Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.1985, Síða 3

Heima er bezt - 01.03.1985, Síða 3
Forsíðan: Claus P. K. Bryde hefur starfað sem mjólkur- fræðingur á Islandi í hálfa öld. Steindór Steindórsson frá Hlöðum Ný orð—ný hugtök Forystugrein 78 Árni Rögnvaldsson Erfitt námsár Nám í Kennaraskólanum 1937—38 96 Jón Gísli Högnason „Þetta var bara sjúss“ Claus Peter Kortsen Bryde segir frá 80 Gísli Kristjánsson Það sem geymist í minni Frá Mjóafirði um aldamótin 98 Þórarinn Magnússon Meinleg örlög Þáttur frá Síðu árið 1930 84 Gunnar Guðmundsson Fuglanet og fuglagrindur Lýsing á gömlum veiðiaðferðum 100 Hólmsteinn Helgason Skólaferð árið 1916 Fyrsti hluti ferðasögu 88 Arngrímur Sigurðsson Bjargvættur hinn týndu Sagt frá Bernharðshundunum 101 Sesselja Helgadóttir Litið til baka Minningar um þrjá förumenn 92 Hinrik A. Þórðarson Fyrsti mannfagnaðurinn Sundlaug vfgð á Reykjum, Skeiðum 103 Elísabet Geirmundsdóttir Mannlíf-Útþrá Tvö ljóð 93 Rafn Jónsson Perlur í mold 3. hluti framhaldssögunnar 104 Iðunn Ágústsdóttir Óveðurskvöld Ljóð 93 Steindór Steindórsson Bókahillan Ritdómar um 9 bækur 108 Jónas Pétursson Lífskjör Ræða flutt 23. nóvember 1984 94 Ólafur H. Torfason Giftingarstaðurinn er Keldudalur Fjórfalt systkinabrúðkaup í Dýrafirði 112 Vafalaust liggja rætur hennar víða, en ef til vill stingur þó eitt mest í augun, og það er áhugaleysi almennings um virka þátttöku í meðferð mála. Allur þorrinn lætur sér nægja að greiða at- kvæði á kjörfundi við þingkosningar, en láta sig síðan engu skipta, hvernig umboðsmenn þeirra reka erindi sín. Einnig heyrist sífellt um ákvarðana- töku í fjölmennum félögum, þar sem einungis örlítill hluti félagsmanna hefir mætt á fundi, til þess að kjósa stjórn og taka ákvarðanir um hin mikilvægustu mál. Flokksforingjar halda fundi þar sem smalað er saman einlitri hjörð flokksmanna til að greiða halelúja atkvæði með stjórn flokksins og störfum hennar, er þá að undra þótt hún þykist eiga flokkinn? Og þá má minnast á útvarps- og sjónvarpsum- ræðurnar, hversu margir hlusta orðið á þær í alvöru og eftirtekt? Stöðug endurtekning slævir athyglina að lok- um. Áreiðanlega eru fjölmiðla áheyr- endurnir færri en þeir voru, sem sóttu almenna sjórnmálafundi fyrrum, þeg- ar umræðan var ekki hneppt í mín- útuviðjar og öllum viðstöddum var leyfilegt að taka til máls. Þessi deyfð og áhugaleysi almennings er áreiðanlega einn meginþátturinn, sem skapað hef- ir þenna flokk manna, sem hlotið hefir nafnið flokkseigendur og verkalýðs- rekendur, sami maðurinn getur verið hvorttveggja, .en vafalaust kemur fleira til. Oft heyrðist fyrrum að rætt var um menn, sem lifðu fyrir hugsjón sína, fé- lag eða flokk. Nú heyrist það sjaldan eða jafnvel aldrei, en hinsvegar er ekki ótítt, að sagt sé að þessi eða hinn lifi á hugsjóninni, félaginu eða flokknum. Hann er með öðrum orðum hættur að þjóna öðrum, heldur lætur þá þjóna sér. Skyldi það ekki vera sú hugarfars- og stefnubreyting, sem skapað hefir hin margnefndu nýyrði flestu fremur? St. Std. Heimaerbezt 79

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.