Heima er bezt - 01.02.1965, Side 25

Heima er bezt - 01.02.1965, Side 25
9—13 ára og 12 unglingar. Unglingarnir komu ekki fyrr en seinni hiuta dagsins, þegar hin börnin fóru heim. Börnin, sem við voru, röðuðu sér í sætin og við spjölluðum dálitla stund við þau. Námsstjórinn talaði vel finnsku, eins og fyrr getur, enda átti hann finnska konu. Hann ávarpaði börnin og sagði þeim frá ferðum okkar. Síðan talaði ég við þau á sænsku, en kennslu- konan stóð hjá mér og túlkaði á finnsku, það sem ég sagði, því að henni var jafnlétt um að tala bæði málin. Námsstjórinn hafði tekið með sér dálítið af brjóst- sykri og súkkulaði, og var þessu nú skipt á milli þeirra. Þetta var þeim mikið nýnæmi og sum börnin höfðu aldrei smakkað sælgæti fyrr. Á stríðsárunum áttu Finn- ar mjög bágt. Fyrst réðust Rússar á þá, og var þá við ofurefli að etja, og svo komu Þjóðverjar inn í landið eins og til að hjálpa þeim, en ekki leið á löngu þar til styrjöld brauzt út milli Finna og Þjóðverja og í raun og veru hernámu Þjóðverjar Norður-Finnland. Þegar ég kom heim tókst mér að koma til þessara ágætu barna nokkrum kílóum af súkkulaði og brjóstsykri með hjálp Rauða krossins og varð mikill hátíðis- og gleðidagur í skólanum þegar þessum kílóum var skipt á milli barn- anna. Kennslukonan skrifaði mér ágætt bréf með kveðj- um frá börnunum og skólinn sendi mér myndabók af finnskum listaverkum, höggmyndum og málverkum. Varð mér þetta allt til mikillar ánægju. Þegar við, sænski námsstjórinn og ég, vorum að út- býta sælgætinu eftir að við höfðum ávarpað börnin, þá vildu þau öll fá að standa upp og þakka gjafirnar. — Stúlkurnar komu fyrst fram, hver á eftir annarri, þökk- uðu fyrir sig með handabandi og hneigðu sig djúpt og fallega og á eftir komu drengirnir í röð. Þeir tóku þétt í hendina, slógu saman hælunum, stóðu teinréttir og báru höndina upp að gagnauganu eins og þegar lög- regluþjónar heilsa. Það var broslegt að sjá litlu snáð- ana sjö og átta ára setja á sig merkissvip um leið og þeir kvöddu eins og þaulæfðir hermenn eða lögreglu- menn. — Við settumst svo að kaffidrykkju inni í íbúð kennslukonunnar. Eldri börnin fengu þá að fara heim til sín en þau yngri biðu. Á meðan við drukkum kaffið, sagði kennslukonan okkur frá ýmsu, sem á dagana hafði drifið stríðsárin. Hún var gift og átti 4 börn og var það yngsta tveggja ára. Bújörð átti hún þarna skammt frá, en á meðan skólinn stóð yfir, bjó hún í skólahúsinu. Hún hafði kennt ein við skólann í vetur og sóttu skólann alls 43 börn og 12 unglingar. Hún sagðist hafa átt mjög erfitt ein með allan þennan hóp, en Finnland yrði allt að spara til að geta greitt stríðsskuldimar. Allt var þarna fátæklegt en mjög hreinlegt. Húsið var allstórt, bjálka- byggt. Þessi bjálkabyggðu hús eru hlaðin upp úr gild- um, tilhöggnum trjám og þau greypt saman á hornum hússins. Þakið á húsinu var málað rautt, en bjálkarnir voru áklæddir að utan, en þéttað milli þeirra með tjöru- hampi, eins og á skipssúð. Að innan voru bjálkarnir líka óklæddir og ómálaðir á göngum og í anddyri, en hurðir, dyrakarmar