Heima er bezt - 01.02.1965, Side 33
NOTIÐ AUGUN - SJÁIÐ MUNINN
á myndunum tveim og vinniá ATLAS frystikistu
eáa kæliskáp aá verámæti kr. 15.200.00
í þessu hefti birtum við annan þátt getraunarinnar
fyrir fasta áskrifendur „Heima er bezt“ um hina
glæsilegu ATLAS frystikistu, eða ef sigurvegarinn
óskar heldur, hinn ágæta ATLAS kæliskáp.
Þrautina sem þið eigið að glíma við, sjáið þið hér
fyrir neðan, tvær myndir sem við fyrstu sýn virð-
ast vera nákvæmlega eins, en ef betur er að gáð kem-
ur í ljós að á neðri myndina vantar 5 atriði sem eru
á efri myndinni. Og þrautin er þá í því fólgin, að
segja til um hvaða 5 atriði þetta eru, sem vantar á
neðri myndina.
Eins og áður hefur verið skýrt frá, þá nær þessi get-
raun yfir 5 tölublöð, og ráðningarnar á ekki að senda
til blaðsins fyrr en heildargetrauninni er lokið. Og
sá, sem verður svo heppinn að sigra í getrauninni
getur valið um hvort honum verður send hin glæsi-
lega frystikista eða ATLAS kæliskápur að eigin vali,
að verðmæti allt að kr. 13.200.00. Þetta verður ein-
mitt um hásumarið, þegar mest hætta er á að mat-
væli eyðileggist af hita, og þegar þið hafið svo auk
þess möguleika til að frysta sjálf alls kyns grænmeti
og ber, og síðan þegar haustið kemur með sláturtíð-
inni, getið þið líka sjálf fryst sláturvörurnar, sem
þýðir það, að hægt er að kaupa meira magn í einu
á lægra verði.
Heima er bezt 77