Heima er bezt - 01.02.1965, Síða 16

Heima er bezt - 01.02.1965, Síða 16
og rakur. Til þess að fleygja ekki svefnpokunum beint niður í svaðið á gólfinu, rifum við félagar upp brok og sinu í flóanum fyrir neðan kofann og breiddum á gólfið. Það varð bærilegt legurúm, og hvíldist ég þar vel, og naut þess að draga að mér myglukenndan ísúr- an moldarþefinn, sem hefur sinn sérstaka blæ, ef svo mætti segja. Þá var maður í beinni snertingu við mold- ina, og öræfin ósnortin af vélamenningunni. — En nú gistum við félagar þarna í vistlegum skála úr timbri og járni með þilgólfi, borðum og bekkjum, og höfum komið hingað í bílum. En þótt menningin hafi flutt sig inn á heiðina í formi nýrra skála, bílaslóða og breyttra ferðahátta, er heiðin sjálf hin sama og fyrri. Ég gat áðan um, að um hana hefði legið alfaraleið milli landsfjórðunga, þá var Kal- manstunga sennilega einhver gestkvæmasti bær á öllu landinu. Og hvarvetna norður eftir Arnarvatnshæðum, þar sem uppblásturinn hefur ekki máð förin, eru götu- troðningar meiri og fleiri en víðast hvar annars staðar. Þeir eru þögult vitni um liðna tíma. Álftakrókur er kyrrlátur og hlýlegur staður. Skál- inn liggur í móahalli, að baki hans rísa lágir ásahryggir, en framundan er flóasund, með fjölda dýja, sem öllu hallar niður að litlu silungsvatni, Núpavatni. Utsýni er ekki mikið, en viðkunnanlegt er þarna. Annars er nú tími til kominn að kynna lesendum, hverjir þessir ný- tízku útilegumenn eru, sem hér eru samankomnir. Fararstjórinn er, sem fyrr segir Ingvi Þorsteinsson, magister, næsti aðstoðarmaður hans er Einar Gíslason, starfsmaður á Atvinnudeild. Báðir eru þeir þrautreynd- ir útilegumenn, og göngugarpar. Svo eru það strák- amir, þar er Olafur Gíslason, sem nemur málaralist úti í löndum, Friðrik Páll Jónsson nú í 6. bekk Mennta- skólans í Reykjavík, sem báðir voru við kortagerðina 1963 og öllum hnútum kunnugir, og nýsveinarnir Sig- Að loknu dagsverki. urður Richter, náttúrufræðistúdent í Kaupinhöfn, mest- ur allra leiðangursmanna að vexti, Jón Sigurðsson nú í 5. bekk M. R. og forseti þess virðulega félags Fram- tíðarinnar, og Páll Stefánsson, stúdent, sem nú lærir að gera við skemmdar tennur suður í Þýzkalandi, en var annars sérfræðingur leiðangursins í öllu, sem bíla snerti og vélar, enda fullkominn galdramaður í þeim efnum, og svo er að lokum undirritaður grasafræðing- ur leiðangursins. Allir voru þeir förunautarnir vaskir strákar, góðir starfsmenn og félagar. Dagskráin endurtekur sig dag frá degi. Fótaferð er á áttunda tímanum. Einhverjir tveir verða að fara á undan hinum og hefja eldamennsku, hinir geta beðið þangað til sýður á katlinum. Þá er ekki lengur friður. Að lokinni matseld og morgunverði er liðinu skipt. Einar úthlutar hverjum manni loftmyndum þeim, sem hann á að merkja gróðurlendin á, og með því er honum markað vinnusvæði þann daginn. Annars fer kortagerð- in fram á þann hátt, að á loftmyndir, sem teknar hafa verið með þetta starf fyrir augum, eru gróðurlendin mörkuð inn, og síðan mælt eftir þeim. Vitanlega verð- ur oft að slá líkum blettum saman í eitt, því að gróður- lendin eru stundum furðulega samanfléttuð, en mynda- stærðin takmörkuð. Hinsvegar höfum við komizt að þeirri flokkun gróðurlenda, sem er nægileg að ná- kvæmni fyrir þetta starf. Þegar hver hefur fengið sitt verkefni, tvístrast hópurinn. Allir taka nestisböggla með, því nú verður ekki komið í náttstað fyrr en und- ír kvöld, og oft þarf langt að ganga, þar sem bílunum verður ekki við komið, þótt þeir séu að vísu notaðir eins og hægt er. Ganga um Amarvatnsheiði er þreyt- andi, þótt ekki sé brattlendi fyrir að fara, en sinuþóf- inn og kviksyndið í flóunum er þungfært, og margan krókinn þarf að taka fyrir vötn og tjarnir. En strákarn- ir eru ungir og röskir, og láta sér ekki draga það, þótt þeir stundum verði að ganga 20—30 km á dag. Venju- legast er komið heim í náttstað um sjöleytið á kvöldin, sumir koma þó ef til vill nokkru fyrr, en aðrir aftur allmiklu seinna. Siðferðileg skylda hinna fyrstu er að taka til við undirbúning matseldar og að minnsta kosti hafa heitt kaffi til handa þeim, sem næstir koma. Sam- vinna er góð og enginn reynir að skjóta sér undan auka- störfum. Oft verða snögg veðrabrigði, og þegar þokan skell- ur yfir okkur, er ekki um annað að gera en reyna að komast sem fljótast heim í náttstað. Þvi að þarna er villugjarnt ókunnugum, og vandséð hversu áttavitar duga. Einn morguninn leggjum við Ingvi af stað saman. Ætlun okkar er að kanna svæðið suðvestur af Réttar- vatni og vestur um Hvannamó og Svartarhæð. Veður er bjart en dálítil norðankæla. Við förum fyrst af tómi, því að við vitum, að fljótgert er að greina þar gróðurlendin, því að mikið af svæðinu, eru blásnir melar. Tveir förunautar okkar, sem síðast bættust í hópinn Jónas Jónsson landbúnaðarkandidat og Úlfur Árnason menntaskólakennari eru að fást við silungs- veiði í Krókavatni, og okkur þykir fróðlegt að sjá, 60 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.