Heima er bezt - 01.03.1966, Blaðsíða 23

Heima er bezt - 01.03.1966, Blaðsíða 23
kominn, svo var hann og við alla góða menn hýrlegur, siðsamur og prýddur hæversklegri hófsemd, sýnandi sig elskulegan allri alþýðu. Og því var hann vel vingaður guði og góðum mönnum.“ I öðrum stað er frá því sagt, að þegar Jón helgi var smásveinn, þá fór hann utan með foreldrum sínum og sat í konungsveizlu í Noregi. Honum varð það á í veizl- unni, að rétta fram hendur til þeirra hluta, sem hann til lysti. Þá sló móðir hans á hönd hans. Þá sagði drottn- ing: „Ger eigi svo, kæra Þorgerður, því að hendur þess- ar, er þú slær á, eru biskupshendur.“ En um fund þeirra Jóns biskups og Sæmundar fróða er skemmtileg frásögn í Biskupasögunum. Þegar þeir hittust, hafði Sæmundur gleymt allri for- tíð sinni og jafnvel nafni sínu, og nefndist Kollur. En þá sagði Jón biskup: „Eg get að þú heitir Sæmundur og sért Sigfúson, og fæddur á þeirn bæ á íslandi er Oddi heitir.“ Og þar kom að lokum, að Sæmundur sagði: „Vera má að sönn sé saga þín, og ef svo er, þá mun finnast í tún- inu á Odda hóll nokkur, sá er ég lék mér jafnan við.“ Þeir sömdu þá með sér, að Sæmundur skyldi koma með til íslands. En Sæmundur átti ekki gott með að losna frá meistara sínum, því að hann vildi ekki missa hann. — Síðan kynnir Sæmundur Jón biskup fyrir meist- ara sínum, og féll vel á með þeim. Eina nótt leyndust þeir á brott, Jón biskup og Sæ- mundur. Var þá veður gott, en þykkt í lofti, svo að ekki sáust stjörnur. Héldu þeir áfram þá nótt alla og daginn eftir. En aðra nótt sá stjörnur og öll himintungl. Sér þá meistarinn, hvar þeir fara, og fer á eftir þeim skyndi- lega. En meistarinn kunni svo vel alla stjörnu-íþrótt, að hann þekkti hvers manns stjörnu, og sá á stjörnunni allar hreyfingar þess, er stjörnuna átti, og þessa íþrótt kunni Sæmundur líka. Er meistarinn var kominn af stað í eftirförina, leit Sæmundur til lofts og sagði: „Á ferð er meistarinn kominn og sér hvar við förum.“ „Hvað er nú til ráða,“ mælti Jón. Sæmundur svarar: „Tak skó minn af fæti mér og fyll hann vatni og set á höfuð mér.“ Á þeirri stund leit meistarinn til himins og sagði: „Tll tíðindi, því að Jón hinn íslenzki hefur drekkt Kolli fóstra mínum, því að vatn er um stjörnu hans.“ Snýr hann þá heim aftur. Næstu nótt er enn bjart veður og sér meistarinn þá á stjörnu Sæmundar, að hann muni lifandi og fer af stað á eftir þeim. Þá mælti Sæmundur: „Tak enn skó af fæti mér og fyll skóinn blóði og set á hvirfil mér.“ Gerir Jón svo. Þá leit meistarinn stjörnu Sæmundar og mælti: „Blóð er nú um stjörnu Kolls, og er nú víst, að þessi útlendingur hefur fyrirfarið honum.“ Snýr hann þá enn aftur. Þeir félagar fóru nú leiðar sinnar og farnaðist þeim vel og greiðlega. Nokkru síðar sá meistarinn að Sæmundur var enn á lífi og sagði þá við sjálfan sig: „Nógu margt hef ég Frá Gunnarsholti. kennt honum, því að nú hefur hann sigrað mig í stjörnu- íþrótt með bragðvísi sinni.“ Þannig er þessi þjóðsaga um tvo mestu og beztu menn íslands á þeim tímum. ------Um Sæmund fróða hafa myndazt fleiri þjóð- sögur en nokkurn annan merkan íslending. Flestar fjalla þær um viðskipti Sæmundar við sjálfan Kölska, en þeir áttu í stöðugum glettingum. Hér koma tvær stuttar sögur um skipti Sæmundar við Kölska. Þær eru skráðar í Þjóðsögum Jóns Árna- sonar. DÓTTIR SÆMUNDAR FRÓÐA. Sæmundur átti dóttur eina. Einhverju sinni þá Sæm- undur var ekki heima, kom Kölski til hennar og sagðist eiga að taka hana. Stúlkan var þá stödd á lofti nokkru, að reiða upp sæng föður síns. Hún sagðist skyldi fara með honum, ef hann væri búinn að telja allar fjaðr- irnar í sænginni hans föður hennar fyrr en hann kæmi heim, en annars ekki. Kölski játaði því, og varð nú held- ur hraðhentur. En í því bili, er Kölski var með síðustu fjaðrirnar í hnefanum, kom Sæmundur upp stigann. Kölski missti því af stúlkunni. Hér er önnur saga, og hún heitir: GRIÐKONAN í ODDA. Griðkona ein í Odda, sem vön var að bera heim vatn, var einn vetur, þá snjór var mikill og lausamjöll, mjög þreytt að kafa snjóinn með vatnsföturnar. Einu sinni, er hún sat við brunninn og álasaði húsbændum sínum fyrir of mikla vinnuhörku, kom til hennar maður einn. Heima er bezt 95

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.