Heima er bezt - 01.03.1966, Síða 24

Heima er bezt - 01.03.1966, Síða 24
Merkjárfoss í Fljótshlíð. Sá bauð henni að bera heim vatnið fyrir hana, ef hún vildi gefa sjálfa sig í kaupið. Því játaði hún. Maðurinn tók þá til að bera vatnið heldur ótt og títt. Sæmundur kom út og sá, hvað um var að vera. Hann sagði við manninn, að hann kæmist aldrei áfram með vatnsburð- inn, því að ílátin væru of lítil, og fékk honum hrip tvö og heldur stór og tók miðrimina úr hvorum botni. Karli varð seint um vatnsburðinn, því að hripin voru jafnan tóm, þegar hann kom heim til bæjarins frá brunn- inum. Hann missti því af griðkonunni. GUNNARSHOLT. Um Gunnarsholt á Rangárvöllum er þetta sagt í Njálu, þar sem fyrst er getið Gunnars á Hlíðarenda: „Gunnar hét maður. Hann var frændi Unnar dóttur Marðar gígju. Rannveig hét móðir hans. Faðir Gunn- ars hét Hámundur og var sonur Gunnars Baugssonar. Við hann er kennt Gunnarsholt.“ í Landnámu er Gunn- ars Baugssonar líka getið í sambandi við Gunnarsholt. Um kvöldið, þegar ég var á Keldum, ákvað ég að fara vestur um auðnir og uppblásin holt að Gunnarsholti. Liggur leiðin fyrst um sanda og örfoka land, en þegar nær dró Gunnarsholti, breyttist heldur útlitið. Það var eins og að koma í aðra heimsálfu. Tún og sáðsléttur breiddu þar úr sér um víða vegu. Fjöldi heystakka var þar á vallgrónum, nýslegnum sléttum, en sums staðar voru kafsprottnar sáðsléttur óslegnar. Á einum stað voru stórar hjarðir nautgripa á beit. Fyrir nokkrum áratugum var þarna örfoka land. En hér hefur gerzt kraftaverk í ræktun lands og heftingu sandfoks. Framfarir í búnaðarháttum landsmanna hafa verið miklar undanfarinn áratug, en ekkert hrífur mig meira á ferðum mínum um landið en sandgræðslan og skógræktin. FLJÓTSHLÍÐ - GUNNARSHÓLMI. Ein fegursta, hlýlegasta og frjósamasta sveit á íslandi er Fljótshlíðin, og þangað er fagurt að líta neðan frá Markarfljótsaurum. Eins og fyrr er sagt í þessum þætti, ligur nú allt það vatn, er áður lá í Þverá, Álum og Af- falli, í Markarfljóti. I sumar fór ég neðan úr Landeyj- um austur undir Markarfljótsbrú, og þaðan eins og leið liggur fram hjá Stóra-Dímon og Gunnarshólma, beint í Fljótshlíðina. Er þá ekið óhindrað yfir þurra farvegi Þverár. Og þá liggur leiðin líka fram hjá „hólmanum, þar sem Gunnar sneri aftur.“ — Vegna þess, hve Þverá hefur brotið þarna land um aldir osf áratusfi, er ekki hægt að vita, hvernig Gunnarshólmi hefur litið út á dögum Gunnars á Hlíðarenda. Þó hefur hólmimi aldrei orðið Þverá algjörlega að bráð. Hann hefur sigrað „ógnarbylgju ólmau og nú er Þverá horfin af aurunum, svo að nú getur hólminn fríkkað og gróið upp að nýju. í þessari för fór ég inn á innstu bæi Fljótshlíðar, en þeir eru: Barkarstaðir og Fljótsdalur. í Heklugosinu 1947 féll geysilegt vikuregn yfir Fljótshlíðina, og sagði mér Sigurður bóndi á Barkarstöðum, að svo hefði litið út í fyrstu, að þar myndi allur gróður fölna og eyðast undir vikurlaginu, sem huldi allan gróður. En um vorið var unnið kappsamlega að því, að ryðja með vélum vikrinum af túnunum og regnið og stormurinn unnu líka að því að eyða vikrinum. Og svo fór, að landið Múlakot og garðurinn. 96 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.