Heima er bezt - 01.03.1966, Blaðsíða 29

Heima er bezt - 01.03.1966, Blaðsíða 29
FRAMHALDSSAGA XII VEGAMÓT LÍFSINS Nú er sumar á ný og sólmánuður hafinn. Magnús lögmaður hefur tekið sumarleyfi frá störfum. Og að þessu sinni hyggst hann nota sér það vel til hvíldar og hressingar eftir fremur erfiðan vetur og áhyggjusam- an. Hann á sumarbústað austur við Þingvallavatn, mjög æskilegan til hvíldar, og þar hefur hann hugsað sér að dvelja í sumarleyfinu ásamt konu sinni og dóttur. En sonur hans er orðinn eins konar útlagi, sem hann hittir aðeins sjaldan, og það er Magnúsi lögmanni þungt áhyggjuefni, hve lífsglaði drengurinn hans hefur breytzt mikið frá því sem áður var. Magnúsi dylst það ekki þá sjaldan er fundum þeirra feðga ber saman, að það er eitthvað meira en lítið, sem skyggir á lífshamingju sonar hans. En hvað það geti verið, er Magnúsi ráðgáta, sem honum hefur til þessa ekki tekizt að fá ráðið. Frú Klara hefur náð allgóðri heilsu og getur nú farið allra sinna ferða eftir vild. Og nú hefur hún ákveðið að láta gamlan draum sinn rætast á þessu sumri. Þau hjón- in hafa ferðast mikið á undanförnum árum, bæði heima og erlendis, og notið þess að gista margra fagra og fræga staði. En það er sérstaklega ein borg á meginlandi Ev- rópu, sem frú Klöru hefur lengi langað til að sjá og skoða, en óviðráðanleg atvik hafa til þessa valdið því, , að enn hefur ekki úr þessu orðið. Og París, aðalborg tízkunnar, hefur frú Klara enn ekki augum litið, þótt hún frá æsku hafi haft mikinn áhuga fyrir öllum nýj- ungum á þeim vettvangi og reynt að fylgjast þar með eftir beztu getu. En sjálfa París hefur hún aðeins séð á kvikmyndum. En nú skal þessi draumur hennar rætast á þessu sumri, og frú Klara talfærir þetta við mann sinn, sem áður hafði ákveðið að verja sumarleyfi sínu á annan hátt en á ferðalagi um Frakkland, og það segir hann konu sinni. En hún sækir mál sitt fast, svo að hann verður að lok- um að láta að vilja hennar. Enda er Magnús lögmaður því vanur að elska friðinn í samskiptum við kona sína og reyna að gera henni lífið sem bezt og þægilegast samkvæmt óskum hennar og kröfum. Og það ætlar hann einnig að leitast við að gera að þessu sinni. Og frú Klara hefur unnið sigur enn einu sinni. Erla er nú orðin seytján ára að aldri. Hún hefur þrosk- azt mikið síðastljðinn vetur og vaxið áð kvenlegum yndisþokka, og er nú með sanni frjáls og falleg og sak- laus borgarmær. Hún vinnur enn í bókabúðinni hjá frænda sínum og ætlar að starfa þar til næsta hausts. En þá er ákveðið, að hún hefji nám í húsmæðraskóla borg- arinnar. Frú Klara vill láta Erlu taka sitt sumarfrí jafnt og faðir hennar, og það getur hún fengið, og fara svo með foreldrum sínum í utanlandsförina. En því neitar Erla eindregið. Hún segist verða kyrr heima, og ekki taka sitt sumarfrí fyrr en seinna. Henni finnst það ævintýri líkast að búa ein í fjarveru foreldra sinna, frjáls og öll- um óháð, og frá þessu verður henni ekki þokað. Og móðir hennar bíður lægri hlut í þeim viðskiptum. Magnús lögmaður og frú hans taka sér fari með skipi til Kaupmannahafnar, og þaðan ætla þau síðan með járnbraut til Frakklands. Og ferðin er hafin. Signa rennur hægt áfram gegnum heimsborgina í sól- gullinni kyrrð sumarkvöldsins og heillar augu sjáand- ans. Skammt frá elfunni stendur stórt nýtízkulegt gisti- hús, sem tekur á móti ferðamönnum víðs vegar að úr heiminum, sem streyma til Parísar á þessum tíma árs. Að þessu sinni hafa hjón frá íslandi leigt herbergi á efstu hæð gistihússins, og hyggjast dvelja þar um viku tíma. Stór gluggi á gistisal þeirra vísar að ánni, og þar er útsýni vítt og fagurt. Hjónin hafa nú dvalið þrjá daga um kyrrt í París, svipast víða um og skoðað margt og mikið. Veður hefur verið hið blíðasta, og borgin tjaldað sínu fegursta skrúði. Allt hefur til þessa gengið að óskum. Frú Klara er mjög ánægð með dvölina í París. Hún hefur sannarlega ekki orðið fyrir vonbrigðum með þessa Heima er bezt 101

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.