Heima er bezt - 01.05.1978, Blaðsíða 16

Heima er bezt - 01.05.1978, Blaðsíða 16
Mjög sjaldan var heitur matur á málum. En kæmi það fyrir, var það helst soðinn fiskur, síld eða fiskstappa. Kvöldmatur var að mestu hinn sami og morgunmatur- inn, nema skammturinn var öllu minni, nema af slátrinu. Stundum var þá aðeins slátur með spónamatnum. Hádegiskaffi var ætíð drukkið á sumrin, en nokkur óregla var á því á vetrum. Miðdegiskaffi var aldrei drukkið eftir að útivinnu lauk á haustin, nema þá með miðdegismatnum, í stað spónamatar. Hversdagslega var aldrei brauð með kaffi, en ef eitthvað sérstakt bar við, unnin voru erfiðari verk, svo sem svarðartekja og torfrista, bindingur og þessháttar, var ætíð brauð með kaffinu, oft- ast heitar lummur eða pönnukökur. Margrét húsfreyja var mjög á móti kaffidrykkju, drakk það helst ekki sjálf, og var svo um fleira gamalt fólk á þeim tíma, ef það hafði ekki vanist kaffi í uppvexti sínum. Hinsvegar þótti Stefáni kaffi gott, og hefði áreiðanlega oft þegið aukasopa ef til hefði verið. Með kaffi var sykur, tveir molar, og ætíð hafður rjómi út í það. Annað hefði þótt ósvinna. Miðdegismatur var með líkum hætti árið um kring. Mest var borðaður fiskur. Framan af vetri var mikið um siginn fisk, en annars saltfiskur. Framan af árum var fiskurinn oft misjafn að gæðum, þorskkóð og tros. Síðar var hætt með öllu að kaupa slíkan fisk, og var þá mest etinn pækilsaltaður þorskur. Sáu viðskiptamenn búsins út með firði fyrir honum, sem öðru sjófangi. Nýr fiskur var stundum á sumrin, þegar farið var á handfæri. Stefán átti bát, sem geymdur var niðri í Gæsavík, og þaðan var róið til fiskjar. í dagbókum þeirra bræðra sé ég, að oft hefir verið farið á sjó, jafnvel vikulega á sumrin, og stundum aflast vel, en seinna var miklu sjaldnar farið, enda þá orðið lítið um afla og litlu meira en í soðið einu sinni eða tvisvar á sumri. Stundum var róið með línu á haustin, ef vel viðraði. Naumast minnist ég þess, að nýr fiskur væri keyptur til matar, nema í hæsta lagi einu sinni eða tvisvar á sumri, og hann þá oftast sóttur út á Hjalteyri eða Sjáv- arbakka. Til viðbitis með fiski var bráðinn tólkur eða flot. Framan af vetri var ætíð hamsatólkur, þ.e. það sem ekki bráðnaði úr mömum til fulls var geymt, og síðan brætt upp og þá bætt í einhverju af tólk, ef hamsamir voru of þurrir. Viðbitið var borið inn á djúpum diski eða undir- skál, og dýfðu menn fiskbitanum í það og stungu honum síðan upp í sig. Á sumrin þegar matur var fluttur á engjar var ætið smér haft með fiski. Ætíð voru kartöflur með fiski og keti, og stundum gulrófur, en á sumrin var oft lítið um kartöflur og var þá brauð í þeirra stað. Stundum kom hrognkellsi utan með sjó á vorin. Góður þótti manni rauðmaginn, en grásleppan síður. En oft kom svo mikið af henni, að hún var látin signa eða söltuð. Engum þótti það góður matur. Ket var venjulega til matar á sunnudögum, og einn virkan dag í viku. Ætíð var það soðið í súpu, en með baunum ef meira var við haft. Bankabygg var haft út á súpur, meðan það fluttist, en síðan hafragrjón. Hrís- grjónasúpur voru sjaldan. Baunir