og gluggar voru málaðir. Þegar Þjóðverjar neyddust til að yfirgefa þetta her- námssvæði í Norður-Finnlandi kveiktu þeir í öllum sveitabæjum á stóru svæði í Torne-dalnum, en þessi sveit, sem skólinn var í, hafði sloppið betur en flestar aðrar sveitir á þessu svæði. Var það af því að liðsfor- inginn, sem þarna stjórnaði eyðileggingunni, var hlynntur Finnum og gat gabbað yfirforingjann með því að ltveikja fyrst í timburhlöðum og hálfónýtu rusli við sögunarverksmiðjurnar, og þegar reykinn lagði yfir þessa þéttbýlu sveit, hélt yfirforinginn að þar stæði hvert hús í björtu báli og flýtti sér í burtu. Eg sagði frá því fyrr í þessum þætti að fyrir okkur hefði legið heimboð í barnaskólanum til lyfsala-hjóna rétt hjá skólanum og í héraðsskóla um 10 km í burtu. Við fórum fyrst að heimsækja lyfsalahjónin. Húsbónd- inn talaði og skildi sænsku, af því að hann hafði verið mörg ár í Álandseyjunum, en þar er sænska töluð engu minna en finnska. Frúin var mjög gestrisin og sýndi mér allt innan húss, en hvorugt okkar skildi eitt ein- asta orð, sem hitt sagði, svo að samtalið var ekki annað en höfuðhneigingar, bendingar og bros. — Allir íslend- ingar hafa heyrt rætt um Guðbrandarbiblíu, sem Guð- brandur biskup gaf út 1584, og margir hafa líka séð þennan kjörgrip. En hjá þessum lyfsalahjónum sá ég gamla sænska biblíu, sem var út gefin 1574, eða rétt- um 10 árum fyrr en Guðbrandarbiblía, og þessi sænska biblía var svo lík í ytri sniðum Guðbrandarbiblíu, að maður hlaut að veita því eftirtekt. Ef til vill hefur Guðbrandur biskup haft þessa sænsku biblíu til fyrir- myndar með hin ytri snið. Nú fór að líða á daginn. Við fengum okkur bifreið og heimsóttum héraðsskólann og var tekið þar opnum örmum, og síðan ókum við aftur að finnsku tollstöð- inn. Þar ætlaði litli vélbáturinn að vera til taks að ferja okkur yfir fljótið kl. 8 um kvöldið. Við komum þarna á réttum tíma og kvöddum okkar ágæta bílstjóra. En þá var komið babb í bátinn. Vélin vildi ekki fara í gang. Við létum þetta ekki spilla gleði okkar og fórum nú að líta í kringum okkur þarna á fljótsbakkanum. Þarna var ákaflega þéttbýlt en býlin lítil. Sól var enn hátt á lofti, þar sem við vorum hér um 120 km fyrir norðan pólarbaug. Ekki bærðist hár á höfði og hin mikla elfur leið straumlygn og hljóðlaust fram á leið sinni til hafs. — Enn þokaðist trjáflotinn niður fljótið. Þúsundir þúsunda af trjám flytur þessi mikla móða úr háfjöllum Svíþjóðar niður í sögunar- verksmiðjurnar. Farið er að líða á kvöldið, en enn þá eru margir menn að vinna við trjáviðinn í ánni á litlum kænum. Þeir tengja stærstu trén saman með köðlum og keðjum og mynda í víkurn og vogum eins og rétt eða girðingar, og stýra svo smærri trjánum þarna inn. Þessir menn eru þreytulegir í gauðslitnum flíkum, en þeir virðast hafa krafta í kögglum og kunna vel til verka. Enn megum við bíða lengi, en hér er friðsælt og kvöldfagurt. Við göngum heim undir næstu bæi. Hér eru bæirnir hver hjá öðrum og fólkið að sinna kvöld- Heima er bezt 69

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.