Heima er bezt - 01.02.1965, Blaðsíða 35

Heima er bezt - 01.02.1965, Blaðsíða 35
361. Garðstjórinn hefir skjótt komið undir sig fótunum aftur og nær mér í nokkrum stökkum. Hann þrífur í mig með sterkri krumlu sinni og teymir mig út úr húsinu og í áttina að gömlu stein- húsi. 362. Hann dregur mig með sér upp brattan og brakandi stiga, sem liggur upp í aðra hæð hússins. Þar opnar hann þimgar dyr og ýtir mér inn í eins konar fangaklefa og hvæsir að mér: „Strjúktu nú bara, ef þú geturl“ 363. Svo skellir hann hurðinni aftur á eftir sér og aflæsir henni vandlega. Svo heyri ég fótatak hans ofan stigann. Eg fer nú að litast um og aðgæta eins konar skjá glugga hátt uppi á veggnum. 364. Skyldi ég geta komist út þarna hugsa ég. Eg klöngrast þarna upp, og kemst brátt að því, að ekki er til þess að hugsa að komast þarna út. Sterk járn- stöng girðir fyrir alla undankomu. 365. Meðan ég stend þarna við glugg- ann og velti málinu fyrir mér, sé ég að garðstjórinn allt í einu skundar af stað eftir stíg sem liggur inn í skóginn umhverfis þetta gamla býli. 366. Ég bíð þess að garðstjórinn sé kominn úr kallfæri og blístra síðan út um gluggann til Mikka. Ekki líður á löngu, þar til Mikki birtist fyrir utan, kátur og smágjammandi. 367. Ég hripa á miða stutt bréf til Serkis: — „Ég er innilokaður í gömlu húsi. Fylgdu Mikka! Hjálpaðu mér að komast héðan út úr þessu fangelsi!" Ég brýt saman blaðið og fleygi því út til Mikka. 368. Flýtt’ér nú til Serkis með bréfið, segi ég hátt. Heyrirðu það! Serkir á að fá það! Mikki skilur mig fyllilega. Hann þrífur bréfið með tönnunum og þýtur af stað eins og byssubrenndur skolli. 369. í leik okkar höfum við Serkir oft sent Mikka með boð og bréf okkar á milli. Hann er því vel vanur slíkum sendingum og leysir þær vel og dyggilega af trýni eins og fulltaminn sendil-hund- ur.

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.