Heima er bezt - 01.01.1966, Síða 9

Heima er bezt - 01.01.1966, Síða 9
Jón Sigurðsson, fyrrum alþingismaður á Reynisstað, Stefán Vagnsson frá Hjaltastöðum (nú látinn), Stefán Jónsson, fræðimaður á Höskuldsstöðum og Jón bóndi Eiríksson í Djúpadal. Ungur að árum sótti Gísli til náms í Lærðaskóla Reykjavíkur. Reyndist hann prýðilegur námsmaður. Einkum voru honum öll tungumál auðnumin og eftir- sótt námsefni. 16 ára að aldri lauk hann þar gagnfræða- í Noregi vann hann við fjárræktarbúin á Hodne og Edoj, einnig við fjárbú á Skotlandi. Hafði hann ungur fengið áhuga á sauðfjárrækt. Gafst honum því á þess- um erlendu fjárbúum aukin þekking og víðsýni á rækt- un sauðfjár. Að för þessari lokinni hvarf Gísli heim og vann að búi föður síns og vann sleitulaust, unz hann fluttist að Eyhildarholti 1923 og hefur búið þar síðan. Hafði hann nokkru áður kvænzt frændkonu sinni ( af ætt Djúp- Eyhildarholt. prófi. Hef ég hvorki orð hans né annarra fyrir því, þótt ég sé þess fullviss, að þá hafi hann staðið á alvarlegum vegamótum. Að stúdentsprófi loknu myndi honum hafa orðið sjálfvalið framhaldsnám í málvísindum, sennilega hefði þá leið hans legið til norrænunáms við Hafnar- háskóla og braut hans þar með verið mörkuð á því sviði í aðalatriðum. Tel ég mig víst vita, að námgirni • og framavonir hafi þá vakið ungum manni fögur hill- ingalönd. En Gísli var ekki úr einu efni gerður. Hins vegar kallaði fjörðurinn hans, átthagarnir, moldin, bú- smalinn og óleystu verkefnin heima á starfskrafta hans. Og Skagafjörður sigraði. Hann hlaut að sigra. Gísli mátti ekki hverfa héraðinu og héraðið mátti ekki missa hann. Nú sneri hann sér að búnaðarnámi, las búfræði á Hólum og lauk þar námi, stundaði verklegt nám hjá Ræktunarfélagi Norðurlands á Akureyri. Skömmu síð- ar dvaldi hann 2 ár í Noregi, Danmörku og Skotlandi. dæla), Guðrúnu Sveinsdóttur, gáfaðri gæðakonu, sem jafnan hefur reynzt því betur sem meir hefur verið í húfi. Er hún ágæt húsfreyja og móðir, gædd næmum skilningi á styrk manns síns og veikleika. Mun Gísli manna bezt kunna að meta, hversu mikinn þátt hún á í verkum hans og viðgangi. Lifa 11 börn þeirra, 2 dætur og 9 synir. ÖIl vel gefin og mannvæn. Búa sumir syn- irnir með föður sínum í Eyhildarholti. Hinir eru bænd- ur í Blönduhlíð. Þótt Gísli hafi að mörgu unnið öðru en bóndastarf- inu, hefur hann fram til síðustu ára unnið sem grjót- páll fyrir búi sínu. Er því næstum dularfullt, hve víð- lesinn hann er, fyrst og fremst í innlendum bókmennt- um, fomum og nýjum, og jafnframt skandinaviskum og enskum bókmenntum. Skáldmenntir allra höfuð- skálda þessara þjóða hefur hann kynnt sér rækilega. Jafnan hefur hann búið góðu og gagnsömu búi. Sauð- Heima er bezt 5

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.