Heima er bezt - 01.05.1978, Side 32

Heima er bezt - 01.05.1978, Side 32
ingu. í sumar ætlar hún að dveljast á æskuslóðunum norður í landi. En hvað það er dásamlegt að koma heim, þó hér sé hrjóstrugt og kuldalegt hjá því, sem hún hefur vanist undanfarið. Með skipinu er einnig ungur piltur frá Eyrarvíkur- kauptúni, Sven ívarssen, norskur í föðurætt. Hann er einnig að koma frá námi, en á eftir tvö ár. Hann er að nema lögfræði og þykir hinn efnilegasti á allan hátt. 1 sumar verður hann heima og starfar við verslunina. Faðir hans er faktor í Eyrarvíkurkauptúni. Fyrir hugskotssjónum Valgerðar stendur mynd hins unga manns ómáð með öllu og það er eins og minning- arnar öðlist líf og liti. Hún er orðin ung aftur. — Ó Sven, elsku vinur minn! Ef þú vissir, hvað ég hef saknað þín. Manstu kvöldið, sem við komum heim? Kvöldið, sem skipið sigldi inn höfnina. Og nú stígur sagan fram með hjálp minninganna. Vala, eins og hún var kölluð þá og Sven hafa þekkst lítillega sem börn og unglingar, en aðeins sést tvisvar úti í Danmörku. Hún var í kvennaskóla úti á landi, en hann í háskóla í Kaupmannahöfn. Þau kynntust aðallega á heimleiðinni yfir hafið og fór vel á með þeim og nú eru þau orðin meira en lítið ástfangin. Margir á skipinu fylgjast með þróun kunningsskapar þeirra og það er allra manna mál að hér fari saman gæfa og gjörvileiki beggja og að þau séu eins og sköpuð hvort handa öðru. Vala og Sven sitja á bekk á þilfarinu er skipið siglir hægt inn höfnina. Hann tekur um hönd hennar. — Vala mín, þakka þér innilega fyrir samfylgdina heim. Hún horfir í augu hans, rjóð og hálf feimin, en hrifn- ingin leynir sér ekki. — Vala, þú ert svo falleg, elsku Vala. Viltu verða mér samferða alla tíð? Hann smáherðir takið um hönd hennar og dökkur, óstyrilátur lokkur strýkst við vanga hennar. — Sven, hvíslar hún, — þú meiðir mig. Hann losar um takið og segir lágt: — Ég sleppi þér aldrei fyrr en þú segir já. Hún brosir fagnandi. — Auðvitað segi ég já. Hann hvíslar ákafur: — Nú á ég þig. Þú mátt fá mig í staðinn. Eru það ekki slétt „býtti“? Ég, plataði þig, því ég sleppi þér ekki samt. Hann kyssir hana létt á kinnina. — Biddu bara, þetta er aðeins byrjunin. Þau horfa hvort á annað brosandi og sæl. — Já, segir hann. — Við förum saman í land, verðum saman hér og förum saman norður, heim. Gaman verður að vita, hvað fólkið segir Þau stóðu upp. Nú er skipið að leggjast að. — Þú kemur með mér heim til Ölmu, föðursystur minnar. Mig langar til að sýna henni þig. Hún er um fimmtugt, hefur aldrei gifst, hvernig sem á því stendur. Hún er besta frænka í heimi, að mér finnst. Vala lét hann ráða. Þau kvöddu kunningjana á skipinu og Sven náði í mann, sem flutti farangur þeirra heim til Ölmu, en það var ekki löng leið, því höfuðstaður landsins var ekki svo stór í þá daga. Alma bjó í litlu, snyrtilegu timburhúsi og kom til dyrannna, lítil, gráhærð en ótrúlega ungleg. Sven tók hana í faðminn og knúskyssti hana svo hún náði varla andanum. — Komdu blessuð og sæl frænka mín. — Nu er du glad Sven, sagði Alma og leit spyrjandi á hann. — Já, það er ég. — Hver er með þér? spurði hún þegar hún sá Völu, sem stóð við dyrnar. Hún leit athugulum augum á hana, en rétti henni svo höndina og brosti um leið og hún kynnti sig. Vala gerði hið sama. — Má ég „presentere“. Þetta er hún Vala, konuefnið mitt. Hvernig líst þér á það, frænka mín? — Du Sven, ert mesti æringi ég þekkja. Alma horfði á þau til skiptis. Svo faðmaði hún þau að sér og kyssti á vangana. — Guð blessi ykkur, börnin mín, sagði hún hrærð. — Megi hamingjan fylgja ykkur ævinlega. Um leið sneri hún sér snögglega við og Vala sá, að hún strauk sér yfir augun, en líklega hafa það verið gleðitár? Hvað gat það annað verið? Þau dvöldu í besta yfirlæti hjá Ölmu nokkra daga. Fóru út, hittu skyldfólk og kunningja, en sælust voru þau, er þau fóru ein saman í gönguferðir um nágrennið, út á Nes, suður í hraun eða fengu lánaðan bát og reru út á Skerja- fjörðinn. Sven lét smíða hringana og þau ætluðu að setja þá upp heima á 23. ára afmælisdaginn hans, þann 5. júní. — Sven! Þú varst svo kátur og léttur í lund og öllum, sem þekktu þig þótti vænt um þig. Vinur minn! Ég hef sjaldan verið glöð síðan ég missti þig. Ég man þig enn, svo háan, íturvaxinn með dökka, liðaða hárið og óstýriláta lokkana, sem þú sagðir að væri norsk ættarfylgja. Svo man ég brosið þitt bjarta og hýra. Þú vildir alla gleðja og bæta úr því sem miður fór, hvar sem þú komst. Aldrei gleymi ég ferðinni norður með strandferðaskip- inu, í sumardýrð og sólskini. Að minnsta kosti finnst mér núna, að það hafi alltaf verið sólskin allt þetta vor og sumar. Líklega er það vegna þess, að ég lifði mesta lífs- hamingju á þessu eina sumri. Við dvöidum tvo daga heima hjá þér í Eyrarvík. Manstu hvað þau voru ánægð með okkur og vildu allt fyrir okkur gera? Ennþá held ég sambandi við þitt fólk, en það er nú orðið fátt eftir af því hér. Svo komum við að Fellsgrund. Þaðan hafði ég ekkert frétt lengi og þú þekktir lítið til þar þá. Við- Arndís kynntumst fyrst er hún var við nám hjá pabba ásamt fleiri unglingum í nokkrar vikur. Við urðum góðar vinkonur. Ég vona, að enginn hafi tekið eftir því, hve mér brá er ég heilsaði henni og sá strax hvað hún var alvarleg og óhamingjusöm. Ég sá líka að hún var komin langt á leið. Við fengum þar góðar viðtökur og innilegar hamingju- óskir, en ég sá á Arndísi að hana langaði til að tala við mig eina. Og þegar við sáum okkur færi, fórum við inn í hjónahúsið. Hurðin var ekki fyrr fallin að stöfum en Arndís fleygði sér hágrátandi i fang mér. — Elsku vina mín, stilltu þig, barnsins vegna, sagði ég. 176 Heima er bezl

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.