Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.1985, Qupperneq 14

Heima er bezt - 01.03.1985, Qupperneq 14
dimmt fyrir nokkru, er þangað kom. Bóndinn á Vindfelli hét Gísli, og tók hann við okkur til gistingar með hinni alkunnu, íslenzku sveitagestrisni þeirra tíma og fékkst ekki um mann- fjöldann. Bóndi var mjög skrafhreifur um kvöldið og ræddi mest við Karl um virkjun Lagarfoss, sem hann virt- ist hafa á mikinn áhuga. Matur og allur aðbúnaður þarna var í bezta lagi og sýndi enga búsveltu, enda haust- dagar. 4 Frá Vindfelli til Ketils- staða í erfiðri færð Nú átti að leggja af stað, fyrr en farið var úr kauptúninu, helzt ekki síðar en klukkan 7 morguninn eftir, ef ekki hindraði veður. Ég held, að konurnar á Vindfelli hafi ekki sest að um nótt- ina, því um klukkan 6 vorum við vaktir, og þá til að drekka morgun- kaffi. Þar rétt á eftir var borin á borð nýsoðin kjötsúpa, ásamt kjöti og slátri, en því miður var matarlystin hjá okkur, svo snemma morguns ekki í samræmi við það, sem á borð var borðið, eitthvað var þó reynt við rétt- ina og síðan hraðað sér af stað, því nú var Hellisheiði framundan, milli Vopnafjarðar og Jökulsárhlíðar. Það var ekki runninn dagur, þegar við lögðum af stað frá Vindfelli og ekki meir en hálfbjart, þegar við fór- um framhjá Eyvindarstöðum, sem er næsti bær vestan heiðarinnar. Ekki urðum við þar manna varir, og hefur fólk þar naumast verið úr rekkju risið. Dálítið dalverpi er á milli bæjarins á Eyvindarstöðum og heiðarbrekkunn- ar. sem er bæði há og brött, raunar fjallshlíð, stalialaus, upp að sækja. Talsvert hafði bætt á snjóinn um nóttina, og loft enn fremur lágskýjað og hríðarél af og til. Mikinn snjó hafði skafið ofan af fjöllunum og niður í brekkuna, og var þar botnlaus ófærð, sem við áttum upp að sækja. Við vor- um eitthvað á þriðja klukkutíma að brjótast um í þessari brekku, ýmist að kafa í sporaslóð eða skríða, þar sem botnlaust var. Við Sigurður Ólafsson skiptumst á að fara á undan og mynda slóð eða bæla fönnina eftir föngum, því við vorum einna léttastir til gangsins og vanir labbinu, en hinir meiri kyrrstöðumenn. Þegar nokkuð upp í brekkuna var komið, fóru sumir að kvarta um þreytu og vildu taka sér lengri hvíldir. Renningurinn ofan af fjallinu dundi á okkur, sérstaklega þó, þegar élin gengu yfir, og var þá algert dimm- viðri. Páll Éinarsson virtist þola þennan þæfing einna verst, enda hafði hann undanfarið setið á skrif- stofu á Vopnafirði og hreyft sig lítið, var þó stæltur fimleikamaður á skólaárunum. Ég bauð honum þá að losa hann við bagga sinn, og þáði hann það, enda létti það svolítið fyrir honum kafaldið. Bagganum skilaði ég ekki fyrr en í náttstað var komið. Þegar loks upp á fjallið var komið, var gangfæri allgott, því rifið hafði af öllum hávöðum, og á Hellisheiði (eystri) er mikið hægt að þræða mela og ása. Lítinn snjó hafði fest, og virtist sem miklu minni snjór væri, þegar austar kom. Það var aðeins lítið tekið að bregða birtu, þegar við komum að Ketilsstöðum, sem er austasti bær í Jökulsárhlíðinni, og var þar tekin næturgisting, þótt ekki væri fremur dags, því sumum ferðamönnunum fannst þeir nægilega þreyttir. Þar átti Auslurbrekkan mesta sök á. Það þótti helzt til margt til gistingar á Ketilsstöðum, að við yrðum þar allir fimm næturgestir, fóru því þeir Sig- urður Ólafsson og Thorvald til næsta bæjar og gistu þar. Það var nokkurn spöl vestar, nær Jökulsá og hét Mýr- arkot eða Mýrarsel. Við áttum ágæta nótt á Ketilsstöðum og fengum ekki að greiða neitt fyrir næturgreiðann. Þá bjuggu þar hjónin Magnús Sig- björnsson og Jónína. 5 Sleðbrjótssel og ægileg lífsreynsla hjá Fossvöllum á fimmta degi. Kaffi- drykkja í fjárhúsum í Bót Þegar við vorum ferðbúnir morgun- inn eftir, eitthvað stundu fyrir hádegi, kom Sigurður Ólafsson einn til móts við okkur og sagði þær fréttir, að Thorvald ferðafélagi væri hálflasinn og alveg afhuga ferðalagi, mundi hann snúa heimleiðis, er hann hefði 90 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.