Heima er bezt - 01.01.1966, Side 8
- -yTGEFANDi þessa rits hefur óskað þess, að ég skrif-
aði stutta grein með forsíðumynd af Gísla
J bónda Magnússyni í Eyhildarholti. Vil ég
N y byrja á því að gera nokkra grein fyrir ætt
hans og uppvexti.
Hann fæddist að Frostastöðum í Skagafirði 25. marz
1893, sonur Magnúss hreppstjóra Gíslasonar og konu
hans Kristínar Guðmundsdóttur frá Gröf í Laxárdal í
Dölum vestur. Voru þau bæði vel gefin sæmdarhjón og
endur Eiríks Bjamasonar, samtímamanns og nágranna
Skúla Magnússonar, er hann bjó á Ökrum í Skagafirði.
Eiríkur keypti Djúpadal á 4. tug 18. aldar og bjó þar
stórbúi. Hefur jörðin haldizt í eign sömu ættar æ síðan.
Eru niðjar Eiríks gamla mjög fjölmennir í Skagafirði
og víðar. Hefur þeim haldizt vel á arfi ættarinnar. Þar
era margir gildir búhöldar, hjarðelskir menn, bundnir
við torfuna, sömuleiðis miklir gáfumenn, hneigðir fyrir
þjóðleg fræði, sögu og bókmenntir. Sonarsynir Eiríks
Gisli Magnússon á yngri árum.
Kolbeinn Kristinsson:
Gísli
Ma gnússon
t Eyhilaarholti
bjuggu rausnarbúi, einu hinu mesta í Skagafirði á þeim
tíma. Var Kristín fyrirkona og skörungur, sem naut sín
vel, er hún gegndi miklu hlutverki. Ekki var Magnúsi
þeirra kosta vant, þótt hann væri svo skapi farinn, að
hann kysi heldur að annast bú sitt á hljóðláta vísu og
veita góðum málum öruggt lið á hvaða sviði sem var,
heldur en að standa í fremstu víglínu, er mál voru sótt
og varin með hörku á opinberum vettvangi.
Ætt Kristínar er ég lítt kunnugur. Þó má þess geta,
að föðurmóðir hennar var Helga Magnúsdóttir, bónda
í Laxárdal í Strandasýslu (Magnússonar), sem var gild-
ur bóndi' og merkur maður. Frá honum er rakin Laxár-
dalsætt. Var Kristín því í þremenningsfrændsemi við
Guðna bónda á Óspaksstöðum, föður sr. Jóns Guðna-
sonar. En sr. Brynjólfur Magnússon á Stað í Grinda-
vík og Kristín voru bræðrabörn. Magnús á Frostastöð-
um var Djúpdælingur að ætt, en svo nefni ég afkom-
gamla í Djúpadal voru þeir Hannes prestur á Ríp og
Eiríkur prestur á Staðarbakka, Bjamasynir. Var móðir
þeirra Sigríður dóttir Jóns prests í Saurbæ Sigfússon-
ar. Báðir vora þeir bræður vel gefnir, þótt ólíkir væru
um margt. Sr. Eiríkur var búhöldur mikill, góður ræðu-
maður og féll vel í farveg stéttar sinnar. Ekki er talið,
að sr. Hannes hafi þurft af neinum lið að þiggja til
ræðugerðar. Var hann gáfumaður, skáldmæltur og mál-
snjall, þótt honum sæist stundum yfir prestlega hátt-
vísi. Magnús á Frostastöðum var afkomandi sr. Hann-
esar í báðar ættir, því að foreldrar Magnúss voru dótt-
urbörn Hannesar prests.
Sonur sr. Eiríks var Jón prestur á Undornfelli, er
kvæntist Björgu Benediktsdóttur Vídalín Halldórsson-
ar. Afkomandi þeirra er próf. Sigurður Nordal. Eirík-
ur bróðir sr. Jóns fluttist í átthagana í Skagafirði og bjó
í Djúpadal rismiklu búi. Kunnastir afkomenda hans eru:
4 Heima er bezt