Heima er bezt - 01.02.1966, Blaðsíða 16

Heima er bezt - 01.02.1966, Blaðsíða 16
Á Holtavörðuheiði. Tröllakirkja í baksfn. tveir menn stóðu á ísnum úti í ánni talsvert neðar en þar sem henni varð fótaskortur. Hún lenti á öðrum manninum, og með þvílíku afli að hann skall einnig flatur í ána. Þau bárust nú bæði tvö hratt áleiðis að gljúfrinu. En maðurinn hafði verið það forsjáll áður en hann fór út á ísinn að setja á sig mannbrodda og fyrir bragðið gat hann komið fyrir sig fótunum og stöðvað sig á ísnum. Hann hafði ekki sleppt taki á stúlkunni sem nú var dösuð orðin og ósjálfbjarga að mestu. Tók hann hana í fang sér og bar til lands. Fraus við söðulinn. Stúlkunni varð afskaplega kalt, hún nötraði og skalf og tennurnar glömruðu í henni án afláts. Ekki bætti það úr skák að veður tók að kólna til muna og gerði hörku- frost er á nóttina leið. Var reynt að láta stúlkuna ganga sér til hita og gengu menn undir henni til að styðja hana. En það dró stöðugt af henni og þar kom að hún gat ekki staðið á fótunum. Var hún þá sett á hestbak í söðul og menn settir til að styðja hana í söðlinum. En frostið var svo mikið að hún fraus við reiðverið og þeg- ar komið var niður að Grænumýrartungu að þrem stundum liðnum, var hún svo föst við söðulinn að hún varð ekki losuð úr honum fyrr en búið var að færa hana úr pilsinu. Hún var borin með litlu lífsmarki inn í bæ- inn, en náði sér fljótt eftir að hún kom inn í hlýjuna og hafði fengið heitt kaffi að drekka. Hélt hún áfram ferð sinni með póstinum daginn eftir og þótti flestum vel af sér vikið. í óstæðu veðri. Jóni pósti varð önnur ferð norður yfir Holtavörðu- heiði minnisstæð og þá taldi hann sig hafa lent í hvað mestu roki, sem hann hafði nokkru sinni lent í. Þetta var í vetrarferð og Jón var við annan mann og nær 20 hesta. Þegar þeir voru komnir rétt upp fyrir Hæðar- sporðinn brast á norðaustan stórviðri svo skyndilega eins og hendi væri veifað. Einn hestanna blátt áfram fauk út í hríðina og fannst hann ekki fyrr en mörgum klukkustundum síðar að veðrinu slotaði. Hafði hann þá fokið fram af kletti og kaffennt undir honum, en var þó lifandi þegar hann fannst. Ekki sagði Jón að viðlit hafi verið fyrir sig eða félaga sinn að standa á fótunum. Ef þeir ætluðu eitthvað að hreyfa sig urðu þeir að skríða, og ef þeir gerðu tilraun til að standa á fætur fuku þeir jafnharðan um koll aftur. Þannig urðu þeir að liggja þar sem þeir voru komnir allt til kvölds, en þá lægði veðrið jafn skyndilega og það hafði brostið á. Ríkið byggir gistihús í Fornahvammi. Árið 1926 gekkst íslenzka ríkið fyrir því að festa kaup á Fornahvammi og koma þar upp föstum veitinga- og gististað fyrir vegfarendur á leiðinni norður eða suður um Holtavörðuheiði. Það sem ýtt mun hafa undir þessa ákvörðun ríkisstjórnarinnar var harmleikur sem átti sér stað rétt við túngarðinn í Fornahvammi í árslok 1925. Er það ein mesta og átakanlegasta hrakningasaga sem átt hefur sér stað á Holtavörðuheiði um 100 ára skeið eða lengur. Mikill harmleikur. Þessi harmleikur átti sér stað í póstferð sem Jóhann Jónsson í Fornahvammi fór í umboði og að tilhlutan Jóns pósts í Galtarholti. Jóhann var á suðurleið og hafði gist að Stað í Hrútafirði aðfaranótt 6. desember 1925. I fylgd með Jóhanni voru fjórir menn suður yfir heiði. Þeir voru Jón Pálmason bóndi á Þingeyrum, Kjartan Guðmundsson frá Tjarnarkoti á Hrútafjarðarhálsi, Ól- afur Hjaltesteð úr Reykjavík og Ólafur Jónsson fram- kvæmdastjóri og rithöfundur á Akureyri. Hesta höfðu þeir tólf. Segir ekki af ferðum þeirra fyrr en þeir koma suður að Hæðarsteini og er þá aðeins komið hádegi. Muggu- kafald höfðu þeir hreppt þangað upp, en annars hægt og milt veður og hafði ferðin gengið að óskum. Námu þeir skamma stund staðar í sæluhúsinu, en um það leyti sem þeir lögðu af stað þaðan birti í lofti og bjuggust þeir við enn batnandi veðri og að stytta myndi alger- lega upp. En allt fór þetta á annan veg en ætlað var. Það var rétt tekið að halla suður af þegar glórulausan byl gerði 52 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.