Heima er bezt - 01.05.1968, Blaðsíða 10

Heima er bezt - 01.05.1968, Blaðsíða 10
skýra það, hvenær menn voru andlega heilbrigðir, og gerði það svo eftirminnilega og skemmtilega, að ég hefi aldrei getað gleymt því, og það var á þessa leið: Ef við tökum mann, sem er alveg heilbrigður líkam- lega, þá hefir hann enga hugmynd um, hvað það eru mörg líffæri í líkamanum, sem starfa saman. Það er ekki fyrr en eitthvert þeirra verður veikt, að við förum að vita af því. Alveg á sama hátt er það ekki fullkomlega andlega heilbrigður maður, sem alltaf man eftir sjálfum sér fyrst og fremst. Það er þá fyrst, þegar hann hefir eitthvað að vinna fyrir, sem hann metur svo mikils, að hann man ekki eftir sjálfum sér, að hann er fullkomlega heilbrigð- ur andlega. Ef maður fer í söguna, bæði íslandssöguna og Mann- kynssöguna, þá virðist samlíking spekingsins furðuvel standast prófið. Það mætti jafnvel segja mér, að íslend- inga vantaði ekkert eins tilfinnanlega í dag og andlega heilbrigða menn. Það hefir einu sinni riðið sjálfstæði hennar að fullu, hvað hún átti fáa slíka menn, og hvað getur ekki komið fyrir aftur, ef óvarlega er farið. Það fjöregg er brothætt. Eg hefi stundum gert það mér til gamans að flokka menn eftir þessari formúlu, hvað þeir væru heilbrigðir andlega. Ég hefi fundið marga, sem mér hefur fundizt algerlega andlega heilbrigðir, og einn af þeim er Loft- ur á Sandlæk. Hann stenzt prófið með prýði, maður- inn, sem fer til systur sinnar, þegar öll sund virtust lokuð, og vinnur henni og börnum hennar, meðan þess þurfti með. Þetta, þó ekkert væri annað, er nóg til þess, að ég rita þessar fáu línur með ánægju fyrir Heima er bezt. Loftur hefir fullan rétt á því, að hans sé minnzt við hlið margra mætra sona og dætra aldamótakynslóðarinnar, sem nú er sem óðast að hverfa bak við tímans tjald. Að endingu veit ég, að allir Hreppamenn þakka Lofti og hinni ágætu konu hans fyrir margvíslega fyrir- greiðslu um áratuga skeið, þar sem þau hafa verið á vegamótum. BRÉFASKIPTI Pálmi Arni Gudmundsson, Hlíðarvegi 15, Bolungarvik, óskar eftir bréfaskiptum við pilta eða stúlkur á aldrinum 13—14 ára. Helga Hannesdóttir, Gilsstreymi, Lundarreykjardal, Borgar- fjarðarsýslu, óskar eftir bréfaskiptum við pilt eða stúlku á aldrin- um 13—15 ára. Sigriður Hannesdóttir, Gilsstreymi, Lundarreykjardal, Borgar- fjarðarsýslu, óskar eftir bréfaskiptum við pilt á aldrinum 16—18 ára. Guðbjörg Erla Kristófersdóttir, Stillholti 4, Akranesi, óskar eftir bréfaskiptum við pilta á aldrinum 16—17 ára. Guðjón Ólafsson, Sundstræti 14, ísafirði, óskar eftir bréfaskipt- um við stúlkur á aldrinum 16—19 ára. Mynd fylgi fyrsta bréfi. Hallvarður Ólafsson, Gistihúsi Hjálpræðishersins, ísafirði, óskar eftir bréfaskiptum við stúlku á aldrinum 17—19 ára. Mynd fylgi fyrsta bréfi. Gunnhildur Arnþórsdóttir, Mörk, Fnjóskadal, Suður-Þingeyjar- sýslu, óskar eftir bréfaskiptum við pilta á aldrinum 20—30 ára. Mynd fylgi fyrsta bréfi. Friða Arnþórsdóttir, Mörk, Fnjóskadal, Suður-Þingeyjarsýslu, óskar eftir bréfaskiptum við pilta á aldrinum 15—18 ára. Mynd fylgi fyrsta bréfi. Hrefna Magnúsdóttir, Svínafelli, Öræfum, Austur-Skaftafells- sýslu, óskar eftir bréfaskiptum við pilta og stúlkur á aldrinum 12 —14 ára. Solveig Guðlaugsdóttir, Svínafelli, Öræfum, Austur-Skaftafells- sýslu, óskar eftir bréfaskiptum við pilta og stúlkur á aldrinum 11 —14 ára. Kristbjörg Guðrún Steingrimsdóttir, Ytri-Tungu, Tjörnesi, S.- Þingeyjarsýslu, óskar eftir bréfaskiptum við dreng eða stúlku á aldrinum 13—15 ára. Ólöf Anna Steingrimsdóttir, Ytri-Tungu, Tjörnesi, S.-Þingeyjar- sýslu, óskar eftir bréfaskiptum við dreng eða stúlku á aldrinum 10 —12 ára. Björn Sigurðsson, Breiðumörk, Jökulsárhlíð, N.-Múlasýslu, óskar ftir bréfaskiptum við stúlkur á aldrinum 17—19 ára. Mynd fylgi fyrsta bréfi. Eirikur Helgi Hrafnkelsson, Hallgeirsstöðum, Jökulsárhlíð, N.- Múlasýslu, óskar eftir bréfaskiptum við stúlku á aldrinum 16— 19 ára. Mynd fylgi fyrsta bréfi. Guðrun Eiríksdóttir, Hlíðarhúsum, Jökulsárhlíð, N.-Múlasýslu, óskar eftir bréfaskiptum við pilta á aldrinum 16—18 ára. Guðlaugur Aðalsteinn Stefánsson, Skriðu, Breiðdal, S.-Múlasýslu, óskar eftir bréfaskiptum við stúlku á aldrinum 15—17 ára. Jónina Guðný Bjarnadóttir, Þrastalundi, Norðfirði, S.-Múla- sýslu, óskar eftir bréfaskiptum við pilta og stúlkur á aldrinum 14 —16 ára. Jóhanna Thorarensen, Gjögri, Árneshreppi, Strandasýslu, óskar eftir bréfaskiptum við pilta eða stúlkur á aldrinum 16—18 ára. Kristin Guðjónsdóttir, Kjörvogi, Árneshreppi, Strandasýslu, ósk- ar eftir bréfaskiptum við pilta eða stúlkur á aldrinum 17—19 ára. Þuriður Guðjónsdóttir, Kjörvogi, Árneshreppi, Strandasýslu, ósk- ar eftir bréfaskiptum við pilta eða stúlkur á aldrinum 14—16 ára. Birna Halldórsdóttir, Steinþóra Guðmundsdóttir og Sigríður K. Guðmundsdóttir, allar í Húsmæðraskólanum á Hallormsstað, óska eftir bréfaskiptum við pilta á aldrinum 17—22 ára. Æskilegt að mynd fylgi fyrsta bréfi. Ragnhildur Helgadóttir og Þórunn Hjálmarsdóttir, Kvennaskól- anum á Blönduósi, óska eftir bréfaskiptum við pilta á aldrinum 17—19 ára. Æskilegt að mynd fylgi fyrsta bréfi. Ágústa Þórarinsdóttir, Miðstræti 16, Vestmannaeyjum, óskar eft- ir bréfaskiptum við pilta og stúlkur á aldrinum 21—25 ára. 154 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.