Heima er bezt - 01.01.1966, Side 6

Heima er bezt - 01.01.1966, Side 6
Nýjársdagur. Engir tveir dagar ársins bera nákvæm- lega sama svipmót. Þótt oss þyki þeir allir falla í sama farvegi gráa hversdagsleikans, eru þeir samt hver með sínum hætti. Einn er þó sá dagur ársins, sem tvímæla- laust sker sig úr hópnum, nýjársdagurinn. Hann er fast- mótaður í hug vorn. Dagur nýs tíma, sem knýr oss bæði til að horfa til baka, en einkum þó til að líta fram á við. Skyggnast um, hvað hið nýja ár kunni að bera í skauti sínu fyrir oss sjálfa, þjóð vora og ef til vill heiminn allan. Líf vor flestra er svo jafnlynt, að vér væntum naum- ast mikilla byltinga eða breytinga á því, þótt nýtt ár berji að dyrum. Þó er því misjafnt farið eftir því hvar á ævinni vér erum stödd, eða hvað vér höfum fyrir stafni. Æskumaðurinn, með fangið fullt af vonum og draumum, horfir fram með bjartsýni og óþreyju. Hon- um þykir sem tíminn þokist ekkert úr stað, og honum svellur móður í brjósti að fá fleygt sér inn í hringiðu lífsins. A miðjum aldri verður manninum mest hugsað um störf sín, hversu hann megi halda í horfinu og helzt afkasta ögn meiru en á liðnu ári, en þó fyrst af öllu að sjá sér og sínu farborða. En með ellinni verður nýjárs- dagurinn þó fyrst fyrir alvöru áminning um að fram- tíðin hefur enn styzt um eitt ár. Að tíminn líður óð- fluga frá öllum óleystu verkefnunum. Þá minnist mað- urinn óþreyju og hraða æskuáranna, og hann mundi, ef hann gæti bjóða: Tími stattu kyrr. En hann fær jafnlítt stöðvað hjól tímans og æskumaðurinn hraðað rás hans, hversu fegnir sem þeir vildu. Allir stöndum vér jafn magnþrota gegn tímans straumi. Hið eina sem oss er gefið vald á, er að hagnýta oss hina líðandi stund. Liðna árið, eða stundin, er runnið úr greipum vorum, og vér fáum það aldrei aftur í hendur. Ef til vill getum vér bætt eitthvað úr misfellum þess og vanrækslu, en liðnu stundina eignumst vér aldrei. En árið, sem fram undan er hefur enn ekki gengið oss í greipar, og gerir það ekki, nema frá augnabliki til augnabliks. Og vér vitum aldrei hvenær sólin sezt að fullu. Þess vegna er líðandi stundin hið eina, sem vér ráðum yfir, og árangur ævi vorrar háður því, að vér notum hana með kostgæfni. Aldrei verður oss þetta ljósara en á nýjársdegi. Þá koma allar ónotuðu stundir liðna ársins fram fyrir oss líkt og kvikmynd á tjaldi. En liðni tíminn er ekki einungis tími hins neikvæða. Hitt, sem vel hefur tekizt, kemur einnig fram á tjaldi áramótanna. Og samanburðurinn hvetur oss til þess, að fækka dökku blettunum á komandi ári. En kvikmynd liðna ársins minnir oss á, ef vér erum hrein- skilnir við sjálfa oss, að mistökin, sem vér á líðandi stund kennum öðrum eða umhverfinu, eiga flest rætur að rekja til oss sjálfra, og þess, að vér kunnum ekki að taka hina líðandi stund réttum tökum. Nýjársdagurinn líður að kvöldi eins og aðrir dagar. Ef til vill þykir oss að kvöldi, sem hann hafi um fátt verið frábrugðinn bræðrum sínum. Einn atburður þess dags ætti þó að vera mótaður í hug hvers einasta íslend- ings. Það er ávarp forseta lands vors, sem oss er árlega flutt, og í raun réttri ætti það að vera allsherjar guðs- þjónusta og bænarstund hvers þjóðfélagsþegns. Það er þó ekki einkum hin spakvitru og hófsömu orð vors virðulega forseta, sem þessu valda, þótt þau að vísu bendi þjóðinni fram á leið, og séu oss um leið áminn- ing og ábending um það sem kemur, heldur er það, að þetta ávarp minnir oss á það, sem hverjum íslendingi ætti að vera dýrmætast, frelsi og sjálfstæði þjóðar vorr- ar. Sjálfstæði vort er ungt, það er sem teinungur ný- sprottinn úr moldu, og ekki hefur enn náð að búa sig gegn hörkum og hretviðrum. Þegar vér gróðursetjum ungt tré, teljum vér það skyldu vora að hlúa að því og skýla því fyrir hörðustu áfellunum og styðja að vaxtar- hraða þess. Vér vitum að vísu, að vér getum ekki knú- ið fram örari vöxt en náttúran sjálf leyfir, en vér get- um stuðlað að því, að upp vaxi beinvaxinn meiður en ekki korpin krækla. Á sjálfstæði voru mæða ýmsir stormar, og yfir það geta skollið hretviðri, þegar minnst varir. Þá fær ekkert borgið því, nema árvekni og ein- hugur alþjóðar. Vér tölum oft um frelsi og hyllum það í orði. En er víst að vér gerum oss ljóst í hverju frelsið er fólgið, og hvort vér lítum ekki á það sem sjálfsagð- an hlut, jafn náttúrlegan og það að vér drögum and- ann? Ef svo skyldi vera er vá fyrir dyrum. En hvað sem um það er, þá er víst, að í hjarta voru æskjum vér þess allir að njóta þess sjálfstæðis að ráða málum vor- um án íhlutunar annarra, og frelsis einstaklingsins til orða og athafna innan þeirra hafta, sem lýðræðislegt þjóðskipulag setur. Það frelsi viljum vér vernda og þroska, þótt oss gleymist það stundum. Árlegt ávarp forseta vors á að minna oss á þessa skyldu og nauðsyn. Það er, eins og embætti hans, tákn sameiningar og sjálf- 2 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.