Heima er bezt - 01.03.1985, Síða 12
HÓLMSTEINN HELGASON,
Raufarhöfn
Skólaferð árið 1916
Ég átti heima í Ásseli
á Langanesi, en hafði
sótt um vist á ung-
mennaskólanum á Hvít-
árbakka í Borgarfirði
syðra, sem þá var kall-
aður lýðháskóli. Hann
var rekinn svo sem
verða mátti að fyrir-
mynd þeirra skóla á
Norðurlöndum, einkum
í Danmörku, en þar
hafði stofnandi og
skólastjóri þessa skóla
stundað nám, eftir að
hafa útskrifast frá
bændaskólanum í Ólafs-
dal. Verður sú saga ekki
rakin hér, þótt merk
megi teljast í skólamál-
um okkar þjóðar á þeim
tíma, og Reykholtsskóli
sé arftaki Hvítárbakka-
skólans.
1
Námsfjár aflað á
Skálum á Langanesi
Einn af sveitungum mínum, sem út-
skrifaður var af bændaskólanum á
Eiðum, hafði verið á Hvítárbakka-
skólanum vetrarlangt og lét vel af
bæði námi og því, hve sérstaklega
ódýrt þar hefði verið að dvelja í
heimavistinni.
Ég var kominn yfir tvítugt og hafði
ekki getað látið eftir þeirri löngun
minni, sökum fátæktar, að afla mér
frekari fræðslu, en ég hafði getað
komizt yfir með eins vetrar setu í
unglingaskóla á Vopnafirði og sjálfs-
námi, sem ég reyndi að stunda eftir
getu. Allt, sem ég vann inn, utan
heimilis, sem raunar var ekki mikið,
gekk til sameiginlegrar þarfar fjöl-
skyldunnar, en ég var elztur barn-
anna, og hvíldi því mest á mér, ásamt
foreldrum mínum, um framfærsluna,
þar sem líka elzti bróðir minn, þremur
og hálfu ári yngri, var heilsulaus og
ekki vinnufær á þessum árum, og svo
þrír drengir aðrir innan fermingar.
Að loknum sauðburði þetta vor,
1916, lét ég í poka nauðsynlegasta
fatnað minn, batt á bak mér og lagði
land undir fót út að Skálum á Langa-
nesi, sem var þá orðin allstór verstöð
og þorp, með þeirri fyrirætlun að
koma mér þar í einhverja vinnu á sjó
eða landi, sem ég gæti aflað mér pen-
inga með, því nú var ég ráðinn í að
láta ekki lengur dragast einhverja
skólagöngu.
Á Skálum dvaldi ég í 6 vikur, komst
þar á sjóinn og aflaði allvel. Afla minn
seldi ég Þorsteini Jónssyni frá Seyðis-
firði, sem þarna keypti fisk og frum-
verkaði í salti og gerði sjálfur út
nokkra árabáta. Þegar ég yfirgaf ver-
stöðina um mánaðamót júlí og ágúst
og hélt heim til heyskaparstarfa, fékk
ég lítið meira útborgað en það, sem ég
þurfti að greiða þar á Skálum fyrir
uppihald mitt þennan dvalartíma, en
hitt stóð inni hjá fiskkaupandanum til
síðari tíma. 1 septembermánuði skrif-
aði ég Þorsteini og sagði honum, að ég
mundi sækja innstæðu mína til hans á
Seyðisfjörð, í sambandi við komu e/s
Botníu þangað frá útlöndum í október
n.k. og að hann hefði þá þessa pen-
88 Heima er bezt