Heima er bezt - 01.05.1968, Page 3
NUMER 5
MAÍ 1968
18. ARGANGUR
<wQxssH
ÞJOÐLEGT HEIMILISRIT
V.V.V.'.V.V.V.
Ill§ Efnisyferlit iWm
Bls. piii
Hefur gcett dyranna í hálfa öld Hf.lgi Haraldsson 148 III
!!!! Árdagskæla og aftanblær Hólmgeir Þorsteinsson 155 11111
(jjl Jónas og Gljúfrabiii Steindór Steindórsson 162 lilll
11! Hvað ungur nemur — 165 1111
Stúlkan frá Narvík Stefán Jónsson 165 l|||j
n Dægurlagaþátturinn Stefán Jónsson 170 lll
Við tvíburabræður (5. hluti) Einar B jörgvinsson 172 III
lliiiiii í álögum (9. hluti) Magnea frá Kleifum 174 jXvXvXý
1111 Bókahillan Steindór Steindórsson 179
1!|! Hjartarbani (myndasaga) J. F. Cooper 180 1 I
!|| A fyrsta sunnudag í sumri bls. 146 — Bréfaskipti bls. 154, 164, 171. ||
H Forsíðumynd: Loftur Loftsson bóndi \ a Sandlcek. (Ljósm. Bj. Sig.)
!!■ iiii
HEIMA ER BEZT . Stofnað árið 1951 . Kemur út mánaðarlega . Áskriftargjald kr. 250,00 . Gjalddagi í marz . í Ameríku $6,00
Verð í lausasölu kr. 25,00 heftið . Útgefandi Bókaforlag Odds Björnssonar . Heimilisfang blaðsins: Pósthólf 558, sími 12500, Akureyri
Ábyrgðarmaður: Sigurður O. Björnsson . Ritstjóri: Steindór Steindórsson frá Hlöðum . Prentverk Odds Bjömssonar h.f., Akureyri
Veðrátta liðins vetrar hefur verið erfið og andstæð.
En allt um það hafa ýmsir atburðir í þjóðfélagi voru
verið sýnu ískyggilegri. Það hefur komið í Ijós, að
jafnvel á hættustund, kunnum vér ekki enn að mæta
erfiðleikunum með einum hug og vilja til að leysa þá,
ef það kostar oss fórnir. Enn kjósum vér að heyja harð-
ar deilur, áður en vér sættumst á málin, þótt undir
niðri sé flestum ljóst, að ekkert sé hættulegra frelsi og
velgengni þjóðarinnar en sundrungin, sem er meira böl
en vorkuldar og ísalög.
Höfuðverkefni þjóðar vorrar í dag hlýtur því að
vera að bægja brott þeim öflum, sem hvetja til sundr-
ungar og setja hnefaréttinn hærra samningaborðinu.
Framtíð þjóðar vorrar og lands hvílir öllu fremur á
því að slíkt megi takast.
St. Std.
Heima er bezt 147