Heima er bezt - 01.04.1983, Síða 15

Heima er bezt - 01.04.1983, Síða 15
líka verið afar misjöfn, sem þetta fólk bjó við, bæði að því er varðaði hús- næði og nytjar af landi. Á þessum árum kom í Sörlastaði systursonur föður míns, Sigtryggur Friðriksson frá Vindheimum á Þela- mörk, og gjörðist þar heimilismaður um hríð, og vann bæði þar og víðar. Skepnur sínar hafði hann að sjálf- sögðu á Sörlastöðum. Átti hann fallegan fjárstofn og léttan hest, sem hann annaðist um af mikilli alúð. Sigtryggur var efnismaður og varð foreldrum mínum mjög kær og hand- genginn og mikill vinur okkar syst- kinanna. Hann varð síðar bóndi í Sellandi í Fnjóskadal, en fórst, þegar hann var á besta aldri í snjóflóði. Þá fór harmur um hugi. Þetta átti sér stað haustið 1934. Vorið eftir flutti ekkja Sigtryggs, Sigurbjörg Benediktsdóttir frá Breiðabóli, ásamt fjórum ungum börnum þeirra til átthaga sinna á Svalbarðsströnd. ííér hefir verið talið það fólk, sem heimilisfast var á Sörlastöðum svo langt, sem ég man. Sumt dvaldi aðeins skamma hríð, en annað í áraraðir. Kaupafólk var oft tíma og tíma, verkamenn við margskonar störf og fólk, sem var einstætt eða heilsubilað, dvaldi um stundarsakir, var því alloft mannmargt löngum. Gestkvæmt var og mjög á þeim tíma sem hér frá grein- ir. Eðlilega skóp þetta eril, umsvif ýmisleg og ríka önn, sem mæddi einna mest á móður minni og stúlkum hennar, einkum þeim Jónínu og Elísabetu, áðurnefndum, sem tekið höfðu órofa tryggð við heimilið, unnu því eins og þær ættu það og væru okkur systkinunum sem mæður. Veitti slíkt ómælda blessun. Móðir mín var stjórnsöm húsmóðir og leið ekki leti, vanrækslu eða lélega unnm verk — þurfti og sjaldan við slíkt að búa. Hún var mjög snyrtileg í öllum störfum, hreinlát og reglusöm með afbrigðum. Á verði skyldunnar vakti hún af þeirri trúfesti, að henni fannst sem hún mætti helst aldrei af heimilis- arninum líta. Þar skyldi eldurinn ekki fölskvast, því að öllum sem við hann bjuggu varð að vera hlýtt. Móðir mín fór sjaldan af bæ nema til kirkju sinnar og stöku sinnum í kaupstað, til Akureyrar. Að vísu skrapp hún til næstu bæja, en tæplega án erindis. Það var bjargföst sannfæring hennar að heima væri best. Ein af lífsreglum móður minnar var að fara hægt i sakirnar með að stofna til vináttu, gætti hún þar varfærni og íhygli. En þegar hún á annað borð sýndi velþóknun og gaf trúnað sinn urðu til þær tryggðataugar sem tengdu æfilangt. f stóru skapi hennar, sem henni tókst allajafna að stilla, vottaði ekki fyrir brigð. Félagsmálaáhugi föður mins var mikill og framlag hans til sveitar- félagsins í þá veru var vel þegið. Gegndi hann áratugum saman fjöl- þættum trúnaðarstörfum. Tíunda ég þau ekki, en vil fullyrða að þau voru honum ánægjuauki, viss lífsfylling — og á ýmsan máta ávinningur. Hann eignaðist traust þeirra sem hann vann með og vann fyrir og var, að mér er óhætt að segja: mjög vinsæll maður. Félagsmálastörfin gáfu föður mínum tækifæri til að fara út á meðal fólks, mæla það málum og blanda við það geði. Hann naut viðræðna og var maður gleðinnar á mannamótum og hvar sem hann kom gestur. En oft mun hann líka hafa átt sínar áhyggju- og andvökustundir vegna félagsmála- stappsins. Vissi ég þess dæmi að það gekk nærri honum. Eðlilega útheimti það ferðalög og fjarvistir, svo um munaði og tók einnig drjúgan skerf af tíma hans heima, hvað oft kom að marki niður á heimilinu. Húsfreyj- unni var ekki heldur alltaf hlýtt í þeli til starfa húsbóndans á opinberum vettvangi. í því efni var aldrei um að ræða fulla sátt. r- A meðal þeirra mörgu sem að garði bar á Sörlastöðum, voru ýmsir sem mótuðust skýrt í minni — karlar og konur, sem með framkomu sinni og hæfileikum skópu góðar og ógleym- anlega skemmtilegar stundir með heimamönnum. Auk sveitunga var hér um að ræða Eyfirðinga, en þó al- veg sérstaklega Bárðdælinga, sem voru tíðir gestir, að heita mátti allan ársins hring, einkum þeir, sem bjuggu vestan Skjálfandafljóts. Stóð það eigi ósjaldan í sambandi við fjárleitir og fleira búskap varðandi. En líka lá um Vallnafjall og Vaðlaheiði leið þeirra þá farið var til Akureyrar og vestur- sveita eða komið þaðan. Þótt fjall- garður skildi, voru þetta grannar okkar og urðu heimilisvinir — margir hverjir. Yfirleitt var vinum að mæta hvar sem var og gott eitt að gjalda þeim, sem voru með á vegi. Alltítt var að langferðamenn gistu dalabæinn. Voru ýmsir þeirra skemmtilegir í við- ræðu, fræddu og glöddu og fluttu með sér ferskan blæ þess lífs, sem þróaðist í fjarlægð. Þegar svo að kynni urðu af útvarpinu bar aðeins til, að þar komu fram einhverjir þessara manna, og var það eins og hlý snerting við liðnar ánægjustundir. 2^.rið 1931, — ári síðar en Ríkisút- varpið tók til starfa, var keypt viðtæki á næsta bæ við Sörlastaði, Snæ- bjarnarstaði. Þar bjó móðurbróðir Heimaerbezt 123

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.