Heima er bezt - 01.01.1966, Page 14

Heima er bezt - 01.01.1966, Page 14
vinnur hópur jarðfræðinga sama verk á tveimur man- uðum og tekið hefði álíka hóp að minnsta kosti þrjú missiri fyrir örfáum árum. Enginn dagur líður svo, ef veður leyfir, að ekki fljúgi flugvélar eða þyrlur til rannsókna út frá rannsókna- stöðvunum. Það er ekki óvenjulegt, að 12 flugvélar séu samtímis á lofti. Sumar þeirra flytja vistir og farangur til stöðvarinnar á skautinu sjálfu, aðrar vinna að land- mælingum, og enn aðrar kanna landið til leiðbeiningar flokkum gangandi manna, og snertilenda, til þess að skilja eftir eða sækja hópa vísindamanna. Snertilending, segir Bent Johnson flugmaður er það, þegar flugmaður- inn lætur vélina snerta jörðina til þess að kanna, hvort fært sé að lenda, eða þá að fara til skollans með allt sam- an, ef svo ólendandi er. Þessi orð gefa hugmynd um starfsandann, sem þarna ríkir. Frá því í október til marzmánaðar er bjart allan sól- arhringinn, og þá er unnið sleitulaust í 12 stunda vökt- um. í stöðinni við Mc-Murdo, þar sem greinarhöfund- ur dvaldist, voru allir á kreiki og teknir til starfa kl. 2 að morgni. Snjóbíll fór út, til að sækja snjó til bræðslu, því að annað vatn er þar ekki að hafa. í slóð hans fylgdi dráttarvél með sleða hlaðinn byggingarefni, til að reisa aðra rannsóknarstöð úr varanlegra efni en hingað til hefur verið notað. Til þess er ætlast, að nýju húsin end- ist að minnsta kosti í 30 ár. En gamla stöðin við Mc- Murdo, sem í upphafi var reist sem bráðabirgðastöð, er gerð úr krossvið og tjöldum. Nýju húsin verða raf- hituð frá kjarnorkurafstöð, sem þar verður komið upp. í þeim verður rennandi vatn, bæði heitt og kalt, er því dælt úr sjónum og afseltað. Þar verða skápar til þess að halda matvælum ófrosnum. Þarna á stöðinni var Arthur De Vries frá Stanford háskóla að útbúa gildru fyrir fiska, sem gerir kleift að kanna lífshætti þeirra. Hann hafði náð í lifandi sel og gert á hann eins konar aktygi, og við þau er festur endi á neti. Síðan er selnum sleppt niður um gat á ísnum. Næsta öndunarhola liggur um mílufjórðung þaðan. Þegar selurinn kemur þar upp, til að anda er hann grip- inn og aktygjunum sprett af honum, og netið dregið upp. Þarna hafði það gerzt, sem allir höfðu talið ókleift, að leggja net og draga það langa leið undir 10 feta þykk- um ís, og það allt á meðan De Vries sat rólegur heima í stöð og reykti úr pípu sinni. Fjórir menn leggja af stað í þyrlu. Tveir þeirra, sem kalla sig sjávarkúreka, eiga að merkja seli, til þess að rannsaka aldur þeirra og ferðir. Hinir tveir eiga að kanna, hvernig það megi vera, að mörgæsirnar rati svo greiðlega um hinar endalausu auðnir, þar sem engin kcnnileiti sjást. Þeir hafa með sér lítil senditæki, sem fest eru við fuglana, og eftir merkjum, sem þau gefa frá sér, er unnt að fylgja ferðum mörgæsanna. Á sama tíma og þetta gerðist voru 10 menn í þrem- ur dráttarsleðum að leggja af stað frá Suðurskautinu í tveggja mánaða ferðalag. Áætlað er að þeir fari um 900 mílna vegalengd í ótal krákustígum um áður ókannað land. En þeim er ætlað að ná til hinnar yfirgefnu rúss- nesku stöðvar, sem liggur þar á meginlandinu, sem lengst er til sjávar, þar sem kallað hefur verið Ófæru- skautið. Við sjálfa dráttarvagnana eru tengdir flutn- ingavagnar, hlaðnir rannsóknartækjum, sprengiefni og þremur smálestum af matvælum, en innan í hinum geysifyrirferðarmiklu hjólum þeirra er komið fyrir eldsneytisgeymum. Á þessu ári 1964—65 var unnið að yfir 70 vísindaleg- um viðfangsefnum, og hvert þeirra vitanlega margþætt. Eitt af því, sem gerir land þetta svona sérstætt er and- stæða þess við Norðurskautssvæðið. Hér er geysistórt meginland umkringt úthafi, en við norðurskautið er haf lukt landahring. Á Suðurskautssvæðinu hafa menn þannig fast land undir fótum og geta reist þar varan- legar rannsóknarstöðvar, en þurfa ekki að láta sig ber- ast á fljótandi ísjökum. Eitt af merkilegustu viðfangsefnum líffræðinganna á þessum slóðum eru selirnir. Vísindamenn hafa komizt að því, að selir geta stöðvað blóðrásina út í ytra borð líkamans, til þess að halda blóðinu sem bezt að hinum innri líffærum, og þannig treina þeir sér súrefni hvers andardráttar. Með þessum hætti getur Weddel-selur- inn haldið niðri í sér andanum í meira en hálfa klukku- stund, og náð að kafa niður á 1400 feta dýpi. Þá er það talið að selir átti sig undir ísnum með því að gefa frá sér hljóð og nema síðan bergmál þeirra. Eru þeir gædd- ir eins konar lifandi bergmálsmælum. Sum þessara hljóð- merkja eru sögð mjög hljómfögur. Það vakti mjög undrun líffræðinga, þegar þeir kom- ust að því, að Suðuríshafið geymir meiri mergð plantna og dýra en nokkurt haf annað, þótt tegundir þess séu fáar. Vísindamenn, sem bera umhyggju fyrir fæðu- þörf hins sífjölgandi mannkyns, rannsaka nú þetta fyr- irbæri af kappi. Mörg fleiri undur eru það sem Suðurskautslandið lumar á. Ekki sízt er jarðsaga þess furðuleg. Á megin- landi þessu uxu fyrir eina tíð hitabeltisplöntur, bæði tré og jurtir. Þarna hafa fundizt steinrunnir skógar, sem eru um 270 milljón ára gamlir, og um 25 feta þykk steinkolalög eru þar einnig. Fylgilög þeirra eru svo auðug af steingervingum, að líkast er því að flett sé blöðum í myndabók, þegar þau eru brotin upp og könnuð. En þá hljótum vér að spyrja: Er sú loftslagsbreyting, sem orðið hefur síðan þarna uxu frumskógar, varanleg eða einungis tímabundin? Og af hverju getur hún staf- að? Hefur orðið breyting á orku sólarinnar? Eða hef- ur meginlandið flutt sig frá miðbaug jarðar í áttina til skautsins, eða hefur jarðmöndullinn breytt stöðu sinni? Svörin við þessum spurningum snerta oss alla. Vér skulum minnast þess, að umhverfis Suðurskautið eru 90% af öllum ís, sem nú er til á jörðunni. Ef hann bráðnaði skyndilega allur saman, mundi sjórinn hækka um 250 fet um alla jörð, og má þá fara nærri um, hver áhrif það hefði á skipan landa og hafa á jörðinni og aila 10 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.