Heima er bezt - 01.04.1983, Qupperneq 8

Heima er bezt - 01.04.1983, Qupperneq 8
kíkja á landafræðina hjá Sigurði Þórarinssyni í Háskóla Islands og tók tvö stig að gamni mínu. Þetta lífgaði mig við og ég dreif mig til Stokkhólms til náms í jarðfræði haustið 1958. Þá var ekki farið að kenna jarðfræði við Háskóla íslands. Það var ekki fyrr en 10 árum seinna. Það þurfti dálítið átak til að rífa sig upp úr örygginu og halda út í óvissuna á ný, en ég sé aldrei eftir að ég gerði það. — Voru margar konur aö lcera jarðfrœöi í Stokkhólmi um leið og þú? — Já, og það var kannske þess vegna sem mér fannst svo gott að koma til Svíþjóðar.' Þegar ég fór héðan voru margir að furða sig á þessu uppátæki, og það mátti halda að ég væri eitthvað viðundur, en svo komst ég að því að um helmingur allra nemenda í jarðfræðideildinni í Stokk- hólmsháskóla voru konur. Þar var ástandið ekki ólíkt því sem það er hér núna. Margar þessara kvenna höfðu drifið sig í „öldungadeild“ og síðan í háskóla þegar um hægðist heima og bömin voru vaxin úr grasi. í Stokkhólmi kynntist ég Pálma Lárussyni, sem var þar við nám í verkfræði. Við giftum okkur svo 1960. — Hafa konur sótt í jarðfrœði síðari ár? — Já, það má segja að þær hafi flykkst í jarðfræðina og aðrar greinar náttúrufræða. Það höfðar til margra kvenna. Þetta er líka auðveldara eftir að námstækifærum í nátt- úrufræðum fjölgaði í Háskólanum hér. — Það hefur vakið athygli í nýlegum rannsóknum á menntunarmálum kvenna, að ennþá hœttir um helmingur þeirra námi eftir grunnskóla og eru því enn eftirbátar karla í þessum efnum. Gœti þetta verið hinn raunverulegi upphafs- punktur jafnréttisbaráttu kvenna? — Ég held að hún byrji raunverulega miklu fyrr, í frumbernsku og sé fólgin í uppeldinu, innrætingu og áhrifum frá umhverfinu. Það er oft búið að marka konum ,,/ Stokkhólmi kynntist ég Pálma Lárussyni, sem var þar við nám í verkfrœði": Elsa og Pálmi á Stokkhólmsárunum (1962). bás í lok skyldunáms og þær fá litlu um það ráðið, jafnvel ekki enn þann dag í dag. Það verð ég vör við. — Eiga konur með menntun erfiðara með að „komast áfram“ en karlar með hliðstœða menntun eða reynslu? — Eg verð að segja út frá minni reynslu, að meðan ég var við nám varð ég ekki vör við misrétti milli kynja í náminu sjálfu, en þegar ég kom á vinnumarkaðinn varð ég þess áskynja að það er ansi mikill aðstöðumunur konum í óhag og ræður ef til vill mestu um það staða þeirra innan fjölskyldunnar. Ég býst þó við því að ef ég væri bæði dugleg og metnaðargjörn hefði ég náð meiri frama í starfi, en það hefði bitnað á börnunum mínum og fjölskyldunni. Það hefur líka verið þannig, að minnsta kosti alveg fram undir þetta að körlum þykir ákaflega sárt að tapa fyrir konum þegar þau keppa á jafnréttisgrundvelli. Ég held að þeim finnist það auðmýking af versta tagi. Ég hef reynt að forð- ast að koma körlum í slíka aðstöðu, því að ég er fremur kjarklítil. Við búum í samkeppnis- og happdrættisþjóðfé- lagi, sem getur verið ansi strembið stundum, því að mörgu merkilegu er hafnað, sem ekki þjónar stundarhagsmunum keppenda og vinningshafa. — Hvert hefur svo verið starfþitt sem jarðfrœðingur? — Ég byrjaði sem sumarmaður hjá Raforkumálaskrif- stofunni meðan ég var í námi og vann við undirbúnings- rannsóknir vegna Búrfellsvirkjunar sumurin 1961 og 1962. Þegar ég kom heim 1963 fékk ég vinnu hálfan daginn hjá Raforkumálaskrifstofunni og í framhaldi af því á Orku- stofnun. Ég vann við rannsóknir á borkjörnum og einnig á botnefni Hvítár og þveráa hennar. Störf mín hafa þó fyrst og fremst verið tengd virkjanarannsóknum og þá einkum á Þjórsár-Tungnársvæðinu, ég hef haft umsjón með borun- um og öðrum rannsóknum og einnig unnið við jarðfræði- kortlagningu. Þetta er útivinna að sumrinu en vetumir fara í úrvinnslu og skýrslugerð. Ég var lengi vel í hlutastarfi, en frá 1978 hef ég unnið fullan vinnudag og vel það, vegna þess að á sumrin vinnur maður myrkranna á milli. Ég á tvö börn, Vilmund sem er fæddur 1965 og Guðrúnu Láru, sem er fædd 1967. Mér fannst erfitt að vinna úti með börnunum og mætti þar talsverðum andbyr. Margir, bæði konur og karlar, fundu að því að ég skyldi vinna úti þótt ég ætti góða fyrirvinnu og þyrfti þess ekki af fjárhagsástæðum. Mér var það hins vegar mikið sáluhjálparatriði að vera í Vilmundur, Pálmi og Guðrún Lára í Feneyjum. mlr% 116 Heimaerbezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.