Heima er bezt - 01.03.1966, Page 35
og urra grimmilega, ef Viktoría hreyfði sig minnstu
vitund.
„Jesús minn almáttugur!“ veinaði Viktoría.
„Hún trúir þá á Guð,“ hugsaði Hanna alveg hissa.
Hún var að reyna að ná tóbakinu framan úr Hörpu
litlu, sem jarmaði í sífellu, hana sveið svo í tunguna.
„Taktu hundinn!“ skipaði Viktoría.
Þá hló Hanna María og sagðist hreint ekki gera
það, en hún skyldi láta Neró éta hana. Neró væri
svo stór að hann munaði ekkert um að éta stelpu
eins og hana í einni máltíð, en líklega yrði hann
heilan dag með strákinn, því hann væri svo feitur.
En Neró þætti feitt kjöt afskaplega gott, og bezt
þætti honum að éta krakka úr Reykjavík, því þau
væru búin að troðfylla sig af sælgæti, svo að Neró
þætti bara sælgæti að gleypa þau í sig.
„Hættu þessari bölvuðu lygi og taktu hundinn,
eða ég kála honum,“ sagði Viktor. „Hann er alveg
að sprengja mig, því hann er svo þungur, og ég svo
saddur.“
„Þér var nær að háma minna í þig, ístrubelgurinn
þinn,“ sagði systir hans.
„Þú ázt alveg eins mikið, frekjan þín,“ sagði strák-
urinn.
Neró gætti þess vel, að strákurinn hreyfði sig ekki.
Það var ánægjusvipur á andliti hans. Allt í einu lagð-
ist hann makindalega fram á lappir sínar ofan á bak-
hluta stráksins og fór að gapa með tunguna lafandi
út úr öðru munnvikinu. Við og við rak hann trýnið
rétt upp að andliti Viktoríu, sem starði á þessa blóð-
rauðu, löngu og mjóu tungu og þessar voðalegu
hvössu tennur, alltof hrædd til að þora að hreyfa sig.
Elarpa var nú hætt að jarma og búin að hreiðra
um sig í fangi fóstru sinnar. Hún hjúfraði sig upp
að henni, eins og hún vildi með því votta henni þakk-
læti sitt.
Neró leit aftur og aftur til Hönnu, eins og vildi
hann segja: „Er nú ekki búið að hræða krakkana
nóg?“
„Viljið þið nú Iofa að hrekkja Hörpu litlu ekki
aftur?“ spurði Hanna.
Krakkarnir játuðu því bæði. Þau hefðu játað
hverju sem var, bara til að sleppa úr prísundinni.
„Jæja, Neró minn, láttu þau fara, en ef þau
hrckkja Hörpu aftur skaltu tuska þau duglcga til.“
„Voff,“ sagði Neró glaðlega og spratt á fætur,
hann gat samt ekki stillt sig um að bíta í rassinn á
buxunum hans Viktors og dingla honum dálítið til
svona í kveðjuskyni.
Systkinin stóðu á fætur allshugar fegin, en ekki
var Viktor fyrr kominn út fyrir dyrnar en hann
hóf upp raust sína og blótaði og formælti svo voða-
lega, að Hanna gapti af undrun. Slíkt og þvílíkt hafði
hún aldrei heyrt áður.
„Neró, þú verður að þurrka stráknum um munn-
inn eftir þetta óþverra orðbragð sem hann hefir lát-
ið sér um munn fara,“ sagði afi, sem hafði hevrt til
stráksins.
Neró lét ekki segja sér þetta tvisvar, hann rauk út
á eftir Viktor sem dauðskelkaður tók á sprett ofan
túnið. Neró náði honum í fáeinum stökkum og felldi
hann til jarðar. Svo sleikti hann strákinn vandlegra í
framan og sleppti honum síðan.
Nú sat þessi stóri og feiti, freki, orðljóti og hrekkj-
ótti strákur flötum beinum í einni af pentunum
hennar Hönnu Maríu og hágrét.
Viktoría hvæsti af vonzku:
„Þið eruð illþýði öll sömun,“ sagði hún og hljóp
til bróður síns, því þótt þau væru sífellt að rífast og
slást, þótti þeim mjög vænt hvoru um annað, þau
vildu bara ekki viðurkenna það, hvorki fyrir sjálf-
um sér né öðrum.
„Vesalingarnir litlu, þau eiga bágt,“ sagði afi og
horfði alvarlegur á þau.
„Mér finnst þau bara hafa gott af að grenja svo-
lítið,“ sagði Hanna María.
„Já, þau hafa gott af því, ég átti ekki við að þau
ættu bágt þess vegna, en vonandi lagast þau litlu
skinnin, og þá verðið þið góðir vinir,“ sagði afi.
„Vinir! Nei aldrei, aldrei,“ sagði Hanna María.
„Ég vildi óska að ég gæti látið prestinn senda þau
aftur heim til sín strax í kvöld.“
„Þau hafa átt bágt,“ Hanna mín.
„Nei, það er ekki satt, þau eiga bæði pabba og
mömmu og hafa verið hjá þeim,“ sagði hún ákveðin.
Afi andvarpaði ofurlítið og gekk þungt hugsi inn
í bæ. Hanna María gekk niður í „Táradalinn“ sinn
og bar Hörpu, sem vildi ekki frá henni fara. Hún
ætlaði samt ekki að fara þangað núna til að gráta,
heldur bara til að leika sér þar ofurlitla stund í friði
við vini sína.
Systkinin lágu í flekknum og grenjuðu bæði hátt
og frekjulega. Þau ætluðu að strjúka þá strax um
kvöldið.
Heima er bezt 107