Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.1985, Qupperneq 13

Heima er bezt - 01.03.1985, Qupperneq 13
inga mína tiltæka. En þetta var lítið yfir 300,00 kr. Ég hafði fengið samþykki fyrir skólavist á Hvítárbakka veturinn 1916-17. Samgöngur voru erfiðar á þeim tímum. E/s Sterling átti að koma til Þórshafnar snemma í slátur- tíð, síðustu daga septembermánaðar, fara austur um, og frá Austfjörðum til útlanda með haustvörur, sem tiltækar voru. Með þeirri ferð sendi ég far- angur minn til skólavistarinnar, á Seyðisfjörð, en hafði áður kynnt mér það, að e/s Botnía var áætluð á Seyð- isfjörð um miðjan október og þaðan suður um land til Reykjavíkur. Ég var við vinnu á sláturhúsi á Þórshöfn og fannst hyggilegra að vinna heimili mínu inn peninga en fara með Ster- ling og kaupa mig niður á Seyðisfirði um lengri tíma og bíða eftir Botníu, um aðra ferð var ekki að ræða. Þá vildi ég heldur leggja landið undir fótinn, þó langt væri til Seyðisfjarðar, en ég var á þeim árum frískur göngu- maður og vílaði ekki fyrir mér nokk- urra daga göngu. 2 Ferðalagið hefst. Til Mið- fjarðar og Vopnafjarðar Það mun hafa verið 6. eða 7. október, sem ég lagði upp í ferðalagið og komst ekki af stað fyrr en um hádegi, því kvöldið áður hafði ég hætt á slátur- húsinu og komið seint heim. Það var hægviðri, og hafði aðeins fallið snjóföl á jörð um nóttina, sem ekki var þó farartálmi göngumanni, heldur aðeins mýkra við fót, farangur hafði ég léttan, aðeins pokaskaufa með sokkaplöggum til skipta og skóm. Fyrsta daginn fór ég aðeins í Miðfjörð á Langanesströnd. Settist þar að, fyrr en þurft hefði, hjá Jónasi föðurbróður mínum og Hólmfríði móðursystur minni, sem vildu endilega hafa mig til gistingar, enda gerði Jónas jafnvel ráð fyrir að fylgjast með mér til Vopna- fjarðar, því þangað ætti hann erindi, og þótti mér það betri kostur. Við komumst ekki af stað frá Mið- firði fyrr en undir hádegi. Veður var ekki sem álitlegast, norðankaldi og nokkuð dimm hríðarél, en birti á milli, og hafði bætt nokkuð á um nóttina, en þó engin ófærð komin. Það kvöld var sest að á Dalhúsum, sem er bær undir Sandvíkurheiði að norðan, því ekki þótti rétt að leggja upp á heiði svo seint á degi, sem við komum að Dalhúsum í ótryggu veð- urútliti. Þá bjuggu á Dalhúsum Gunnlaugur Jónsson frá Höfn í Bakkafirði og Oktavía Jóhannesdóttir frá Dalhúsum. Höfðum við þar góða gistingu. Morguninn eftir, í dagrenningu, fylgdi Gunnlaugur bóndi okkur yfir Bakkaá, sem rennur skammt frá bænum, og óð ána tvær ferðir með okkur á baki sér, því hest hafði hann ekki við hús en vildi ekki, að við bleyttum okkur í fætur, áður en við legðum á heiðina. Áin var með mjó- um skörum við bæði lönd, en annars auð, því frost höfðu verið væg með þessum hríðaréljum, og fremur var hún grunn. Veðrið versnaði ekki, þegar fram á daginn kom, aðeins sami norðan kuldagjósturinn og fremur strjál él. Við vorum hátt á fimmta klukkutíma yfir heiðina, óðum Selá skammt frá Hvammsgerði og gengum í blautu niður í Vopnafjarðarkauptún, kom- um þar í rökkri, dálítið gönguþreyttir, því þæfingur af snjó hafði verið á heiðinni, og aldrei er gott göngufæri í fyrstu snjóum. Við tókum gistingu á Vopnafirði, hjá Gunnlaugi Sigvaldasyni móður- bróður mínum og Margréti Gríms- dóttur konu hans, og var ekki í kot vísað. Fljótlega eftir að við komum barst ferðalag mitt i tal, og sagði þá Gunnlaugur, að þar væru nokkrir menn í þann veginn að leggja af stað landveg til Seyðisfjarðar, í veg fyrir Botníu til Reykjavíkur. Þótti mér þar bera vel í veiði og bað Gunnlaug að grennslast um, hve nær þeir hyggðust leggja upp, og að ég óskaði eftir að verða þeim samferða. Gunnlaugur fór um kvöldið til fundar við ferðamenn- ina og kom með þær fréttir, að þeir mundu leggja upp næsta dag, ekki snemma, og væri ég velkominn í hópinn. 3 Þriðji göngudagurinn. Ferðafélögum fjölgar Það var liðin nokkur stund frá hádegi, og ég búinn að bíða, að mér fannst, óratíma ferðbúinn, þegar ferðamenn- irnir birtust, fjórir í hóp, allir með einhvérja smápinkla á baki. Þeir þurftu ekki að bíða eftir mér, ég kvaddi í snatri og snaraðist út á eftir þeim. Komst ég í hópinn eftir ör- skamma stund. Áður en lengra er haldið, vil ég reyna að gera stuttlega skil á þessum samferðamönnum mínum, sem voru að leggja af stað frá Vopnafjarðar- kauptúni: Fyrstan tel ég þá Karl Sig- valdason, sem þá taldist bóndi í Syðri-Vík í Vopnafirði og vissulega hafði þar bú, en var sjálfur eitthvað laus við, því veturinn áður, a.m.k. hafði hann dvalizt í Kaupmannahöfn og mundi einnig dveljast þar í hönd farandi vetur. Hann var einhverskon- ar starfsmaður eða erindreki svo- nefnds „Títan-félags“, sem margir munu kannast við og hafði á stefnu- skrá sinni raforkuframleiðslu með vatnsafli hér á landi. Var á Karli að heyra, að Lagarfoss væri fyrsta verk- efnið, og vonaði hann, að það gæti hafizt á komandi vori. Annar ferða- maðurinn var Páll Einarsson, sem undanfarið hafði verið starfsmaður við verzlun Örum & Wulfs á Vopna- firði, en var nú að hverfa þaðan. Páll hefur í hálfa öld verið sýslustarfs- maður, fyrst á Húsavík og síðar á Ak- ureyri. Þriðji ferðamaðurinn var Sig- urður Ólafsson, unglingspiltur, að mestu uppfóstraður á Fremra-Núpi í Vopnafirði. Fjórði maðurinn var Thorvald Wejvett, unglingur úr kauptúninu, af dönskum eða þýskum uppruna í föðurætt. Það var nokkuð farið að bregða birtu, þegar við fórum hjá Krossavík, hriðarveður, ekki mjög hvasst en drjúg snjókoma. Karl Sigvaldason kom ekki við heima hjá sér í Syðri- Vík, enda svolítið úr leið, úr því hann byrjaði ferðina úr kauptúninu, hvernig sem nú á því stóð, en ákvað að ná til gistingar að Vindfelli, sem er í leiðinni til Hellisheiðar. Það var al- Heima er bezt 89

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.