Heima er bezt - 01.09.1983, Qupperneq 36
Sjálfsagt hefur þetta verið daglegur vani þeirra, og hafa
kannski drepið marga, — menn sem hafa svo bara týnst.
Um kvöldið er við komum til Winnipeg og vorum
komnir út af stöðinni, gengur stjóri fram hjá okkur og vissi
ekki fyrr en hann var alveg kominn upp að okkur og sá
hverjir það voru, greip hann til fótanna. Það er það síðasta
sem ég hef séð af þeim hundi.
Tékkunum okkar gátum við skipt og borgað manninum
lánið, og við hann skildum við á C.P.R. stöðinni daginn
eftir, heldur lítið ófullan. Við gáfum honum pyttlu í nesti.
Hann var að fara vestur að hafi, meira veit ég ekki um
hann. Skotinn sem með okkur var, varð eftir í St. John’s —
fékk víst vinnu þar. Við settumst að í Winnipeg eins og til
stóð og unnum við okkar iðn allt sumarið. En nú er ég einn
þar; hinir farnir. Filippus til San Fransisco, en Guðmundur
fór heim til Islands.
ATHUGASEMDIR
eftir Dr. Leigh Syms
1. CNR merkir Norður-Kanada jámbrautimar (Canadian
Northem Railway). Nafnið Canadian National Railway
var ekki tekið í notkun fyrr en áratug síðar.
2. Þetta er ranghermi. Ekki er ljóst hvort Magnúsi hefur
misheyrst vegna tungumálaörðugleika eða hvort ein-
hver hefur verið að gabba þá. Bæði við athugun á áætlun
jámbrautanna 1911 og skýrslum póststofunnar kemur
í ljós að þorp með þessu nafni var hvergi í norðvestur-
Ontario. Hins vegar em bæði St. John og St. Johns á
vesturströndinni.
Sennilega hefur þetta þorp verið Nipigon (sjá kortið),
og rökin fyrir því em eftirfarandi:
a) í ferðasögunni segir að þorpið sé um eina og hálfa
dagleið (u.þ.b. 50 mílur) frá Nipigon-vatni, og þetta er
eina þorpið svo nærri.
b) Þeir stönsuðu í smábæ sem hafði mjög lítið hótel.
c) Bærinn var á „jámbrautarenda", þ.e.a.s. eftir að
farið hafði verið fram hjá mörgum viðkomustöðvum, en
svo hlýtur að hafa háttað til um Nipigon, vegna einangr-
unar þeirrar byggðar.
3. í þessari frásögn, sem er eins og dagbók, vantar einn
dag, nema vegalengdin sé styttri en sú sem hann gefur
í upphafi. Leiðin sem lýst er telst nefnilega 148 mílur
og meðalhraðinn var um 30 mílur á dag. Munurinn á
þessari tölu og vegalengdinni sem gefinn er upp er 32
mílur.
Leiðrétting
Rósfríður Guðmundsdóttir og Halldór Halldórsson.
I myndbirtingu með viðtalinu við Magnús Bjarnason
í síðasta tölublaði urðu leiðinleg mistök á bls. 239.
Innfellda myndin var sögð af foreldrum Magnúsar,
en hún er hins vegar af tengdaforeldrum hans, móður
og föður Ingibjargar Halldórsdóttur. Það eru því
hjónin Rósfríður Guðmundsdóttir og Halldór Hall-
dórsson söðlasmiður, sem eru á myndinni. Eru les-
endur vinsamlegast beðnir að taka þetta til athugun-
ar. Það skal tekið fram að hér var um handvömm
blaðamanns að ræða, og ekki við höfund greinarinnar
eða aðra að sakast. Bið ég hlutaðeigendur afsökunar
á þessu glappaskoti. Ásamt myndinni af þeim hjón-
um með réttum texta birtist hér mynd af Bjarna Ein-
arssyni, föður Magnúsar.
ÓlafurH. Torfason.
Bjarni Einarsson, skipasmiður.
304 Heima er bezt