Heima er bezt - 01.01.1966, Síða 16

Heima er bezt - 01.01.1966, Síða 16
ÞORSTEINN JÓSEPSSON: Vetrarangur á Holtavöréuheiéi M-mÍwv.V.., . .v. . ...V P \ milli Húnaþings og Borgarfjarðarhéraðs liggja víðáttumikil heiðalönd austan frá Langjökli og / vestur að Tröllakirkju. Þau skiptast í þrjár vmegin heiðar: Arnarvatnsheiði austast, Tví- dægra í miðið og Holtavörðuheiði vestast. Oll þessi heiðalönd eru eitt samfellt flæmi, án meiri háttar eða teljandi kennileita og án nokkurra greinilegra landfræðilegra marka. Skiptast þar á hæðadrög og mel- ásar, valllendisdrög, mýrarsund og víðáttumiklir fúa- flóar með hundruðum og þúsundum stöðuvatna, tjarna og polla. Landið er sviplítið og Ijótt ásýndum, víða erf- itt og seinfarið yfirferðar, en fjallasýn mikil og fögur í fjarska. Hæstan ber Eiríksjökul og síðan Langjökul og Strút að austan, en Tröllakirkju að vestan. Áður fyrr lágu reiðgötur eða troðningar á nokkrum stöðum yfir þessar heiðar, en eru nú niðurlagðar að mestu. Áftur á móti hefur akvegur verið lagður yfir eina þessara heiða — Holtavörðuheiði — og þar liggur þjóðvegurinn milli Norður- og Suðurlands nú, Norður- landsvegur kallaður. Fyrstu minningarnar, sem ég á frá Holtavörðuheiði, eru löngu fyrir þann tíma sem akvegur var lagður yfir hana. En þá var póstleið, fjölfarin af ríðandi fólki, — og stundum líka gangandi — flesta hluta ársins. Þó hvað minnst á vetrum, enda veður þá viðsjál og oft umbrota ófærð. í kapphlaupi við Brúnku. Ég var annað hvort 16 eða 17 ára þegar ég fór í fyrsta skipti norður yfir Holtavörðuheiði. Mig minnir að það hafi verið í febrúarmánuði annað hvort 1923 eða 24. Ég var fótgangandi en fékk að sitja á pósthestum frá Foma- hvammi norður yfir heiðina. Erindið var að sækja brúna hryssu, sem faðir minn hafði keypt norður í Miðfirði. Ferðin gekk að öllu leyti að óskum. Ég fékk góð veð- ur og sæmilega færð báðar leiðir. Þó var einhver þæf- ingur á leiðinni suður yfir Holtavörðuheiði. Þess vegna tók ég þann kost að binda beizlið upp á Brúnku og reka hana á undan mér suður heiðina. Það var léttara að láta hana troða slóðina. En þegar komið var suður á heiðina, þar sem hún er hæst og Brúnka sá að Norðurland — hennar gamla heim- kynni var að hverfa — greip hana alt í einu heimþrá. Hún sneri skyndilega við, sveigði út af götunni og tók á sprett áleiðis tjl síns fyrri heima. Þótt ég væri vanur göngum og hlaupum á þessum árum var mér ljóst að ég væri ekki hestfrár. En þarna I l 1 ’-v°V MeL Brúnka tekur sprettinn. 12 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.