Heima er bezt - 01.02.1966, Blaðsíða 28

Heima er bezt - 01.02.1966, Blaðsíða 28
FRAMHALDSSAGA ÁTTUNDI HLUTI — Nú, það ert þá þú, góði minn, segir hún og brosir glöð við syni sínum. — Velkominn heim. — Þakka þér fyrir, mamma. Þau mætast nú við neðsta stigaþrepið og heilsast með hlýjum kossi. Og síðan ganga þau saman inn í dagstof- una. Frú Klara tekur sér sæti í djúpum hægindastól og bendir syni sínum einnig að setjast, en Snorri setzt ekki heldur gengur um gólfið örum skrefum og ber þegar fram fyrstu spurningu sína: — Varstu ein í húsinu, mamma, þegar ég kom heim? — Já, ég var einsömul. — Pabbi og Erla eru auðvitað að vinnu sinni úti í bæ? — Já, þau eru nýfarin að heiman að Ioknum hádegis- verði. Varst þú búinn að borða hádegisverð, góði minn? — Já. — A ég þá ekki að bregða mér fram í eldhús og hita kaffi handa þér? — Nei, þakka þér fyrir, mamma, ekki strax, — en ert þú sjálf farin að vinna eldhússtörfin núna? — Já, ég er orðin það hraust, að ég get vel annazt um heimilið með aðstoð systur þinnar og ræstingakonu, sem ég fæ hingað einu sinni í viku. Snorri nemur skyndilega staðar frammi fyrir móður sinni og spyr annarlegri röddu: — Er Nanna þá alfarin héðan úr vistinni? — Já, hún var ekki ráðin hér neinn ákveðinn tíma, og það varð að samkomulagi okkar í milli, að hún fengi sig lausa. — Er langt síðan? — Nokkrir dagar. — Veiztu hvert hún fór? — Nei, það hefi ég enga hugmynd um. — Ekki það? Frú Klöru dylst það ekki, að fréttin um brottför Nönnu af heimilinu snertir son hennar eitthvað óþægi- lega, þó að liann sýnist rólegur hið ytra, en hún lætur það ekkert á sig fá, fyrir henni vakti það eitt að varð- veita heiður hans, þegar hún átti síðast tal við Nönnu, og henni finnst að hún hafi gert það á réttan hátt. Snorri fer aftur að ganga um gólfið, og er þögull um hríð, og móðir hans lofar honum að njóta þagnarinnar. — Svo að Nanna mín er þá alfarin héðan úr vistinni, hugsar Snorri. — Það eru vissulega mikil og óvænt von- brigði, en þetta getur samt allt verið með felldu, fyrst mamma er farin að geta sjálf stjórnað heimilinu að nýju. Flonum er kunnugt um heimilisfang Nönnu hér í borginni, og heim til föður síns og fósturmóður hefir hún vafalaust farið fyrst um sinn. Og sé hún þar ekki nú, hljóta þau að geta sagt honum hvar hún er þá niður- komin. Og nú getur hann ekki verið aðgerðarlaus í þessu máli. Hann verður að ná fundi unnustu sinnar, og það tafarlaust. Hjarta hans kallar hana heitar nú en nokkru sinni fyrr. Og nú rýfur Snorri þögnina og segir: — Ég þarf að skreppa strax út í bæ, mamma mín. Þú undrast ekkert um mig, þótt ég verði dálítið Iengi. — Ætlarðu að fara strax að heiman aftur, góði minn? spyr frú Klara með undrun og vonbrigði í röddinni. — Já, ég má til. — Hann hefir ekki um þetta fleiri orð, heldur hringir eftir leigubíl í skyndi og gengur síðan út. En móðir hans situr ein eftir allt annað en ánægð yfir þessari óvæntu brottför hans. Leigubifreið Snorra nemur staðar fyrir utan stórt og fallegt hús umgirt háum garði, á einum fegursta stað borgarinnar, og það er æskuheimili Nönnu. Snorri biður bílstjórann að bíða og snarast síðan út úr bifreiðinni og heim að húsdyrum. Hann hringir dyrabjöllunni og bíður þess í ofvæni, hver Ijúka muni upp. Brátt heyrir hann létt fótatak að innan, og hurðinni er lokið hægt upp. Miðaldra kona mjög fríð sýnum og björt á svip staðnæmist í dyrunum og horfir með spurn á unga einkennisklædda gestinn ókunna. Snorri lyftir húfunni kurteislega og býður góðan dag. — Góðan daginn, svarar konan hlýrri og mjúkri röddu og heldur áfram að virða unga manninn fyrir sér. Þessi ókunni maður vekur strax sérstaka athygli hennar sökum glæsimennsku sinnar. 64 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.