennan dag og vera á uppboði, sem Þórður Guðjohnsen hafði boðað, að hann héldi þann dag, á ým’su úr búi sínu, því hann var að hætta forstjórastarfi við verzlun Orum & Wulffs og ætlaði að flytja af landi brott. Kvaðst Sigurður hafa hreyft þessari hugmynd um uppboðsförina við föður minn, en hann mælt mjög alvarlegur og næstum klökk- ur: „Mig vantar nú ekkert nema líkklæðin mín.“ Feigðargrun sinn býst ég við, að hann hafi haft frá draumum. Draumar. — Hefur þig ekki dreymt drauma, sem hafa rætzt, Einar? Mig minnir, að ég hafi heyrt, að það hafi oft borið við. — Jú, mig dreymdi tíðum fyrr á árum fyrir daglát- um, eins og kallað er. Stundum áttu draumarnir líka lengri aðdraganda. Mig dreymdi t. d. fyrir því, þegar báturinn sökk með okkur feðga við rekaviðarflutninginn. Faðir minn vakti mig einmitt frá þeim draumi til fararinnar. Ég var draumsins vegna tregur að fara á sjóinn að því sinni, og var það nýtt. Hins vegar kom ég mér ekki að því að segja pabba drauminn, og hafði þar af leið- andi engin frambærileg rök við hann fyrir óvilja mín- um, þar sem veðrið var svo gott sem hugsazt gat og ládeyða, eins og áður er getið. Mig dreymdi, að til mín kom kona, sem ég bar ekki kennsli á. Hún tók mig nauðugan í faðm sinn, lukti mig svo sterklega örmum, að ég gat ekki rönd við reist, stakk andliti mínu í hálsakot sitt, svo mér lá við köfnun. Ég kannaðist við líðan mína frá draumnum, þegar við pabbi vorum að berjast við að flota okkur á sokkn- um bátnum að landi. Oft dreymdi mig fyrir góðum afla nóttina áður en hann gafst og einnig dreymdi mig fyrir veiðileysu og ómaksferðum. Ég veit ekki, hvort það var til bóta að fá slíka fyrir- boða, en þeir komu ósjálfrátt. Sjaldan breytti það nokkru, nema geðblænum og eftirvæntingunni. Tíðum tókst ekki að ráða dulmál draumanna rétt fyrr en eftir á. „Fjögur voru andlitin.“ Einn draum skal ég segja þér. Hann er ekki stórbrot- inn, en allskýr. Allir selveiðibátar á Húsavík voru á sjó. Veður var gott. Aðeins einn báturinn fór inn að Sandi. Á honum var formaður Áskell Friðbjarnarson, góðkunnur Hús- víkingur, sem enn er á lífi. Hinir reru út á Flóa. Þar voru þeir á sveimi allan daginn og fengu lítið eða ekkert. Innan frá botni Flóans heyrðust seint um daginn nokkur skot. „Nú hefur Áskell komizt í hann,“ sögðu menn. En þá var orðið of áliðið dags fyrir aðra að leita þangað. Um kvöldið fór ég með mína bátverja til gistingar í Naustavík. Ræddu þeir um, að Áskell mundi hafa mak- 54 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.