Heima er bezt - 01.02.1966, Page 27

Heima er bezt - 01.02.1966, Page 27
HÁRLOKKURINN. Allt er hljótt, nema hafið, sem gnauðar, og í húmi ég stjörnurnar spyr, hvort hún sjái ekki fley þitt á sævi sigla heimleiðis óskljúfan byr. Því ég veit, að þú kemur, minn vinur, og ég veit, hvar sem ber þig um höf, berð þú lokk mér úr hári við hjarta, mína heitvígðu skilnaðargjöf. Og ég veit, að sú stjarna, er við völdum, stöðugt valdr og skín okkur tveim. Að hún lýsir þér leiðir um höfin, að hún lýsir þér stefnuna heim. Hverja nótt, er þú heim til mín hugsar, og minn hárlokk ber dapur að vör, bið ég stjörnuna að vaka og vernda, þig minn vinur, unz heim snýrð úr för. Þá hefur verið beðið um Ijóð, sem heitir: Ó, mín kæra vina. Höfundur ljóðsins er Valgeir Sigurðsson, kennari, Seyðisfirði, en lagið heitir: Unchained melody. Ó, MÍN KÆRA VINA. Ó, mín kæra vina, ég þrái þig svo heitt, mín þrá aldrei dvín. Tímar hafa liðið, sem ýmsu geta eytt. Ástvina mín, á leið til þín guð leggi sporin mín. Áin rennur lygn út í sjó, út í sjó, opinn, víðan brimþungan sjó. Bakkafagra á, bíð þú mín, bíð þú mín, bráðum kem ég heim, bíð þú mín. Sveipuð eru fjöll svartri nótt, svartri nótt, sem á hlíðar árdegið skín. Hjúpuð er sorg mín svartri nótt, svartri nótt svefninn flytur mig heim til þín. Ó, mín kæra vina, ég þráði þig svo heitt, mín þrá aldrei dvín. Tímar hafa liðið, sem ýmsu geta eytt. Ástvina mín, á leið til þín, á leið til þín guð leggi sporin mín. Hanna Guttormsdóttir, Marteinstungu, biður um ljóðið: Pabbi minn kæri. Þetta ljúfa ljóð birtist í þess- um þætti í nóvember-blaðinu 1962, og get ég því ekki birt það aftur um sinn. Stefán Jónsson, Skeiðarvogi 135. BRÉFASKIPTI Jón Ragnar Gislason, Engimýri, Öxnadal óskar eftir bréfaskipt- um við stúlku á aldrinum 14—15 ára. Mynd fylgi fyrsta bréfi. Eftirtaldir piltar, allir við Bændaskólann á Hólum í Hjaltadal, óska eftir bréfaskiptum við stúlkur á aldrinum 15—18 ára. — Sigurður Þ. Steingrímsson — Róbert Hlöðversson — Hjálmar Jónsson — Jósep Blöndal — Daniel Berhent — Benjamin Stefáns- son — Helgi Ársœlsson — Helgi Þórarinsson — Þórður Jónsson — Friðrik Steinsson og Sigurður J. Björnsson. Óla Magnúsdóttir, Stakkahlíð, Loðmundarfirði, N.-Múl., óskar eftir bréfaskiptum við pilta 16 ára og eldri. Alda E. Stefánsdóttir og Gúðbjörg Eygló Þorgeirsdóttir, báðar í Heimavistinni í Reykjadal, Mosfellssveit, Kjósarsýslu, óska eftir bréfaskiptum við pilta og stúlkur á aldrinum 15—17 ára. Mynd fylgi. Oddný B. Vatnsdal, Lundeyri, Glerárhverfi, Akureyri, og Jóna Antonsdóttir, Vallholti, Glerárhverfi, Akureyri, óska eftir bréfa- skiptum við pilta og stúlkur á aldrinum 15—17 ára. Sveinn Elísson, Starmýri, pr. Djúpavog, Suður-Múlasýslu, óskar eftir bréfaskiptum við stúlkur á aldrinum 17—21 árs. Brynja Kristjánsdóttir, Guðrún S. Guðjónsdóttir, Maria Eyvör Halldórsdóttir og Sigríður Guðný Jóhannesdóttir, allar í Reyk- holtsskóla, Borgarfirði, óska eftir bréfaskiptum við pilta og stúlk- ur á aldrinum 15—16 ára. Gulnuð blöð frá Hawaii Framhald af bls. 56. -------------------------- breytingum sem á urðu og telja þær upphaf nýrri og betri tíma. En Adam var ekki lengi í Paradís. Höfnin varð fullsmíðuð og bryndrekar Kyrrahafsflota Banda- ríkjanna tóku sér þar bólfestu. Byggingarvinna drógst saman. Þá voru bændurnir, sem flestir áttu jarðir sínar þegar Bandaríkjamenn komu, búnir að selja þær eða missa á annan hátt, og urðu nú að gerast leiguliðar. Bæja- og borgalýður lifði á styrkjum frá herraþjóðinni, og hafði hvorki til hnífs eða skeiðar, allar afurðir féllu í verði, því kreppan sem við könnumst svo vel við frá eftirstríðsárum fyrra stríðsins, breiddi hramma sína jafnt yfir Hawaii eyjar og aðra staði á vesturhveli jarð- ar. Og nú verður dauft hljóðið í Gísla Guðmundssyni, sem þá er orðinn roskinn maður og farinn að bila til heilsu. Á tímabili er hann jafnvel farinn að hugsa til heimferðar, og virðist þó heimþrá hans aldrei hafa ver- ið ýkja mikil. En þá veikist hann (mér skilst mest af hjartasjúkdómi), treystir sér ekki til að þola veðurfars- breytinguna, ráðgerir þó að koma og dvelja yfir heit- ustu sumarmánuðina hér heima og fara svo aftur. En þó hann hefði verið einhleypur maður alla ævi taldi hann sig ekki hafa efni til ferðar fram og til baka, svo úr þessu varð aldrei. Mörg seinustu árin bjó hann einn í kofa út á landi á einni eyjunni „Kóna“, og þar mun hann hafa endað ævi sína, líklega einn og yfirgefinn, 73 ára að aldri. Heima er bezt 63

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.