Heima er bezt - 01.01.1980, Blaðsíða 20

Heima er bezt - 01.01.1980, Blaðsíða 20
GÍSLI HÖGNASON, LÆK: Bændaför til írlands 13.-23. júní 1978 Fyrsti dagur í Dublin (9. þáttur) í dag gefa fararstjórarnir lausan taum og heimilt er að verja deginum að eigin ósk. Þeir sem árrisulir eru ganga niður að höfn og næsta nágrenni. Hótel Royal Marine stendur á horni Marinegötu að norðan en Drottning- argötu að austan, strandgötu, er liggur til norðurs í átt til miðborgar Dublin, um 8 km leið. Milli Drottningargötu og hótelsins er stór og fagur garður, Moran Park, sem mun vera jafngam- all hótelinu, því á hliðinu stendur ár- talið 1864. Garðurinn laðar til sín gesti, með trjám og blómaskrauti, klapparhæð, lítilli tjörn og lindahjali. Við norður horn garðsins ofan Drottningargötu, rís há granítsúla á stórum kletti. Undirstaða súlunnar var þó all sérstæð, fjórar granítkúlur mjög stórar, ein undir hverju hórni styttunnar, en efst á henni var kóróna. Á þennan bergrisa var greypt ártalið 1823. Hæðin sem hótelið stendur austan við, er all brött. Skagar í sjó fram og endar á klettabrúnum, sem um eru lagðar tröppur, göngubrautir og ak- vegur að hafnarsvæðinu. Hvar sem rót getur tá tyllt, er blómskrúð og tré. Beggja vegna þessa bogadregna tanga, sem höfnin liggur að, liggja hafnargarðar í sjó fram, sveigjast í stórum boga hver að öðrum og mynda hafnarmynni að austan. Sagt er að aðal þungavöruflutningar Dublin City fari um þessa höfn og svo hafi verið um langan aldur. Þennan morgun, 19. júní, mátti sjá þar skip af ýmsum stærðum og gerð- um, allt frá fiskibátum, ferjum til fólksflutninga og stórra kaupfara. Þó höfnin sé fögur vakti það enn meiri athygli hvað hún var hrein. Hvergi sást „stuf né hrukka,“ hvorki í höfn- inni sjálfri né fjörunni umhverfis hana. Báran lék sér í fjörunni, við rauðgulan sandinn, ótrufluð af að- skotahlutum. Enginn sást vargfugl á vakki, sem var íslendingum einstakt fyrirbæri. Þeir sáust frekar að húsa- baki umhverfis ruslatunnur og virtust vannærðir. Dublinarborg stendur við sam- nefndan flóa, sem einn fararstjórinn kallar svarta laufið. Dublinarflói af- markast af tveim hæðum, er ganga í sjó fram. Dalkey, sunnan Dun Laog- haire, en að norðan Howth, er gengur | í sjó fram og sveigir til suðurs austan Clontarf. Milli höfðanna munu vera 12-13 kílómetrar, bein sjólína. Fremst j á Howth eru raforkuverk, þar sem j mór eða kol er hreyfiaflið. Úr háum reykháfum sér maður bláan móreyk- I inn lyppast upp og liðast um bláan himinn. Norðanvert um Dublin, fell- ur áin Liffey í „Svörtu vögguna“, í gegnum nyrðri höfn borgarinnar. Frá 16 Heima er bezl

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.