Heima er bezt - 01.09.1983, Side 11

Heima er bezt - 01.09.1983, Side 11
En hvers er að gœta þegar taka skal ákvörðun um það hvort heimarafstöð borgar sig? Það er fyrst við hæfi að vitna í skýrslu Ágústs Halblaub fyrir RARIK í desember 1982:,,... á nokkrum svceðum landsins kemur vel til álita að reisa smœrri virkjanir í stað langra og e.t.v. óhagkvœmra línulagna.“ Þarna er kannski í uppsigl- ingu merkileg stefnubreyting af hálfu samveitnanna, sem áður vildu einkarafstöðvarnar feigar og gerðu eigendum þeirra erfitt fyrir á margan hátt. „Rafmagnsveitur ríkisins höfðu líka það sjónarmið, að bœndur skyldu hœtta við einkastöðvarnarf eins og segir í fyrrnefndri skýrslu Ágústs. En nú er hins vegar svo komið, segir hann á öðrum stað, að þeir sem héldu stöðvum sínum við „spara drjúgum á því að þurfa ekki að kaupa allt rafmagn frá samveitum“. Jón Sigurgeirsson segir mér, að þegar hann sé kvaddur til ráðgjafar verði hann fyrst að mæla eða láta komast að vatnsmagni og fallhæð. Ef virkjun er ákveðin þarf að at- huga, hvort hægt er að „ástengja“ rafal við túrbínuna, því velja verður gerð túrbínunnar með tilliti til þess. Ef ekki er unnt að ástengja verður að notast við reimar til að færa kraftinn á milli, sem er á ýmsan hátt örðugra og þá er hættara við skekkjum eða bilunum. Jón hefur ástengt vélar við fall frá 180 m niður í 9 m. Þess er líka nauðsynlegt að geta, að Jón telur það hafa verið mjög misráðið af samveit- unum að koma ekki upp 3 fasa rafmagni hvarvetna, því það er nú talið nauðsynlegt við stærri vélar. Sjálfur leggur hann aðeins 3 fasa rafmagn. ))^M[ér leiðist órökrétt hugsun“, segir Jón við mig. Hann hefur ekki tekið mikinn þátt í félagslífi í heimabyggðinni, en kynnst fjölda manns um allt land í sambandi við verk sín. Og geysilegur fjöldi fólks þekkir hann af afspurn. Jón segist vera mátulega þrjóskur, og mig grunar að hann sé einarður og hætti ekki við hálfnað verk. „Ég óttast atvinnuleysið og byggðaröskunina, sem ég get séð fyrir að hætta sé á í stærri mæli en við höfum áður séð á íslandi á síðari öldum“, segir Jón. Hann er á móti vatns- flutningum norðan að suður, eins og reynt hefur verið að byrja á uppi á hálendinu, þó með misjöfnum árangri. Jón vill láta virkja í smærri stÚ hingað og þangað, til þess að spara hringtengingu með línulögnum. Víða er góð og ódýr aðstaða til að virkja nokkur megavött. Byggðalínan er dýr, sömuleiðis Vestfjarðalínan. Hefur Jón Sigurgeirsson áhuga á öllum vélum, til dæmis bifreiðum? Nei, en hann ræður við alla þá tækni, til dæmis smíðaði hann 1966 frægan snjóbíl upp úr gömlum Peu- geot-bíl. Nei, ekki mikinn áhuga á bílum, en kannski flugvélum. Og hann hagnýtir sé alla tækni sem þörf er á. „Án vasareiknis gæti ég eg ekki verið“, segir hann. Jón Sigurgeirsson hefur barist við erfiðan sjúkdóm frá því hann var ungur og er fatlaður maður. Hann tekur þetta nærri sér og saknar hreystinnar sem hann naut þegar um- svifin voru sem mest. En það er honum hugsvölun að sjá syni sína taka til óspilltra málanna við að halda áfram ævistarfi hans. Sonurinn Sigurgeir er bóndi í Árteigi, Eiður Sýnishorn af hinum feiknarlegu fram- kvæmdum í Nípárgljúfri norðan við Grana- staðatorfubœina. A myndinniaðofan er stífl- an í ánni og inntaksrörið frá henni neðst á myndinni. Stíflan er m.a. soðin saman úr járnbrautarteinum. Eiður heldur á einni þeirri fjala sem unnt er að raða í stífluna til að hœkka fyrirstöðuna. Á innfelldu myndinni sést hreinsibrunnur nokkru neðan stíflunnar, í hann safnast mosi, slý og annað sem varasamt er að fá í aðveiturörin. Til vinstri sést hvernig pípurnar liggja í margra metra hæð í snarbröttum gljúfurveggjunum. Sprengja þurfti tugi tonna af grjóti til að geta komið þeim fyrir. Rörin eru ýmist úr plasti og stáli og frá þeim rennur vatnið í uppi- stöðulónið neðar í hlíðinni. Alls er rúmur kílómeter frá stíflu niður ístöðvarhúsið. Auk þessa er vatni safnað saman úr öðrum áttum, og því veitt ýmist um pípur eða rásir sem rist- ar hafa verið í jarðveginn. Heimaerbezt 279

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.