Heima er bezt - 01.04.1983, Síða 16

Heima er bezt - 01.04.1983, Síða 16
minn, Jón Ólafsson, ásamt konu sinni, Guðrúnu Árnadóttur og einkasyni, Ólafi Þorsteini. Með því barst and- blær heimsmenningarinnar til hins fábrotna umhverfis. Um leið og tæk- inu hafði verið komið fyrir sem þurfti, svo að það gæti starfað, var kallað á okkur heima að koma í heimsókn og hlusta á útvarpið. Munum við víst ekki hafa látið segja okkur það tvisv- ar. En ekki man ég nú lengur hversu við vorum mörg, sem fórum í þessa fyrstu för til útvarpshlustunar. En eftirvænting var rík hjá okkur, a.m.k. var hún slík hjá mér, að ég man ekki eftir henni öllu meiri í annan tíma. Strax og komið var í Snæbjarnar- staði flýtti ég mér sem mest ég mátti inn í baðstofu til að sjá þetta töfra- tæki, sem gat flutt talað orð og tóna vítt og breitt úr órafjarlægð. En þetta var svo sem ekkert stórkostlegt að sjá — lítill, brúnn kassi með fáeinum tökkum, og annar ofan á, gjörólíkur að lögun. Svo var hreyfður takki á tækinu, ljós kviknaði og um leið heyrðist lágt suð, og litlu síðar mannsrödd, hver mælti orð, sem heyrðust mjög skýrt, eins og sá sem talaði væri staddur i stofunni hjá manni. Litlu síðar skipti um — tóna- regn streymdi yfir, unaðslega fagurt. En sú dýrð. Þegar ég lít yfir mína liðnu daga, er ég ekki í vafa um, að þótt margt sem fyrir bar á vori æfinn- ar hefði rík áhrif, þá var það að heyra í útvarpi í fyrsta sinn, mín mesta upp- lifun. Þær urðu margar ferðirnar, sem við á Sörlastöðum fórum til okkar góðu granna á Snæbjarnarstöðum til að hlýða á tal og tóna sem öldur ljósvak- ans báru. Ýmislegt af því loðir enn í minni. Þetta var svo stórt og nýstárlegt að athyglisgáfunni var óspart beitt og minnið skerpt. Ýmsir fleiri en við á Sörlastöðum komu í Snæbjarnarstaði til að fá að njóta útvarpsins. Stundum voru það þó nokkuð margir sem röð- uðu sér í kring um viðtækið í baðstof- unni á þeim stað og drukku í sig það, sem barst í gegnum það og veitt fékk snertingu við umheiminn. Öllum var tekið tveim höndum af húsráðendum, og við eggjuð á að koma sem oftast. Voru veitingar í té látnar af rausn og ekkert til sparað að þetta gæti orðið sem ánægjulegast. Skapaðist í kring- um þetta viss stemming, sem ég á um hinar bestu minningar eins og annað varðandi hið mæta heimili á Snæ- bjarnarstöðum, sem var tengt mínu heimili ættar- og tryggðaböndum. að var svo í kring um 1940 sem útvarp kom á mitt heimili. Páll bróðir minn hafði farið í kaupstað eitt sinn sem oftar, og þegar hann kom heim hafði hann meðferðis ókennilegan kassa allþungan, sem hann fór varlega með. Hann kom og með mann með sér, sem ekki var von á sem gesti. Skýrðist skjótt að gestkoma sú stóð í sambandi við það, sem kassinn hafði að geyma. Að kvöldi þessa dags ómaði „Útvarp Reykjavík“ í stofunni heima og fögnuði þeim, sem þessi tvö orð vöktu ætla ég ekki að lýsa. Ótaldar voru ánægjustundirnar sem útvarpið veitti. Og spurning vaknaði — þessi: „Hvernig var hægt áður að una lífinu án þessa“? Útvarpið var dýrleg gjöf til þjóðar- innar, ekki síst þess hluta hennar, sem bjó við einangrun, langræði og erfiðar samgöngur. Eg efast um, þegar starf- semi útvarpsins er mæld og metin eftir þá liðlega hálfu öld, sem hún hefir varað, að þetta sé nægilega yfirvegað, og a.m.k. ekki þakkað sem skyldi af öllum þorra fólks. Síðan Sjónvarpið tók til starfa, að ekki sé minnst á Vídeó-vitfirring- una, hefir