voru ætíð hafðar mjög þykkar, ætíð heilbaunir, og fengu menn oft smérbita út í þær. Tólkarmoli þótti betri en ekkert. Altítt var að láta 160 Heima er bezt spón af súru skyri út í ketsúpuskálina, og sumir létu sýru- sopa og þótti það bæta súpuna. Æfinlega var skömmtuð sneið af súrum blóðmör með keti og súpu, og svo kartöflur og gulrófur. Á laugardögum var mjólkurgrautur eða heitur vatnsgrautur úr bankabyggi eða hafragrjónum og mjólk út á. Þegar heitt var á sumrin var oft hræringur eða nýtt skyr, og þá var skyrið venjulega sætt. Eins og gefur að skilja gátu komið afbrigði frá þessari föstu matarvenju, en þau voru furðufá. Yfirleitt var sára- sjaldan breytt til um mat, helst ef eitthvað óvanalegt féllst til, t.d. ef slátrað var kálfi eða stórgrip, ef nýr fiskur fékkst úr sjó, silungur úr ánni, ný síld eða eitthvað þessháttar, en annars var nýmeti sjaldséð á borðum. Nýtt ket t.d. aldrei nema á haustin. Hangið ket var sjaldan skammtað nema á tyllidögum. Helst var hjá(því sneitt, að hafa nautgripaket til matar, og ekki heldur ket af ungkálfum, ef unnt var að koma því á markað. Úr kálfsblóði var gerð villibráð. Það þótti unga fólkinu hnossgæti, en varla mun gamla fólkið hafa smakkað hana og sama var að segja um kálfsketið. Úr kálfshausum var gerð „sulta“ eða kálfsostur, sem kallaður var, og sett í súr. Kálfshausinn var kalónaður, þ.e. hárinu náð af í heitu varni. Bein af nautgripum, sem búið var að skera mesta ketið utan af, voru reykt og soðin síðan. Einkennileg meðferð var á nautgripafótum, vafa- lítið ævagömul. Þeir voru hengdir upp í fjósi, þangað til þeir voru svo úldnir að klaufimar losnuðu af og hárið einnig. Þá voru þeir verkaðir og soðnir, og þótti góður matur. Gamir og laki úr nautgripum var hreinsað og vafið upp í bagga, gamabagga, og síðan súrsað, það var góð- gæti. Annars man ég ekki eftir neinu sérstöku í meðferð nautgripakets og sláturs. Á æskuárum mínum var við- bjóður á hrossaketi enn almennur. Heima var því hrossa- ket sjaldan haft til matar. Alls man ég eftir þremur hross- um, sem höfð voru til heimilis, þó aðeins að hluta. Gömlu hjónin gátu alls ekki smakkað það, og mörgu af yngra fólkinu þótti lítið til þess koma. Ég man, ég heyrði roskinn bónda lýsa viðhorfi sínu til hrossakets svo: „Eg get rétt aðeins smakkað það magra, en mér þykir gott að unga fólkið læri að eta það“. Þetta held ég hefði getað átt við heima á Hlöðum. Framhald í nœsta blaði. Ekki sama hver vinnur óþrifaverkin Ólafur Bjamason hét maður og var sonur merkishjón- anna á Stafni í Svartárdal, Bjarna og Margrétar. Ólafur mun hafa verið talinn með efnilegri ungum mönnum þar 1 sveit en raskaðist eitthvað á geði og breyttist mikið við það og þótti sérkennilegur fyrir sína hegðan og tilsvör. Eitt sinn þegar alþingiskosningar voru framundan spyr Lárus í Grímstungu Ólaf: „Hverja heldurðu að þú kjósir nú á þing, Ólafur minn?“ - Hann svarar: „ Ég kýs líklega þá gömlu, því það er eins og ef maður fær mann til torfristu, þá er betra að það sé vanur maður.“ (Eftir frásögn Lárusar í Grímstungu).

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.