Heima er bezt - 01.01.1980, Side 36
Burtu með pillumar, borðum rétt!
Nú í svartasta skammdeginu eykst salan á alls kyns fjör-
efna-pillum, en við getum sparað okkur þær ef við borð-
um rétt samsettan mat, því að öll þau fjörefni sem við
þörfnumst getum við fengið með því. Hér að neðan hefur
verið tekin saman tafla yfir þau fjörefni sem okkur eru
nauðsynleg, og hvar við nálgumst þau.
A
A-fjörefni er nauðsynlegt til
að styrkja mótstöðukraft
slímhimnu og húðar, og fyrir
eðlilegan vöxt bama. A-fjör-
efni er t.d. í feitum fiski (t.d.
síld og laxfiskum), smjöri og
slátri. Þá er það einnig í rauðu,
gulu og graenu grænmeti.
Dagsþörf A-fjörefnis er full-
nægt ef við borðum t.d. 1 lg af
lifur eða 18g af lifrarkæfu eða
eina gulrót.
Ef okkur skortir A-fjörefni
má búast við þvi að við kvef-
umst mikið og oft. Skorti A-
fjörefni hjá bömum er næsta
öruggt að þau vaxa hægt og
lítið.
K
K-fjörefni þurfum við svo sár
okkar grói, því ef það skortir
þá storknar ekki blóðið. Við
fáum þetta fjörefni t.d. í blað-
grænmeti, hveiti, höfrum og
tómötum.
D
I þessum fjörefna-flokki eru
mörg skyld efni, og geymist
hluti þeirra í húðinni og
breytist i D-fjörefni við sólar-
ljós. Þetta fjörefni þurfum við
til að líkamanum nýtist það
kalk sem hann fær í osti, skyri
og öðrum mjólkurmat, og er
beinum okkar nauðsynlegt. Ef
böm fá ekki nóg af D-fjörefni
harðna beinin ekki og þau fá
beinkröm. Ef við borðum nóg
af fiski, eggjum, smjöri og
slátri þá skortir okkur ekki
A-fjörefni.
B1
Bl-fjörefni er t.d. í grófu
mjöli, baunum og slátri, en
eyðileggst ef það er geymt í
hita, einnig er þetta fjörefni
eyðilagt ef grófa mjölið er
bakað með lyftidufti. Bl-fjör-
efnið er nauðsynlegt til að við
höldum góðri lyst, einnig
brýtur það niður alkóhól. Ef
okkur skortir þetta fjörefni
erum við þreytt, pirruð og
höfum höfuðverk.
E
E-fjörefni hefur þann eigin-
leika að eyðileggjast við sól-
arljós, og er nauðsynlegt til að
hindra A-fjörefnið í að eyði-
leggjast. Ef okkur vantar E-
fjörefni er hætt við að rauðu
blóðkomanna fari úr skorð-
um, og þar með sýruflutning-
ur líkamans.
B2
Þetta fjörefni þolir ekki ljós,
og verður því að geyma á
dimmum stað, en það er í
mjólk, osti, grófu mjöli og
kjöti. Okkur er þetta fjörefni
nauðsynlegt fyrir meltinguna,
augun og slímhimnuna. Ef
okkur skortir það lætur okkur
illa að vera í björtu ljósi og
okkur hættir við sárum í
munni og nefi.
Niacin
Þetta er eitt af þeim efnum
sem eyðileggst af lyftidufti, en
það er t.d. í klíði. Einnig er
það í nautakjöti, fiski, fugla-
kjöti og fl. Taugakerfið gerir
kröfu til að fá nóg af þessu
fjörefni, og ef okkur skortir
það, þá erum við pirruð og
þreytt og ef vöntunin er mikil
erum við jafnvel angistarfull.
c
C-fjörefni er t.d. í appelsínum,
hvítkáli og sítrónum, og þolir
ekki hita. Ef okkur skortir það
fáum við sár í munninn, og við
mikinn skort eigum við á
hættu skyrbjúg (blæðandi
tannhold). Líkaminn nýtir
bara ákveðið magn af C-fjör-
efni, neysla umfram þörf fer
út með þvaginu.
28 Heima er bezt