útvarpið þokað mjög í skuggann og það jafnvel verið nær einskis metið af sumum og sett út í horn. Er slíkt illa farið og síst til fremdar, ein af mörgum sönnunum þess að of oft gleymist það sem vel er gjört. Fyrir enga muni vildi ég vera án útvarps, því að á það hlusta ég alla jafna mjög mikið, og tel það sannan heimilisvin. En sjónvarpið get ég látið lönd og leið tímum saman, mér að meinalausu, þótt sitthvað gott megi að sjálfsögðu um þann fjölmiðil segja. F aðir minn keypti talsvert magn blaða og tímarita, raunar um efni fram, en þannig opnaðist honum gluggi út að umheiminum og þess varð hann að fá notið. Hann las þetta með ríkri athygli og nokkuð sterkri gagnrýni og myndaði sér sínar föstu skoðanir sem ógjarnan högguðust. Samt átti hann til að bera víðsýni og visst umburðarlyndi og var oftar en hitt í takt við æðaslátt líðandi stundar. Hann fylgdist alla tíð, en ekki síst eftir að útvarpið kom til sögunnar, mæta vel með þjóðmálum og ræddi þau seint og snemma við gest og gangandi. Stjórnmálastefna hans var fastmótuð. Hann fylgdi Framsóknarflokknum — án hiks eða efa. Bókasafn átti faðir minn nokkurt, en þó mun minna, en hann hefði ósk- að sér. En efni brast til að kaupa bækur, nema í litlum mæli. Lestrar- félag var starfandi í dalnum og voru bækurnar látnar ganga á milli bæja eftir vissum reglum. Þetta notaði hann sér út í æsar og las áreiðanlega hverja bók sem barst þannig, ef ekki upphátt fyrir fólk sitt, þá fyrir sjálfan sig. Hann var örfljótur að lesa og eftir því þol- inn. Mun hann oft eftir hinn erfiðasta vinnudag, hafa lesið mestalla nóttina, ef um gott efni var að ræða, sem tók hugann fanginn. Hann hafði oft miklar skriftir í sambandi við félags- málastörf sín og vann aðallega við þær á kvöldin. Samt reyndi hann að finna stundir til að lesa upphátt, bækur, blöð og tímarit. Oft las hann heilu kvöldin, en skrifaði svo gjarnan á nóttunni. Faðir minn las listavel að dómi allra, sem heyrðu. Hafði hann þrótt- mikla rödd og gott lestrarlag, og bar svo skýrt fram að ekkert orð tapaðist. Þegar hann hætti lestri í það og það skiptið, ræddi hann löngum um lestrarefnið á eftir við heyrendur sína, inntak þess, mál og stfl. Dró hann fram það, sem fagurt var og bætandi, að hans mati, en líka misfellurnar, málgalla o.fl. og kom af stað umræð- um um þetta, sem oft teygðist úr, en sem voru skemmtilegar og gátu verið mjög gagnlegar og þroskandi og fengu því til leiðar komið að verkið, sem um var rætt festist mun skýrar í minni en ella hefði orðið. Lflca skóp þetta ígrundun, áhuga á að vega og meta og leikni í að verja og sækja í málflutningi — veitti auk þess víð- sýni. Var þetta því útaf fyrir sig góður skóli. Eru mér margar slíkar stundir í baðstofunni heima ógleymanlegar. Þegar svo að kvöldvakan endaði með orgelspili, söng og lestri hugvekju og bænar, var einsætt að gott myndi að hverfa á vit hvfldar og drauma. F aðir minn las húslestur á hverju kvöldi á föstunni og sungið var úr Passíusálmunum, lflca var lesið hvern helgan dag yfir veturinn, ef unnt var. Á sumrin var sjaldan lesið, nema þá við sérstök tækifæri. Frá því að fyrst ég man, var ætíð lesið úr ræðusafni prófessors Haralds Níelssonar „Árin og eilífðin. “ Hin bjarta og heita trú hans, frjálshyggja og víðsýni, auðug andagift og snilldartök á máli hrifu bæði föður minn og móður og barst til 124 Heimaerbezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.