Heima er bezt - 01.09.1983, Síða 27

Heima er bezt - 01.09.1983, Síða 27
Gangráður frá Jóni Sigurgeirssyni. Hann mun vera eini íslendingurinn sem smíðar gangráða. Aflskortur varð stundum vegna þess að menn sviku sjálfa sig: Gerðu ekki nægar rennslisathuganir fyrirfram. Krafla var ekki fyrsta dæmið um skort á grunnrannsókn- um. . . Búnaður, stjórnun og rekstur Yfirleitt voru notaðir rakstraumsrafalar í þessum rafstöðvum, ýmist ástengdir, ef túrbínan snerist nógu hratt, eða þá reimdrifnir. Með því að nota rak- straumsrafala komust menn hjá ná- kvasmum hraðastillingum á túrbínun- um, þar sem ekki þurfti að hugsa um tíðnina á straumnum, eins og þegar riðstraumur var notaður. Það voru því ekki notaðir gangráðar til að stjórna hraða þessara véla, nema sjaldan, enda eru þeir dýrir. Þess í stað voru afköstin stillt í grófum dráttum með handstýrðum loka við túrbínuna og til- svarandi álag svo sett á vélina þannig að spennan héldist rétt. Þetta var oftast gert með því að setja fleiri eða færri hellur á eldavélina í samband eða þá rafmagnsofna. Á vegg í eldhúsinu voru því hafðir amper- og voltmælar svo húsmóðirin gæti stillt spennuna með breytingu á álaginu eins og með þurfti. En ef meiriháttar álagsbreytingar voru nauðsynlegar varð að stilla vatns- rennslið með túrbínulokanum, (nálinni, ef um peltonvél var að ræða), og þar með afköstin og spennuna. Þetta gekk yfirleitt vel, þvímönnum lærðist fljótt að hafa hæfilegt álag á vélinni, svo að spennan yrði rétt. Oft takmarkaðist aflgeta rafstöðvar- innar af vatnsrennslinu í læknum, en ekki af vélarstærðinni. Þetta var af því að stundum voru truflanir á aðrennsli vatnsins, sem stöfuðu af ís, krapi og snjó í læknum eða óhreinindum á rist- unum. Stundum var rennslið of lítið fyrir fulla afkastagetu vélarinnar og gat það stafað af langvarandi þurrkum á að- liggjandi úrkomusvæði eða þá lang- varandi frostaköflum á veturna og þar með rýrnun á aðrennsli vatnsins, sem oftast var yfirborðsrennsli en ekki upp- sprettuvatn og ekki tekið úr miðlunar- lónum. Þegar slíkt skeði, varð að tak- marka álagið á vélinni því að ekki mátti tæma inntaksþróna eða aðrennslispíp- una, því halda varð fullum vatnsþrýst- ingi, svo að rennslið nýttist. Rekstraröryggi smávirkjana Langflestar þessara sveitarafstöðva voru hreinar rennslisvirkjanir, þ.e. ekkert miðlunarlón var fyrir vatnið, svo að aflgetan var alveg háö rennsli lækjarins á hverjum tíma. Venjulega er vatnsrennsli mælt ínokkurár ífallvatni, sem virkja skal, svo að hægt sé að ákveða vélarstærðina. Þetta hafði oft ekki verið gert í sveitunum, heldur var það stundum mælt árið sem virkjað var eða árið áður, á þeim tíma ársins sem það var meira en minnsta rennsli. Þetta varð til þess, að menn sviku sjálfa sig, þannig að aflið varð stundum minna en aflgeta túrbínanna var, svo að aflskort- ur varð vegna vatnsleysis. Þetta kom oft fyrir að áliðnum vetri, þegar lang- varandi frost gengu, eða þá seinnipart sumars, ef lítið rigndi og þurrkar voru langvarandi. Einnig var þetta sums- staðar háð þvíhvað snjór ífjöllum entist lengi fram á sumarið til miðlunar, en það breyttist nokkuð með hlýnandi loftslagi í seinni tíð. Alltaf var reynt að velja rafstöðinni stað við læk eða á, sem næst notkunarstað, því að raf- magnslínur voru dýrar og orsökuðu orkutöp, ef þær voru langar, þar sem aldrei var um háspennulínur að ræða. Rafstöðin á Nípá, Kinn, S-Þing. Veðurfar og úrkoma Árin 1931 til 1960 var meðalhiti lands- ins 3,9 gráður og meðalúrkoma hvers árs var 962 mm. Meðalhiti og meðalúr- koma eru mæld á veðurstöðvum landsins, sem flestar eru í byggð. Lengd landsins frá austri til vesturs er 490 km og breiddin frá norðri til suðurs Mynd: Matthias (áestsson. er 312 km. Á landið falla því 99 km3 at vatni á hverju ári. Meðalhæð landsins er u.þ.b. 500 m yfir sjávarmáli og flatarmál landsins er 103.000 km2. Það er því augljóst, að miklir virkjunar- möguleikar eru hérlendis. Heimaerbezt 295

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.