Heima er bezt - 01.02.1966, Side 31

Heima er bezt - 01.02.1966, Side 31
Snorri tekur hljóður við bókinni og les það, sem skrifað er á fremsta blaðið: Nafn Erlu, kveðju og þökk fyrir samveruna í sumar, frá Nönnu, skrifað með fall- egri rithönd. — Þetta er sannarlega fögur vinargjöf. Svona var Nanna góð, segir hann með klökkum innileik. — Þykir þér ekki vænt um gjöfina, Erla mín? — Jú, vænzt um hana af öllu því, sem ég hefi eignazt á ævinni. — Sástu Nönnu oft lesa í Nýja-Testamentinu? — Já, oft. Og þegar mamma var nærri dáin á sjúkra- húsinu í sumar, þá kenndi Nanna mér að biðja Guð að hjálpa mömmu, og þá fór henni strax að batna. — Jæja, systir góð, svo að Nanna vísaði þér inn á þá braut? — Já, og mér hefir aldrei fyrr verið kennt að biðja á þann hátt. Hefir þér verið kennt það, Snorri? — Já, Erla mín. Og það var skólabróðir minn og herbergisfélagi úti í Ameríku, sem vísaði mér inn á veg bænarinnar, ungur piltur frá Noregi. Síðan hefur bæn- in verið mér dýrmætur aflgjafi og öruggasta leiðarljós. Ég hef flugvél mína aldrei svo frá jörðu, að ég eigi ekki áður hljóða bænarstund. Og starf mitt hefir líka alltaf heppnast vel og blessazt. Og nú held ég, að örlög mín á þessum degi hefðu orðið mér ofraun, hefði ég ekki kunnað að sækja svölun og þrótt í bænina. — Og það skalt þú líka ætíð gera í lífinu, Erla mín. — Já, Snorri minn. Og ég skal líka alltaf biðja fyrir ykkur Nönnu báðum. Mér þykir svo innilega vænt um ykkur bæði! Erla lítur ástúðlega á bróður sinn, og nú sér hún, að tár blika í augum hans. — Guð blessi þig, Erla mín, hvíslar hann og réttir henni aftur Nýjatestamentið frá Nönnu.... Klukkan niðri í borðstofunni slær sjö högg, og ómur þeirra berst upp í herbergið til systkinanna. Erlu verð- ur hálfhverft við. Hún hefir um stund alveg gleymt tím- anum. Hvað skyldi mamma hennar segja um þetta háttalag, að hafa enga hjálp fengið frá henni við kvöld- verðinn! Erla rís á fætur. Klukkan hefir kallað til kvöldverðar, segir hún. Verður þú ekki samferða í matinn, Snorri minn? — Jú, það er bezt að ljúka því á réttum tíma. Snorri rís á fætur og fylgist með systur sinni fram úr herberg- inu. Erla snarast fyrst með Nýjatestamentið inn í her- bergi sitt, og síðan ganga systkinin saman ofan í borð- stofuna. Hjónin eru bæði setzt til borðs, er systkinin koma, en bíða þess að þau komi ofan. Snorri heilsar föður sínum hlýlega og setzt síðan þögull við borðið. En frú Klara segir svo við Erlu: — Hvers vegna kemurðu svona seint heim núna? — Fyrirgefðu, mamma mín. Ég kom heim eins og venjulega, en ég hefi verið uppi hjá Snorra og gleymdi alveg tímanum. — Jæja, þá er ekld meira um það. Er langt síðan þú komst heim aftur, Snorri minn? spyr frúin. — Já, nokkuð. — Og þú gerðir ekkert vart við þig. Ég er aldeilis hissa. En látið nú ekki matinn bíða lengur, og gerið þið svo vel. Þau snúa sér nú öll að matnum og fara að borða. Magnús reynir að halda uppi samræðum við borðið að vanda, en það gengur dauflega. Slíkt er þó óvenjulegt, þegar Snorri er heima. Hann er ætíð vanur að vera glað- ur og fjörugur í samræðum og hafa frá mörgu að segja frá ferðum sínum, en nú er eins og hann vilji helzt ekk- ert segja. Magnúsi lögmanni kemur helzt til hugar, að Snorri sé eitthvað lasinn, en spyr þó ekki um það i svipinn, og máltíðinni lýkur á óvenju skömmum tíma. Oðar er Snorri hefur lokið að borða, rís hann úr sæti, þakkar fyrir matinn og hverfur síðan aftur upp í her- bergi sitt og sézt ekki framar niðri það sem eftir er kvöldsins. En frú Klara lætur Erlu hafa nægilegt að starfa, þar til gengið er til svefns, og Erla getur því ekki rætt neitt frekar við bróður sinn.------ Snorri dvelur heima vikuna sem hann á frí frá störf- um, en foreldrar hans sjá hann aðeins við máltíðir, og þá er hann mjög fálátur og þögull. Allar stundir held- ur hann sig á einkaherbergi sínu, og þangað kemur eng- inn til hans nema Erla, þá sjaldan að hún fær tíma til þess. Magnúsi lögmanni er það hrein ráðgáta, hve sonur hans hefur allt í einu orðið gerbreyttur. Hann hefur spurt Snorra um heilsufar hans og fengið það svar, að með það sé allt í bezta lagi. En hvað er þá það, sem breytingu slíkri getur valdið? Á því fær hann enga skýr- ingu og verður að sætta sig við það að svo stöddu. Erla er sú eina, sem allt veit um þetta einkamál Snorra bróður síns, og hún finnur innilega til með bróður sín- um. En hún segir engum neitt um þessa vitneskju sína, þótt hún sé spurð. Frú Klöru er í fyrstunni ekki vel rótt. Hún getur ekki annað en rennt réttan grun í ástæðuna fyrir þeirri miklu breytingu, sem orðin er á syni hennar, og fund- ið þar til sektar. En brátt róar hún samvizku sína að fullu við þá hugsun, að þótt ungt fólk verði öðruhverju smávegis hrifið hvert af öðru um hríð, og þótt því fylgi örlítill sársauki, þegar þeim kunningsskap lýkur, þá hljóti slíkur „góugróður“ að gleymast fljótt með öllu, og hún óttast ekki afleiðingar gerða sinna. Að vikunni liðinni kveður Snorri og heldur að heim- an og hefur störf sín á ný, jafn öruggur sem áður. En gleði hans er þorrin. Karlmannleg ró einkennir fram- komu hans alla. Hann kemur mjög sjaldan heim, og hef- ur þar jafnan örskamma viðdvöl. Hann hittir móður sína oftast eina í húsinu, og ræðir fátt við hana um hagi sína og hugsanir. Og veturinn líður. (Framhald.) Heima er bezt 67

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.