Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.1985, Qupperneq 2

Heima er bezt - 01.03.1985, Qupperneq 2
„En skynjum vér refskák og refilsstigu stjórnmálanna og hagvísinda nútímans, þótt margt sé um það talað?“ Ný orð — ný hugtök Sífellt bætast tungu vorri ný orð og gömul hverfa a.m.k. úr daglegu máli, þótt þau geymist á bókum. Þetta er ekkert furðuefni, nýjar atvinnugreinar og lífshættir krefjast umfjöllunar með öðru orðavali en áður tíðkaðist. Ara- skipum og seglskútum með sínum veiðiaðferðum og búnaði heyrði til annar orðaforði en vélknúnum togur- um, þótt þorskurinn sé hinn sami. Heyvinnu með orfi og hrífu hæfði ekki sama umtal og dráttarvélum og þeim búnaði er þeim heyrir til, enda þótt töðuilmurinn sé hinn sami, en meðferð og verkun heysins tekið þeim stakka- skiptum, að um tvennt ólíkt er að ræða fyrr og nú. Margvíslegur iðnaður hefir risið á legg, sem engan dreymdi um á aldarmorgni, og vöruvali og af- greiðsluháttum stórmarkaða heyrir ekki til sama tungutak og var við haft í krambúðunum gömlu, og furðumargt ber á milli torfbæjanna og nýtísku íbúðarhúsa. Þannig má halda í hið óendanlega liggur mér við að segja. Á öld vorri, sem brátt fer að hverfa í skaut sögunnar, hefir risið upp nýtt þjóðfélag með nýju tungutaki, svo að ég býst við, ef einhver, sem lagðist til hinstu hvíldar um aldamótin siðustu gamall og saddur lífdaga, risi allt í einu úr gröf sinni ætti hann dálítið erfitt með að skilja æskulýð 9. áratug- arins. Jafnvel vér, sem fylgt höfum öldinni að árum, höfum annað tungutak í þéttbýli nútímans en í strjálbýlum sveitum í bernsku. hvort sem oss líkar betur eða verr. Ekki tjáir að stríða gegn því, heldur að láta hina nýju strauma falla i farveg með hinum gömlu og aðhæfa tungu vora því liðna, svo að engin brotalöm sjáist. Það er ekki einungis að breyttir séu atvinnuhættir og lifsvenjur, hugarfar- ið og viðhorfin hafa einnig breyst. Ný hugtök og orð hafa skapast í samræmi við það. Aukin skólamenntun, annað félagslíf, skemmtanir og tómstunda- iðja, svo eitthvað sé nefnt kallar allt á nýtt orðaval, að ekki sé minnst á fræðimennsku, skáldskap og listir, að ógleymdri pólitíkinni. Þá má ekki skilja undan fjölmiðlana, sem flytja oss daglega fréttir af viðburðum úr öllum heimi á nýju tungumáli að kalla má, stundum að vísu lítt aðhæft hinu gamla, enda ekki tími til að fága og snyrta í kapphlaupi nútímans við tímann. Stundum skortir einnig á þekkingu. „Söm er hún Esja og samur er Keilir“, kvað Bjarni Thorarensen á sínum tíma, og þótti þá þjóðlífið harla breytt frá Ingólfs dögum. En hvað mundi hann segja nú? Hann horfði á fornöldina gegnum gleraugu róman- tíkurinnar. En í rauninni hafði þá minni breyting orðið í 8 aldir en nú á tæplega einni öld. En nýjum tíma hæfa ný orð og hugtök, sum koma ósjálfrátt fram í huga og á varir þjóðarinnar, önnur eru smíðuð af misjafnlega högum orða- smiðum, en allt klingir það í eyrum vorum, þótt hljómurinn sé mishreinn. Nýju orðin segja oss mismikla sögu. Sum benda einungis á nýtt tæki, sem mikilvægt er í daglegu lífi, en önnur sýna oss hugarfarsbreytingar, eða breytingar á lífsviðhorfum, sem gerst hafa jafnvel án þess vér tækjum eftir því. Vér sáum öll þegar flugvélarnar komu til landsins og heyrðum og skynjuðum allt hið nýja, sem þeim fylgdi í orðum og athöfnum, án þess að um nokkra hugarfarsbreytingu væri að ræða. En skynjum vér refskák og refilsstigu stjórnmálanna og hagvís- inda nútímans, þótt margt sé um það talað? Tvö eru þau orð, sem á síðustu tím- um bylja í sífellu í eyrum vorum í umræðum um þjóðmál, og það eru orðin flokkseigendur og verkalýðsrek- endur. Ég veit ekki um aldur þeirra, en víst er að engum hefði dottið þau í hug fyrir 40-50 árum, og voru þó stjórn- málaflokkar fastmótaðir þá fyrir nokkru og verkalýðshreyfingin orðin afl, sem ekki varð komist hjá að taka tillit til og gat þá þegar með samtaka- mætti sínum valdið straumhvörfum á ýmsum sviðum. En hvaða saga eða hugarfarsbreyting liggur að baki þess- ara nýju orða, eða eru þau ef til vill aðeins vígorð til að hamra á andstæð- ingum? Þau eru ef til vill hvorttveggja að nokkru leyti, en umfram allt segja þau sögu um hugarfarsbreytingu þjóðfélagsins, sem vér tökum lítt eftir i daglegu lífi. Þau segja það, að stjórn- málaflokkum og hagsmunasamtökum sé stjórnað af fámennum hópum, sem fari með málefni umbjóðenda sinna eins og þau væru eign þeirra og at- vinnutæki. Og hér hefir í raun gerst hættuleg þróun. Sú þróun bendir í þá átt, að lýðræðið og um leið réttur ein- staklingsins sé að færast í kaf í ein- ræðisstjórn fámennisklíkna, hvað svo sem þeir ágætu menn segja, sem með stjórn fara. Auðvitað verða einhverjir að stjórna og annast framkvæmdir. En samkvæmt grundvallarreglum lýð- ræðisins eiga þeir ekki að fara með flokk sinn eða félagssamtök sem einkaeign sína, heldur samkvæmt hag og farsæld heildarinnar og eftir því umboði, sem þeim hefir verið fengið af meiri hluta umbjóðenda þeirra. En af hverju stafar þessi öfugþróun? 78 Heimaerbezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.