Heima er bezt - 01.01.1966, Side 36

Heima er bezt - 01.01.1966, Side 36
vera í gær, og ég þá greiða henni kaupið, sem hún átti inni hjá okkur, fyrst hún fór héðan svona óvænt. — Já, það var ágætt, en auðvitað hefði ég séð um kaupgreiðsluna, hefði þess gerzt þörf. Magnúsi lögmanni finnst frásögn konu sinnar svo sannfærandi, að hann grunar ekkert athugavert við brottför Nönnu, en hann hefði kosið að mega kveðja þessa ágætu bústýru sína og þakka henni vel unnin störf á heimilinu, en hann vonar að sér gefist færi á því síð- ar, og svo hugleiðir hann þetta ekki frekar að sinni. En Erla á erfitt með að sætta sig við þessa óvæntu brottför sinnar kæru stallsystur, og hún stendur orð- vana af undrun og hryggð, á meðan foreldrar hennar ræðast við um Nönnu. En strax að því samtali loknu, áður en Erla fær nokkuð sagt eða aðhafzt, segir móðir hennar við hana: — Nú átt þú að vera dugleg og hjálpa mér við heim- ilisstörfin, dóttir góð. Þú hefir bara gott af því og þarft líka að læra slíkt. Byrjaðu nú á því að raða diskunum á borðstofuborðið og berðu svo matinn þangað inn fyrir mig. Erla hlýðir eins og í leiðslu, og nú kemur það sér vel, að hún hefir fengið dálitla þjálfun í húsverkum hjá Nönnu, sem allt leysti af hendi með einstakri smekk- vísi og dugnaði og kenndi Erlu að gera slíkt hið sama. Frú Klara lætur dóttur sína hafa nóg að gera, unz eldhússtörfunum er lokið á þessum degi, og girðir með Iægni fyrir allar óþarfa spurningar viðvíkjandi Nönnu. En rétt áður en Erla gengur irm í herbergi sitt til þess að fara að hátta, afhendir móðir hennar henni sending- una frá Snorra, forkunnarfagran kjól, og segir þá um leið fyrst frá því, að Snorri hafi komið heim sem allra snöggvast rétt eftir hádegið í dag, og skilar kveðju frá honum til þeirra feðginanna, en ræðir heimkomu hans ekkert frekar. Erla tekur við hinni fallegu gjöf bróður síns og dáist að smekkvísi hans, en að þessu sinni gleðst hún samt lítið yfir gjöfinni. Hugur hennar er allur bundinn óskyldu efni. Hún býður foreldrum sínum þegar góða nótt og hraðar sér með kjólinn inn í herbergi sitt og kemur honum þar fyrir í fataskápnum án þess að máta hann á sig. Síðan litast hún um í herberginu döprum augum. Þar hefir allt óvænt og skyndilega breytt um svip. Nanna er horfin, víst fyrir fullt og allt þaðan, hún sem er Erlu eins kær og bezta systir hefði getað orðið. Sár einmanakennd samfara djúpum söknuði gagntekur Erlu. En hún ákveður strax að næstkomandi laugardag, þegar hún hafi lokið starfi sínu í bókabúðinni, skuli hún fara rakleitt í heimsókn til Nönnu, því hún veit heimilisfang hennar í borginni, og sá ásetningur mildar dýpsta sársaukann í sál Erlu. Hún gengur nú að legubekknum og ætlar að leggjast þar til hvíldar, en rekur þá augun í litla bók á náttborð- inu sínu, sem ekki hefir verið þar áður. Erla tekur bókina og Iýkur henni upp. Á fremsta blað er ritað nafn Erlu, kveðja og þökk fyrir samver- una, frá Nönnu. Bókin er Nýja-Testamentið með Davíðs-sálmum aftan við. — Elsku Nanna mín, hvíslar Erla innilega, og tárin leita fram í augu hennar. — Þessa fallegu gjöf skildir þú eftir handa mér. Alla mína ævi skal ég geyma hana og varðveita hana vel til minningar um þig og samveru okkar í sumar. Erla leggst fyrir í legubekknum. Hún flettir upp í Nýja-Testamentinu og les það, sem fyrst mætir aug- um hennar, en það er Davíðs-sálmur 119. 9—10 á þessa leið: — Með hverju getur ungur maður haldið vegi sínum hreinum? — Með því að gefa gaum að orði þínu. Erla margles þessi orð. Henni finnst eins og þau séu töluð til sín og festir þau sér í minni. Nanna kenndi henni að biðja til Guðs í sumar, þegar Erla var örmagna af sorg fyrir alvarlegum veikindum móður sinnar, og sú bæn var vissulega heyrð. Nú gefur Nanna henni þessa dýrmætu bók að skiln- aði og áreiðanlega í þeim tilgangi, að hún lesi hana og læri af henni að halda vegi sínum hreinum í framtíðinni, og það ætlar Erla líka að gera. Og út frá þessum hugsunum sofnar Erla með Nýja- Testamentið sitt í höndunum. Sólarlaus og drungalegur haustdagurinn hvílir yfir borginni. Snorri Magnússon flugstjóri hefir nýskeð lent flugvél sinni og ekur nú heimleiðis í skyndi í leigubif- reið. Eldheit tilhlökkun svellur í brjósti hans og ólgar honum í blóði. Aldrei hefir Nanna verið yndislegri, en er hann vafði hana örmum sínum á síðustu kveðjustund þeirra. Og aldrei hefir hann þráð endurfundi þeirra eins heitt og nú. Og að þessu sinni á hann viku frí heima. Nú ætlar hann ekki að draga það lengur að skýra foreldrum sínum frá því, að þau Nanna séu heitbund- in, og honum finnst að það hljóti að gleðja foreldra sína innilega, þegar þau fái að vita, hve hann er hjartanlega hamingjusamur með stúlkunni sinni. Bifreiðin nemur staðar við heimili Snorra. Hann greiðir bílgjaldið í skyndi og hraðar sér svifléttur í spori inn í húsið. Að venju gengur hann rakleitt inn í eldhúsið, því þar er hann vanur því að hitta Nönnu fyrst í einrúmi í seinni tíð. En að þessu sinni er eldhúsið mannlaust. Snorri verður örlítið vonsvikinn, en hann heldur þeg- ar áfram að borðstofudyrunum, opnar þær og lítur þar inn, en þar er heldur enginn. Þá er næst að fara upp á loft og vita, hvað þar er að finna. Snorri Iokar borðstofudyrunum og snarast fram úr eldhúsinu, en er hann kemur fram að stiganum, þar sem hann kvaddi unnustu sína síðast, birtist móðir hans í stiganum á leið ofan af loftinu og fer geist. Hún hafði heyrt óvænt gengið um húsið og hugðist strax vita, hver þar væri á ferð. (Framhald.) 32 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.