Heima er bezt - 01.02.1965, Qupperneq 18

Heima er bezt - 01.02.1965, Qupperneq 18
S. B. OLSON: LANDNAMSÞÆTTIR FRIÐRIK A. FRIÐRIKSSON ÞÝDDI (Framhald) Er stundir liðu, varð það mönnum alvarlegt áhyggju- efni, að með hverju nýju sumri varð úrkoman minni en árið áður, svo að alltaf varð örðugra að afla heyja. Með óbilandi þrautseigju og útvegun slægna í öðrum og fjarlægum byggðum tókst þó enn um skeið að ná saman heyjum, sem entust allan hinn langa vetur. Sumarið 1892 bjó byggðarbúum öllum mikla þol- raun. Það rigndi svo sem ekkert og landið þornaði upp. Vötnin hurfu svo að kalla — skruppu saman, svo að lít- ið var annað eftir af þeim en slímug leðja í polli á stærð við eina ekru. Vatn þetta var þvínær ódrekkandi fyrir gripina. Kýrnar geltust og það, sem úr þeim náð- ist, var ekki mannamatur. Allt það hey, sem við feðgar gátum kríað saman heima þetta sumar, var 4 vagnhlöss, á engi, sem á góðu árunum hafði gefið af sér 100 hlöss. En við vorum svo lánsamir að fá leyfi til að setja upp hey um 26 km norður af nýlendunni í byggðarlagi, sem þurrkarnir höfðu ekki leikið eins grátt. Um veturinn urðum við að draga hey þetta á uxasleðum alla þessa löngu leið, oft í 30 gráða frosti og þar yfir. Veturinn eftir þetta erfiða sumar gekk snemma í garð. 7. október 1892 varð byggðarbúum almennt ærið eftirminnilegur dagur. Gerði þá stórhríð, sem stóð í 3 daga. Féll þá snjór, á annað fet á þykkt, og snjókom- unni var samfara hvassviðri, sem að styrkleika gekk fellibyl næst. Rokið skall á um kl. 3.30 e. h., og voru skepnur allar í haga. Tveim stundum síðar var veðrið orðið svo æðisgengið, að vonlaust var að reyna að ná gripunum saman. Er óhætt að segja, að þrír fjórðu alls nautfjár í héraðinu lentu úti í hríðinni. Þegar veðrinu slotaði og leit var hafin, kom í Ijós, að bylurinn hafði hrakið margar hjarðirnar suður yfir eyðikalda sléttuna langar leiðir að heimn. Einn hópur hafði slangrað um 50 km leið, allt fram á dalbrúnina, og rekizt þar á skjól í skógarbelti. Þar hafði fennt yfir hann niðri í hvammi og 7 gripir kafnað í skaflinum. Fréttir bárust um fjölda annarra fjárskaða. Og sum- arið áður hafði gert mikið frost. Nóttina 27. júlí varð frostið 11 stig og eyðilagði kornuppskeruna að mestu. Eigi að síður réðust margir í að þreskja það litla, sem þeir fengu af hveiti, í von um að geta malað það og haft þannig mjölforða til heimilisins yfir veturinn. Einn þeirra var faðir minn. Hann og nágrannar hans tveir hlóðu hver um sig tvístóran kerrukassa með hveitipok- um, sem voru léttir sem dúnn, og tók það þessi þrjú uxadregnu hlöss heila viku að komast til myllunnar í Millwood, um 50 km leið. Þegar þangað kom, tjáði malarinn þeim, að hveitið, sem þeir hefðu komið með, væri til allra hluta gjör- ónýtt. En með því að honum duldist ekki, hvílíkum lamandi vonbrigðum það hlaut að valda, að hreppa slíka útkomu eftir allt baslið, tók hann málið til langr- ar yfirvegunar. Að lokum ákvað' hann að senda þá ekki heim tómhenta, heldur taka hveitihlössin þrjú upp í fimm poka af 4. flokks hveitimjöli á hvern þeirra. Þessi reynsla átti verulegan þátt í því, að vekja óhug, jafn- vel þeim, er kjarkmestir voru. # * # Línur þessar eru ekki ritaðar til þess, að láta líta svo út, að líf okkar þarna væri orðið eintóm vonlaus eymd og afblekking, heldur aðeins til þess, að reyna að lýsa örðugri reynslu fyrstu landnemanna, svo sem hún er mér enn Ijóslifandi í minni af eigin reynd. Veturinn 1892—93 var langur ogstrangur, snjókoman mikil og kuldastigið óslitið undir zero (þ. e. 32 stiga frost á Fahrenheit, um 17.8 á Celsíus). Ekki var annað vatn að hafa handa gripunum en það, sem brætt var úr snjó, og þetta fyrirhafnarsama verk varð að vinna svo að segja á hverju býli. Veturinn þraukaði, kaldur og vægðarlaus, án þess að nokkum tíma gerði hlé, jafn- vel ekki mildari kafla seinni partinn í febrúar, eins og stundum á sér stað. I marzmánuði tók mjög að ganga á fóðurbirgðirnar. Var það nú allra von, að aprílmánuður mundi færa að höndum létti og lausn fóðurvandræðanna. En 27. apríl skall á stórhríð, sem stóð í fulla 3 sólarhringa og var engu síður svæsin en októberbylurinn, sem fyrr getur. Svo að það var ekki fyrr en 1. maí, að aftur sá til sólar og hlákan kom. Þrátt fyrir þetta ægilega áfelli, og þótt ótrúlegt kunni að virðast, varð búpeningstjónið í okkar nýlendu lítið í samanburði við það, sem varð í 62 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.