Heima er bezt - 01.05.1978, Side 19

Heima er bezt - 01.05.1978, Side 19
Húsið hennar Klöru Antonsen (nýbýli). gluggum. Næst brekku er steyptur áburðarkjallari, en fram af honum eru aðeins steyptar súlur, sem efri hæðin hvílir á, en sundur hlutuð að endilöngu. Annar hluti af- þiljaður og lokaður með hurð, hinn opinn, þar eru geymd amboð, orf, hrífur, hverfisteinn handsnúinn, og öll önnur handverkfæri, sem tilheyra störfum bóndans, þar var einnig þvottur þurrkaður. Til efri hæðar er gengið eftir stuttri landbrú frá brekku að hlið áburðarkjallara sunnan megin, næst dyrum er hún þakin timbri en möl fjær. Hurð opnast út, við tekur gangur, til hægri við hann er mjólkurhús, er geymir foma búshluti, skilvindu, strokk og önnur áhöld, sem notuð voru til mjólkurvinnslu. Á vinstri hönd er geymsla, gömul aktýgi hanga þar á uglu, og fleira er þar inni, sem bústörfin krefjast, niðurbútað birki, sem ætlað er í arinn ef rafmagn bregst. í enda gangsins eru dyr sem gengið er um til fjóss, þar eru básar fyrir þrjár kýr og kvígu, fjórar geitur, til hægri básar fyrir tvo hesta. Gólf er úr timbri, þykkum breiðum plönkum, er hvíla á 8—10 þumlunga sverum burðarbitum, gólf slitin, en allt er fágað og hreint, loft er yfir fjósi. Úr gripahúsum er gengið til hlöðu, sem mun rúma mikið meir en fóður handa þessu búi, enda veggja- og rishá. Allt er vel að viðum vandað, enda enn í fullu gildi þó fjörutíu ár séu að baki. Þessi húsaskipan var víðast viðhöfð í Noregi á þeirri tíð og fyrr. Gömlu skötuhjúin ganga hægt upp túnið til morgun- verðar. „Hérna í fjallinu handan dalsins gengu geiturnar mín- ar. Þegar ég vildi fá þær heim í mjaltir á málum, kallaði ég bara „geita geit“, og bankaði í mjólkurfötuna. Þá komu þær hlaupandi blessaðar. Þá var nú betra að vera viðstödd þegar þær komu, annars fóru þær aftur, þá þýddi ekkert að kalla, fyrr en í næsta mál. Þær eru bæði vitrar og stoltar geiturnar", segir Klara Antonsen. Á víð og dreif um túnið eru bjarkar- og seljuplöntur að teygja sig upp úr grasinu. Væri það ekki slegið yrði það orðinn skógarlundur eftir nokkur ár. Nú hefst morgun- verður, en svo sannarlega hefur þessi morgunstund gefið gull í mund, og þau eru ennþá drjúg morgunverkin. Bíll- inn er kominn að vegamótum. Frú Klara bíður þar með gestum sínum, það er kveðjustund. Bóndanum frá íslandi er efst í hug innilegt þakklæti, hjarta hans er svo undar- lega heitt þessa stund, hann leggur hönd um herðar þess- arar öldnu konu og kyssir hana á kinnina, það er vinar- kveðja frá íslandi. Hann heyrir að það er klappað í bíln- um, og einhvern segja: „Svona á það að vera“. Jörgen Dahl Ballangen segir við karl er í bílinn kemur: „Leið þér vel í nótt?“ „Það gerði mér“, svarar karl, „og nú hef ég fundið allt sem ég leitaði að í Noregi, einnig vissu um að í þessu landi á ég bæði frændur og vini. Sú vissa er það dýrmætasta, sem ég fer með heim úr þessari ferð“. Ekið er af stað til samkomuhússins í Ballangen. Þar liggja saman leiðir, og framámenn sveitarinnar kvaddir. Svo er haldið í suðurátt. Fyrst er landið líkt og umhverfi Narvíkur, dalir, fjöll, skógar og vötn skiptast á, en fljót- lega breytir um svip er nær dregur sjó, enda erum við hér skammt frá Vesturhafinu, þar sem vestan- og norðanvindar næða á vesturströnd landsins. Ekið er í gegnum fyrstu jarðgöngin, nokkur hundruð metra löng. Þar er rokkið inni þó raflýst séu, tvær eru akreinar og göngubrautir. Einhver ónotakennd grípur um sig hjá gömlum karli að vera inn í miðju fjalli, en brátt blasir við skógarhlíð, blátt sund og smá bær, það er Skarberget.Hér verða bílarnir ferjaðir yfir til Bognes, aðeins annar bíllinn kemst yfir í næstu ferð, því margir bílar biðu. Tveir aldr- aðir bændur, annar eyfirskur, tylla sér afsíðis meðan beðið er, þeir virðast hugsi. Svo segir eyfirski bóndinn eins Klara Antonsen og Guðrún Guðmundsdóttir. Heima er bezt 163

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.