Heima er bezt - 01.04.1983, Síða 13

Heima er bezt - 01.04.1983, Síða 13
MINNINGAR ÚR SUÐUR-ÞINGEYJARSÝSLU Heimilislíf og hugðarefni _________og sitthvað fleira_____ JÓRUNN ÓLAFSDÓTTIR FRÁ SÖRLASTÖÐUM ■ft Sörlastaðir í Fnjóskadal um 1927. Jónatan Davíðsson, Brúnagerði í Fnjóskadal, tók myndina. Hann keypti sér fyrstur manna myndavél á þessum slóðum og notaði hana óspart, okkur nútímafólki til góðra nota. Þáttur þessi var upphaflega saminn sem hluti mun viðameiri þáttar í 11. bindi bókaflokksins „Aldnir hafa orðið“, sem kom út fyrir síðustu jól. Þáttur sá reyndist í heild of rúm- frekur fyrir þann ramma, sem honum var skorinn í nefndri bók og varð að fella eitthvað úr honum. Varð það ofan á, að þessum kafla var kastað burt. En að sjálfsögðu var það illt fyrir bygg- ingu þáttarins í heild og rýrir að mínu mati all verulega gildi hans, þar sem i kaflanum er sitthvað sem nauðsynlegt var að kæmi fram, til nánari skýringar og undirstrikunar á mörgu því sem í þættinum er birt, og hefði ennfremur orðið viss fylling. Ákvað ég því að kaflinn skyldi á „þrykk“ og fékk með góðu móti rúm fyrir hann í Heima er bezt, því víðlesna og vinsæla riti. Fannst mér það besta úrlausnin þar sem svo féll, sem frá er skýrt. Jórunn Ólafsdóttir. -Bærinn á Sörlastöðum —sá sem ég man fyrst og lengst var, sem flestir bæir á þeim tíma, gjörður úr torfi, grjóti og timbri. Hann var stór og líkt sem gerð hans hefði verið miðuð við mannmargt heimili og gjarnan tví- býli. í framhúsi (langhúsi) voru, auk bæjardyra, þrjár stofur, tvær all stórar og góðar, var önnur gestastofa, nefnd í daglegu tali „Bláastofa“, því að hún var blámáluð í hólf og gólf, en hin ómáluð og kölluð „Hvíta stofa“. Þar sváfu gestir tíðum og ýmsir sem dvöldu um skamman tíma. Þriðja stofan var lítil og eigi máluð, en samt þokkalegt herbergi —kölluð „komp- an“. Hana hafði húsmennskufólk til umráða — jafnan. Allar voru stofur þessar óupphitaðar, og því æði svalt þar í kuldatíð á vetrum. Yfir stofun- um voru tvö mjög rúmgóð geymslu- loft og var gengið í þau um stiga úr gangi, sem skildi að framhús og inn- bæ. Fráskilin aðalbyggingu (fram- húsi) syðst á hlaði, stóð skemma, ágætt geymsluhús með all miklu rými. í innbænum voru tvö rúmgóð eldhús, hlið við hlið, stórt búr, tvískipt og göng, allrúm, úr hverjum gengið var í eldhús, búr og baðstofu, sem var innst bæjarhúsa. Hún var stór og skiptist í „frambaðstofu" og „hjónahús“. Raðir rúma voru undir hliðum og tvö við suðurstafn, öll negld föst utan eitt, það sem var beint á móti baðstofu- dyrum. Gluggar voru litlir, aðeins fjögurra rúða og gluggakistur djúpar. Var birta því ekki sem best varð á kosið. Skarsúð var í baðstofunni úr þykkum völdum viði eins og þiljurnar og gólfið. Frambaðstofan var ómáluð, en hvítskúruð og hreinleg jafnan. Hjónahúsið var málað í blágrænum ht. Hurð var brún með sérkennilega fallegum húnum á handfangi. Fjós var undir palli baðstofunnar og þaðan fékkst ylurinn. Til hliðar við fjósið var stórt hlóðaeldhús og út frá því torf- Heima erbezt 121

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.