Heima er bezt - 01.05.1978, Side 24

Heima er bezt - 01.05.1978, Side 24
fjarðarsýslu og Þingeyjarsýslu og þótti sérlega heppinn og góður læknir. Til lækningastarfa hafði hann sérstakt leyfi landlæknis gegn því skilyrði að hann semdi skýrslur um læknisstörfin. Eru þessar skýrslur enn til og þykja hinar merkustu. íslensk læknastétt hetur viðurkennt séra Jón sem einn úr sínum hópi með því að skrá nafn hans í Læknatal. Magnús sonur hans, sem seinna varð prestur á Grenjaðarstað, erfði læknishneigðina og er af sumum talinn faðir hómöepatíunnar á ís- landi. 3 Á árunum 1814-1815 ferðaðist enskur prestur, Ebenezer Henderson að nafni, um landið. Hann var úr söfnuði púrítana (heittrúarmanna) og kom hingað til lands í bíblíuhugleiðingum, og var stofnun íslenska Biblíufélags- ins (1816) árangur af komu hans. Séra Henderson skrifaði bók um þetta ferðalag sitt, og íslendingar hafa ætíð talið hana hina merkustu heimild um land og þjóð frá þessum tíma. Hend- erson kynntist séra Jóni Jónssyni á Auðbrekku, sem að áeggjan amt- manns, Stefáns Þórarinssonar, gerðist leiðsögumaður englendingsins um Hörgárdal og nágrenni. Séra Jón fór m.a. með Henderson í stutta heim- sókn til séra Jóns Þorlássonar á Ytri-Bægisá. Englendingurinn dáði þennan fátæka starfsbróður sinn fyrir þýðingamar á Paradísarmissi landa sins Miltons og Messíasardrápu þjóð- verjans Klopstocks sem um tíma var eins konar hirðskáld Friðriks 5. danakonungs. Þýðingar séra Jóns á Bægisá voru andleg afrek í augum þessa menntaða englendings, og úr því tækifærið gafst vildi hann ekki láta hjá líða að heimsækja hann. Verk Miltons og Klopstocks, kristileg heimspeki í ljóðaformi, töldust til heimsbókmenntanna á þessum tíma og em það að sumu leyti enn. Ebenezer Henderson fer miklum lofsyrðum um séra Jón Jónsson á Auðbrekku, dáir hann sem mann sem og fyrir þekkingu og lærdóm. Á ein- um stað í ferðasögunni segir hann m.a.: „... Hann gefur æskulýðnum sér- stakan gaum og álítur fræðslu hans vandamesta og mikilsverðasta hluta prestsskapar síns. Sókn hans er ein hin fjölmennasta, með fram undir fjögur hundruð sálir. Samt skrifar hann reglulega sálnaregistur um framferði þeirra og ástæður. — Jafnframt því sem séra Jón sér fyrir andlegum þörf- um fólks sins, eyðir hann allmiklu af tíma sínum til þess að lækna líkamann og er frægur um allt Norðurland fyrir læknisleikni sína...." [43]. Það er aðdáunarvert hversu glögg- skyggn hinn erlendi ferðalangur hefur verið, því að víða má finna heimildir fyrir því hvað hlutur séra Jóns Jóns- sonar hefur verið mikill í almennri upplýsingu ungmenna í Eyjafjarðar- sýslu og Þingeyjarsýslu á þessum ár- um, — og jafnvel meiri en haft hefur verið á orði. Engu er líkara en að starf hans hafi kafnað í frægð skáldsins á Ytri-Bægisá. 4 Bjöm Jónsson eldri ólst því upp á siðavöndu og hákristilegu menning- arheimili. Má vera að sú umvöndun- ar- og aðfinnslusemi sem hann hafði orð á sér fyrir seinna á lífsleiðinni eigi að einhverju leyti rót sína að rekja til uppeldisins. Eigi að síður þótti hann „... að öllu leyti hinn elskulegasti maður í um- gengni, hýr og glaðlyndur, mjög gest- risinn og sérstaklega alúðlegur við alla þá sem heimsóttu hann, tryggur og vinfastur, vel menntaður og dável greindur, en nokkuð fljótfær því sál- arfjörið var svo mikið. Reglumaður var hann hinn mesti, guðrækinn og kirkjurækinn, ...“ svo vitnað sé til eft- irmæla um hann í blaðinu Fróða, eftir Skapta Jósefsson ritstjóra. [44]. Voru þessir menn þó engir vinir. Ég tel þessa lýsingu Skapta rétta svo langt sem hún nær. En þó getur hann ekki seiglunnar sem var eitt höfuð- lyndiseinkenni Björns Jónssonar, því hann var bókstaflega ódrepandi á hverju sem gekk i margvíslegu bar- dúsi hans um dagana. Þessi lýsing Skapta Jósefssonar er ólíkt sanngjamari en sú sem Klemens Jónsson bregður upp af Bimi á einum stað i Akureyrarsögunni (bls. 105), en þar segir hann m.a.: „...í rauninni var Björn Jónsson frjálslyndur maður. Þó tók hann greinar gegn Jóni Sigurðssyni, en hann skorti menntun og einurð til að halda nokkurri verulegri stefnu fram. (( Það er ekki beinlínis hægt að halda því fram að hér sé rangt frá skýrt af Klemensi, en þessi orð hans eru mikil tímaskekkja. Hvaða umbótamaður um og eftir miðja 19. öld hafði ein- hverja fastmótaða stefnu í framfara- og þjóðemismálum? Jafnvel er hæpið að orða Jón Sigurðsson forseta við slíkt á fyrstu göngu stjórnmálanna. Var hann þó eini maðurinn sem mætti tengja við stefnufestu í stjórnmálum, eftir þeim skilningi sem nútímamað- urinn leggur í þetta hugtak. Einurðin í málafylgju kemur ekki inn í málið fyrr en með innreið pólitískra kerfa. Klemens ritar orð sín eftir að full- veldið var orðið staðreynd (1918), og þá hafði mikið vatn runnið til sjávar á pólitískum þroskaferli þessarar þjóð- ar. Enginn skyldi halda að Bjöm Jóns- son eldri og aðrir samtíma framfara- menn hafi á augabragði gert sér grein fyrir því eftir hvaða pólitískum brautum framfarimar ættu að renna, þótt þeir hrifust með af hinum nýja straumi sem flæddi yfir þjóðfélagið. En þeir gerðu sér grein fyrir að eitt- hvað mikið var að ske sem sjálfsagt væri að hagnýta sér. Margir þessara framfaramanna voru síður en svo þjóðernissinnaðir, sem auðvelt á að vera að sanna, en sú tilfinning jókst eftir því sem þeim lærðist að breyt- ingar á lífskjörum manna voru ná- tengdar baráttunni fyrir auknu þjóð- frelsi. En þessir menn áttu óskina, eldinn og seigluna. Og það varð síðar sögu- legt hlutverk Jóns forseta að tengja þessar eigindir ákveðinni pólitískri braut sem dugði til sigurs í sjálfstæð- isbaráttunni, þótt áralagið væri æði oft skrykkjótt lengi fram eftir árum. Þegar skrifað er um þessa 19. ald- armenn verður að setja sig í þeirra spor og kringumstæður, en ekki dæma þá eftir þróuninni, eftir að 168 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.