Heima er bezt - 01.09.1983, Side 30
Hvað heitir staðurinn? Þar er elsta almenningsbókasafn á íslandi, þangað er ekki unnt að aka á
bíl og þar búa fáir allt árið. Á sumrin koma þangað þúsundir, menn, kríur, lundar og ekki síst teistur, en óvíða
er fleira af þeim. Á þessari mynd er það samt ungi ritunnar (,,skeglunnar“, eins og sagt er annars staðar á
landinu), sem mænir upp í hreiðrið sitt af steininum á miðri mynd. Vigdís Finnbogadóttir var fyrsti forsetinn sem
kom þangað í opinbera heimsókn.
Teikning: ÓHT.
Á eyju nokkurri
eyðir þessi náungi sumarfrfinu
sínu. Eins og þið sjáið er hann
gerður úr bókstöfum greyið. Ef
þið raðið þeim í rétta röð, sjáið
þið nafn eyjarinnar.
B>ysjo^ :jbas
Völundarhúsið
Það er sama hvaða hring þú notar sem upphafsstað, en hann er líka
endastöð þín. Þú átt að draga línuna gegnum alla hina 6 hringina,
en hún má aldrei skera sjálfa sig. Lausn birtist í næsta tölublaði.
298 Heima er bezt