Heima er bezt - 01.01.1966, Page 31

Heima er bezt - 01.01.1966, Page 31
fór svo að hátta, og las bænirnar sínar, eins og hún var vön, og bað guð að varðveita pabba sinn og mömmu sína. Um morguninn reis pabbi hennar snemma úr rekkju, gekk beint að hornskápnum í stofunni, opnaði skápinn og ætlaði að fá sér teyg úr flöskunni. En honum brá í brún, er hann sá rauða flaggið í stútnum. Fyrst starði hann undrandi á hættumerkið, en svo rann upp ljós fyrir honum. Hann lét flöskuna aftur á sinn stað, skellti aftur skápnum og sagði við sjálfan sig: „Aldrei framar skal ég snerta þennan drykk.“ Síðan gekk hann aftur inn í svefnherbergið, laut niður að litlu stúlkunni sinni, kyssti hana á rósrauðan vangann og sagði: „Með ráð- snilld þinni hefur þá bjargað okkur öllum. Aldrei skal mamma þín framar þurfa að gráta út af mér.“ Síðan gekk hann glaður út til skyldustarfa sinna. Ég þarf ekld að skýra þessa sögu. Þið skiljið hana öll. Hættumerkið í stútnum gerði kraftaverk. Engin orð hefðu getað sannfært pabba litlu stúlkunnar eins vel og litla, rauða flaggið. Þessi litla 6 ára stúlka fegraði heim- ili sitt og varð hamingjudís pabba og mömmu. Hún var gæfubarn. Stefdn Jónsson. AÉI A. 1'f ►■Wf 1 r~ 1 gofi BeSjJnffi—’ QMQ URLA í bréfi frá Ingveldi Böðvarsdóttur og mörgum fleiri bréfum, hefur verið beðið um ljóðið „Litla sæta Ijúf- an.“ Höfundur ljóðsins er Valgeir Sigurðsson, kenn- ari á Seyðisfirði. Hann er borgfirzkur að ætt, bróður- sonur Stefáns Jónssonar, rithöfundar, en Stefán hefur meðal annars skrifað mikið fyrir börn og unglinga, bæði sögur og Ijóð. Bezt þekkja unglingar söguna um Hjalta litla, sem kom út í 2. útgáfu nú fyrir síðustu jól. Og hér birtist þetta ljúfa ljóð: LITLA SÆTA LJÚFAN. Víða liggja leiðir, löngum útþrá seiðir, margur sinni æsku eyðir úti á köldum sæ. Langt frá heimahögum hef ég mörgum dögum, eytt og æskuárin streyma, en ég skal aldrei, aldrei gleyma blíðri mey, sem bíður heima bjarta nótt í maí. Litla sæta ljúfan góða með ljósa hárið lætur blíðu brosin sín bera rósailm og vín allar stundir út til mín. Litla sæta ljúfan góða með Ijósa hárið, fyrir hana hjartað brann, hún var allra bezta stúlkan, sem ég fann. Hennar hlátur minnir mig á fossanið af hennar munni vil ég teyga sólsldnið, vorsins blær, sem hennar kitlar kinn, er kossinn fyrsti minn. Hennar augu ljóma eins og hafið blátt, ég hef ótrúlega hraðan hjartaslátt. Hún er stúlkan, sem ég einni ann, ég enga betri fann. Valgeir Sigurðsson, kennari, hefur áður ort allmikið af danslaga-ljóðum og gaman-kvæðum, sem þótt hafa ágæt. Hér birti ég með leyfi hans ljóð, sem hann hefur víst ekki gefið nafn, en við þetta ljóð er lag, sem heitir á ensku: „Out of my mind. Annars gæti þetta ljóð vel heitið: Harmagrátur hins vonsvikna. Og hér birtist ljóðið: Flest hefur brugðizt mér og flárátt lífið er. fundið ég get ei neitt, sem gleði með sér ber. Alstaðar duft og hjóm sjá augu mín. Ég er úfinn og grár vegna þín. Ég er úfinn og grár, ég er fölur og fár. Þú, sem forðum varst unnustan mín, þú, sem yfirgafst mig, þótt ég elskaði þig. Ég er úfinn og grár vegna þín. Fátt gat ég boðið þér, sem fémætt talið er, fögur var samt sú stund unz hélztu burt frá mér. Endalaus, myrk og köld er angistin mín. Ég er úfinn og grár vegna þín. Kona austur í Berufirði segist lengi hafa verið hrifin af Einari Kristjánssyni, söngvara, og þó sérstaklega, er hann syngur ljóðið Hamraborgin. Lag við ljóðið er eft- ir Sigvalda Kaldalóns. En nú vill konan vita, hver orti Heima er bezt 27

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.