Heima er bezt - 01.09.1983, Side 9

Heima er bezt - 01.09.1983, Side 9
Á síðustu 10 árum hafa viðhorf gerbreyst í þessum efnum. Raforkuverð til almenningsnota hefur stórhækkað, fyrri eigendur sveitarafstöðva sjá sáran eftir að hafa ekki haldið þeim við og þeir sem enn keyra slíkar stöðvar spara stórfé. við aukum vatnsstraum, sem gat hnikað 20 g kúlu úr stað, um helming, getur hann þá hreyft kúlu sem er 64 sinnum þyngri?1 „Já, því að formúlan segir okkur, að ef straumhraðinn er tvöfaldaður, þá vex krafturinn í 26, eða tveimur í sjötta veldi sem kallað er.“ Þe 6f*dV TV16YITI hafd eðlislægt vald yfir og til- finningu fyrir þessari „tæknilegu" heilastarfsemi, þá er unnt að hrifsa mátt úr sakleysislegum brekkum og láta orku spretta fram, nánast úr jakkaerminni eins og sjónhverf- ingamaðurinn. „En ég hefði viljað læra meira og fá betri undirstöðu,“ segir Jón. Árið 1959 hófu Jón og Hildur kona hans að byggja íbúðarhúsið í Árteigi, sem þau fluttu í 1961. Og 1964 reis þar skammt norðan við verkstæðishús upp á 230 m2. Þar hófst svo framleiðsla á súgþurrkunarblásurum og gnýblás- urum, sem líka voru kallaðar heybyssur. Slík tæki fram- leiddi Jón í tugatali, en smíðaði líka mykjusnigla, áburðardreifara og flaghefil, svo eitthvað sé nefnt. Þekktastur er Jón Sigurgeirsson í Árteigi hins vegar fyrir túrbínusmíð sína og afskipti af heimarafstöðvum um land allt. „í upphafi var þetta dútl“, segir hann. 1950 setti hann upp fyrstu rafstöðina heima hjá sér. Nú getur hann horft til baka yfir sögu um 40 virkjana, þar sem hann hefur komið við sögu á einn eða annan hátt. Hann hefur í rauninni framkvæmt það ótrúlega afrek að virkja á annað megavatt af raforku fyrir landa sína. Hann segir brosandi og ætlar því líka að vera til skemmtunar: „Það er svipað og raf- magnsframleiðsla Kröfluvirkjunar hefur verið annað slag- ið“. Virkjanir Jóns eru á svæðinu frá Fáskrúðsfirði að austan, til Nesjavalla í Grafningi að vestan. Þær eru í Þingeyjar- sýslum, Eyjafirði og á Vestfjörðum. Og sú virkjun sem hæst stendur yfir sjó á fslandi, við Skíðaskólann í Kerlingar- fjöllum, er verk Jóns. Stærsta rafstöð á íslandi með inn- lendri vél er að Húsafelli í Borgarfirði, 160 kW að stærð. Höfundurinn var að sjálfsögðu Jón Sigurgeirsson. Jón smíðar ekki aðeins túrbínur, eða hjól, í virkjanir sínar, heldur allar vatnsvélamar og vatnspípur, en ekki sist gangráða. Gangráðar eru í fyrsta lagi notaðir til að halda jöfnum gangi á hraða stöðvanna, í öðru lagi til þess að stilla vatnið eða skammta það í réttu magni inn á vélina, og svo eru líka til gangráðar sem stjórna spennunni, þeir nefnast líka spennustillar. Gangráður þarf helst að vera í hverri vatnsaflsrafstöð. Jón Sigurgeirsson mun vera eini íslend- ingurinn sem smíðar slíka gripi. Er 'Ti Jón hefur ekki verið einn á báti í virkj- anaframkvæmduni sínum. Björn Þórhallsson á Ljósavatni hefur unnið með honum víða og sett upp sumar þeirra Túrbínan sem Jón smíðaði fyrir Húsafellsbændur í Borgar- firði er talin stœrsta vatnsvél eftir Islending fram að þessu. A neðri myndinni sést sonurinn Arngrímur við hina hlið henn- ar. Þar eru sjálfvirkir álagsarmar, sem stýra skurðinum á leiðiskóflunum (það glittir í eina þeirra efst til vinstri á efri myndinni). Myndir: MatthíasGestsson. Heimaerbezt 277

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.